Heima er bezt - 01.03.1955, Qupperneq 7

Heima er bezt - 01.03.1955, Qupperneq 7
Nr. 3 Heima er bezt 71 ÁST og HATUR Eftir Ólaf Gunnarsson sálfræðing Hvatir, tilfinningar og geðstefnur. Tilfinningalíf mannsins er lít- ið rannsakað í samanburði við greind hans, skynjanir og úr- vinnslu taugakerfisins úr skynj- uðu efni. Samt hefur tilfinninga- lífið engu minni þýðingu en vits- munir mannsins, því að á því byggist að miklu leyti skapgerð- in. Mannkynið hefur heldur ekki skort áhuga á tilfinningalífinu, þess sjáum við greinileg merki í bókmenntunum, bæði skáld- sagnahöfundar, leikritaskáld og ljóðskáld hafa öldum saman skrifað bækur um tilfinningalíf og munu vafalaust halda því áfram án þess að áhugi almenn- ings á efninu dvíni. Sálfræðing- ar hafa líka heyjað sér allmikl- um fróðleik í bókmenntunum og enski sálfræðingurinn Alexander Shand hefur í óvenjulega vel skrifaðri bók, „The Foundation of Character“ eða „Grundvöllur skapgerðarinnar“ birt skoðanir sínar á tilfinningalífinu. Meðan rannsóknir á tilfinn- ingunum eru eins skammt á veg komnar og raun ber vitni, getum við með góðri samvizku gert okk- ur talsvert ómak við að kynnast kenningum hins mikla Breta, því vafasamt er, hvort nokkur ein bók, sem um sálfræði hefur ver- ið skrifuð, geti talizt eins gagn- merk og „The Foundation of Character". Shand gerir greinarmun á hvötum, tilfinningum og geð- stefnum, en þetta kallaði hann á ensku „appitites, emolions and sentiments". Það leikur varla nokkur vafi á því, að „appitites" og „emotions“ muni vera rétt þýdd orð með hvatir og tilfinn- ingar, hinsvegar skal ég ekki ábyrgjast, hvort orðið geðstefna geti talist nákvæm þýðing á „sentiment". Væri mér kærkom- ið, ef einhver gæti þar um bætt, þegar við höfum kynnzt því, hvað í orðinu felst. Shand notar orðið hvatir um það, sem okkur er áskapað, t. d. sult og þorsta. Sjáum við strax, að þarna er um að ræða frum- þarfir og ekki ástæða til að ræða það frekar að sinni. Við skulum aðeins gera okkur ljóst, að hér er um allra frumstæðustu hvatir mannsins að ræða, sem varla verður breytt með uppeldisáhrif- um til neinna muna. Manninum, hinum leitandi anda, er ekki nóg að þekkja frumþarfir sínar og fullnægja þeim, hann leitar stöðugt að skýringum á æðri öflum, sem í honum búa. Það eru þau öfl, sem Ameríkaninn Murray kallar sál- rænar þarfir, en Shand kallar geðstefnur. Stundum er lítill eða enginn munur á því, sem Murray kallar þörf og Shand geðstefnu, stundum er munurinn talsverð- ur. Þessu miklu kerfi, sem þeir hvor í sínu lagi og án þess að þekkja hvorir annan, hafa byggt upp, hafa enn ekki verið borin nærri því nógu vel saman og þaðan af síður hefur verið reynt að bera kenningar þeirra saman við það, sem rúmar einna mesta lífsspeki af því, sem skrifað hef- ur verið á norrænum tungum, nefnilega Hávamál. Nýstárleg skýring á eðli ástarinnar. Við skulum strax gera okkur ljóst, að Shand talar allt öðruvísi um hitt og þetta, sem við þekkj- um úr daglegu lífi, en við eigum að venjast. Hann skýrir t. d. eðli og skipulag ástarinnar á allt annan hátt en aðrir menn og gerir hana jafnvel enn virðu- legri en nokkur rómantískur rit- höfundur hefur látið sér detta í hug, hann telur nefnilega ástina eina aðalgeðstefnu mannsins, sem geti haft að geyma fjölda- mörg öfl. Þetta þýðir það, að Shand telur ekki ástina né kær- leikann tilfinningar, heldur geð- stefnu, og er það allt annar skilningur á þessum hugtökum en við eigum að venjast. Hann skýrir líka tilfinningar á annan hátt en almennt gerist, þótt við könnumst strax við margt úr daglegu lífi, af því, sem hann bendir á. Við skulum fyrst snúa okkur að tilfinningum. Shand telur, að frumskilyrði þess, að hægt sé að viðurkenna eitthvað í fari mannsins sem tilfinningu, sé þetta. Tilfinningin verður einn- ig að vera þekkjanleg hjá dýr- um, hún má ekki geta breytzt þannig, að úr henni verði önnur tilfinning, hún þarf að sýna sig í verki sem áskapaður verknaður. Shand telur, að sex tilfinningar séu til, sem uppfylli öll þessi skilyrði, en þær eru: gleði, reiði, ótti, sorg, viðbjóður og forvitni. Þótt Shand tali um þessar sex til- finningar, væri í raun réttri eðli- legri að nota ekki nafnorð, en tala þess í stað um hinn reiða Jón eða sorgmæddu Sigríði o. s. frv. Ég mun þó halda mér við málvenju Shand, því hún er þægileg án þess að vera algerlega rétt. Við skulum þá fyrst snúa okkur að gleðinni. Hver einasta hvöt eða eggjandi, sem á eðlis- lægan hátt gerir vart við sig í okkur, er tengdur gleðinni á þann hátt, að við verðum glöð, ef hvötinni er fullnægt. Þarna er aðeins um eðlilæga gleði að ræða, þ. e. gleði, sem geðstefna hefur ekki vald yfir, en eðli geðstefnu er það, að hún sækist eftir að ná í allar tilfinningar, sem þjónað geti markmiði hennar. Tilfinn- ingar þessar temur geðstefnan eins og góður reiðmaður baldið tryppi, leggur þeim skyldur á herðar og innrætir þeim afstæða siðfræði. Af þessu leiðir, að geð- stefna banni tilfinningu að fara eftir því, sem henni er hugþekk- ast; hún getur bannað Jóni að gleðjast af því hann er staddur við jarðarför Sigurðar, sem hann hefur hatað af heilum hug, en allir aðrir, sem vlðstaddir eru, mátu mikils og myndu því taka

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.