Heima er bezt - 01.03.1955, Síða 14

Heima er bezt - 01.03.1955, Síða 14
78 Nr. 3 Heima er bezt TRYGGVI GUNNARSSON fer niður úr gilinu og kemur nið- ur á grundina; en er þeir eru komnir allnærri tjöldunum, þagnar söngurinn. Álfasveinam- ir tveir leiddu huldukarl á milli sín og settu á stól nálægt dans- sviðinu; báðu þeir orlofs af honum að mega leika; leyfði karl það, en þó nokkuð treglega í fyrstu. Slógu þá álfarnir hring á danssviðinu og tóku að syngja og dansa. Þegar því hafði farið fram nokkra stund, reis karl á » fætur með stuðningi, og lýsti heillum yfir landi og lýð, en allt huldufólkið tók undir. Eftir það þokaðist það út af dans-sviðinu út á grundina og söng þar forn- kvæði með miklum gleðilátum. Að því búnu hvarf það aftur upp í gilið og sást eigi síðan: Þá var komið fast að miðnætti. Voru þá enn nokkrar skálar drukknar að skilnaði og eftir það lyktaði há- tíðin með hringingum. Þjóðhátlð Húnvetninga. Húnvetningar héldu hátíð sína að Þingeyrum 2. júlí og var hún hvorttveggja í senn, almennur fundur og skemmtisamkoma, tókst sú samræming mjög vel. Höfðu þeir áður kosið sérstaka nefnd sem m. a. átti að semja tillögur til umræðu á fundinum auk skipulagningar hátíðahald- anna. Það er eftirtektarvert, hve víða um land hafa verið útvegaðar fallbyssur, þó senni- lega smáar, til þe'ss að auka við hátíðahöldin og gera þau áhrifa- meiri með skothríð t. d. við setn- ingu og slit. Hér hófst einnig há- tíðin með því, að hleypt var af 12 fallbyssuskotum einni stundu eftir dagmál og munu hátíða- höldin hvergi hafa byrjað svo snemma annarsstaðar. Um leið voru dregnir upp þrír fánar, einn á bæjarhúsunum með mynd af sitjandi fálka og tveir á stein- húsinu, er Ásgeir bóndi Einars- son hafði þá ekki að fullu lokið við að byggja, annar hvítur með rauðum krossi en hinn með fálka á flugi. Þegar gestir höfðu safnazt saman var gengið til kirkju og hlýtt messu hjá Ólafi Pálssyni prófasti á Melstað. Að henni lokinni héldu menn í skrúðgöngu til steinhússins og gengu fjórir í röð, karlar fyrir en konur síðar. Var þar fundur settur og hófust fjörugar um- ræður. Bar undirbúningsnefnd- in fram tvær tillögur, var önnur sú, að reisa skyldi vandað funda- hús fyrir sýsluna í heild. Hin er merkileg að því leyti, að hér er því hreyft í fyrsta sinn, að stofna sameiginlegan sjóð til eimskipakaupa fyrir íslendinga. Skyldu sýslubúar „nú þegar byrja að leggja í sjóð, er verja skyldi til þess, að kaupa gufu- skip fyrir, í þeirri von, að aðrar sýslur einnig styrktu til þess að sínu leyti“. Voru báðar til- lögurnar samþykktar í einu hljóði og greiddu atkvæði konur jafnt sem karlar og þótti það skemmtileg nýlunda. Að siðustu voru rædd nokkur önnur mál. Enda þótt fundarsalurinn væri troðfullur, fóru jafnframt veit- ingar fram í tjaldi miklu við hlið hússins og í kirkjunni var söng- flokkur, er skemmti fólki með Söng um daginn. Að fundi lokn- um var slegið upp veizlu í stein- húsinu, en þar var komið fyrir borðum í hring með bekkjum beggja megin. Var þar mælt fyrir skálum og mörg minni drukkin. Stýrði Ásgeir bóndi hófinu af miklum skörungsskap. Var mælt að um 500 manna hafi sótt há- tíð þessa.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.