Heima er bezt - 01.03.1955, Side 8

Heima er bezt - 01.03.1955, Side 8
72 Heima er bkzt Nr. 3 Jóni illa upp, ef hann gleddist áberandi við jarðarförina. Eftir því sem gleði lundarinn- ar verður meiri, eftir því eiga sorgin, viðbjóðurinn eða örvænt- ingin óhægara með að komast að, hinsvegar á þá vonin og trúin á framtíðina góða daga. Einn syndari, 99 réttlátir. Beinist gleði okkar að miklum hópi, getur sú gleði ekki orðið upphaf sterkrar geðstefnu, þ. e. ástar, þeim mun þrengri tak- mörk, sem gleðin setur sér, þeim mun sterkari geðstefnu getur hún verið undirrót að. Frásögnin um syndarann og hina 99 rétt- látu er að því leyti í sama anda og kenningar Shand, að þar er tekið fram, að gleðin yfir einum verði meiri en 99; að vísu er þar talað um þann, sem geri yfirbót, en sannleikurinn er sá, að það er ekki hægt að gleðjast eins mikið yfir 99 og einum. Við sjáum hið sama í umgengni soldána og annarra austurlenzkra höfð- ingja við hinar mörgu konur sín- ar. Þær geta að vísu skipt tugum og jafnvel hundruðum, en jafn- an er þar ein uppáhaldshús- freyja og nýtur allt annarrar og meiri ástar en allar hinar. Fá- tæklingnum blöskrar að vonum oft, hversu gálauslega auðmaður- inn fer með verðmæti, sem fá- tæklingurinn mjmdi vilja eign- ast, en hefur ekki efni á að veita sér. Þarna kemur hið sama til greina. Eftir því sem auðurinn vex, þarf meira til þess að gleðja manninn en meðan hann er fá- tækur. Jakob Thorarensen segir: „Mér var kúskel mikill fengur, meðan ég var lítill drengur." En sama mann lætur hann segja: „Unz hálfar þurfti og heilar jarðir hugur minn svo gleddist við.“ Hins sama verðum við vör hvað þá menn snertir, sem eiga fáa vini, þeir eru yfirleitt trygg- lyndari og vinum sínum meira virði heldur en hinir, sem þekkja mjög marga. Söngur og gleði. Líkamleg óþægindi og eins vel- líðan valda því, að maðurinn sækist eftir návist einhvers annars. Þessir eggjendur, sem í fyrstu geta verið allóákveðnir, valda því, að maðurinn leitar einhvers annars og þegar þessi einhver er fundinn, og ef hann veitir manni gleði, reynir mað- urinn að halda i gleðivakann. Þarna erum við komin að einu mikilvægu í eðli gleðinnar. Gleð- in reynir að varðveita þann hug- blæ, sem er einkenni gleðinnar og þá um leið þann, sem gleðinni veldur. Þar eð gleðin er þægileg tilfinning, er það mikils virði fyrir andlega heilsu mannsins, að hann sé sem oftast glaður. í kennslustarfi er gott að minnast þessa, því það er mikilvægt upp- eldisatriði ef hægt er að gleðja börnin sem oftast, enda munu kennarar kannast við það, að börn leggja meiri áherzlu á það, að kennari sé skemmtilegur, en að hann viti mjög mikið. í þessu sambandi má benda á sönginn sem mikilvægt tæki til þess að vekja gleði og verður honum varla nokkurntíma beitt um of í skólum, því að þeir söngvar, sem barnið lærir í glaðlegum hópi fé- laga sinna, verða síðar meir gleðigjafi í lífinu, því þegar þeir verða sungnir á ný, rifjast gamli, hugþekki hugblærinn upp og yljar manni í skapi. Þetta könnumst við við í sambandi við jólasálmana, sem fólk hefur yndi af að syngja jafnvel þótt það sé ekki trúrækið. Er ástæð- an sú, að einmitt þessir söngvar hafa verið sungnir á þeirri há- tíð, sem flestum börnum mun verða minnisstæðust. Ástríða og gleði eyðileggja hvor aðra. Ástríðufullur maður, sem leitast við að fullnægja ástríðu sinni, en veitist það erf- itt, getur naumast verið glaður samtímis, a.m.k. hlýtur ástríðan að dofna að sama skapi og gleð- in eykst. Eins er það alveg öruggt, að höggin verða skörð í gleðina, ef sterk ástríða nær tökum á manni á gleðistund. Séum við hinsvegar viss um að ná ein- hverju marki hvort sem það er í sambandi við ástríður eða eitt- hvað annað, þá njótum við með- ala, sem við beitum til þess að ná því, mun meira en ella. Gleðin er ýmist bundin við eitthvað, sem er utan við okkur og óháð okkur eða hún er háð einhverju, sem við gerum sjálf. Gleðin við að horfa á málverk er að því leyti óháð okkur sjálfum, að aðrir geta glaðst yfir sama málverkinu án þess að við séum þar nokkursstaðar nærri og aðrir geta glaðst yfir því löngu eftir okkar dag. Ef um virkilega gott listaverk er að ræða, veitir það okkur því meiri gleði, sem við skoðum það oftar og vandlegar, en um alla hluti, sem lítið lista- gildi hafa, er það svo, að gleðin við að sjá þá eða heyra verður því minni, sem við sjáum eða heyrum þá oftar. Nægir í því sambandi að minna á örlög dæg- urlaga og dægursöngva. Sú gleði, sem er háð okkar eig- in starfsemi, er t. d. gleðin við allskonar leiki, gleðin á íþrótta- vellinum er sem kunnugt er að- algildi íþrótta og verða þær því gagnslitlar eða jafnvel skaðlegar um leið og við hættum að gleðj- ast af því að taka þátt í þeim. Sjálfselska og fórnarkærleikur. Eðlislega er sorgin andstæða gleðinnar. Glaður maður er léttur í hreyfingum og fljótur að hugsa, en hinn sorgmæddi er seinn og þungur í vöfum. En hvötin, sem er undirrót gleðinn- ar, er einnig undirrót sorgarinn- ar. Þessi hvöt segir okkur að halda í hvorttveggja. Alveg eins og við viljum halda í gleðivak- ann, eins höldum við í minning- una um þann, sem við syrgjum. Á þennan hátt verða gleði og sorg samstæður en ekki and- stæður. Aðalandstæða gleðinnar er þó viðbjóðurinn, sú tilfinning, sem skipar okkur að forðast eitthvað ákveðið meðan gleðin segir okkur að halda í það. Við skulum nú athuga, hvemig gleðin getur smám saman þrosk- ast, þannig að úr henni verði geðstefnan ást. En áður en við gerum það, skulum við athuga, að ást eða kærleikur skiptist i tvo aðalflokka: sjálfselsku og fórnarkærleik. Ég mun síðar koma nánar inn á þetta, en get nú þegar bent á, að ástin milli kynjanna er yfirgnæfandi sjálfs- elskufull, en t. d. ástin til ætt- jarðarinnar eða vísindanna að- allega fórnarkærleikur. Dæmið, sem ég nefni um það, hvernig gleði verður að geðstefnu, er til- búið og gert eins einfalt og kost- ur er á, jafnvel svo einfalt, að vafasamt er, hvort það hlyti ekki

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.