Heima er bezt - 01.12.1955, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.12.1955, Blaðsíða 5
Nr. 12 Heima er bezt 357 kom því upp, einn og efnalítill. Einnig var það framúrskarandi dugnaði hans að þakka og hygg- indum, að hann efnaðist þar vel á þessum árum. Hann annaðist sjálfur að mestu um fé sitt, stóð yfir því á vetrum og færði það í beztu hagana og mokaði snjó af góðum hagablettum, svo að féð næði til jarðar. Sauðum kom hann upp og hafði þá vetur og sumar inni í Kollumúla. Þangað gekk hann stundum á vetrum, um langan veg, til þess að vitja þeirra og kanna, hvernig þeim liði. Á vorin varð hann að fara þangað til þess að rýja þá og koma síðan ullinni heim. Mundi það ekki einum meðalmanni fært. Þegar efnin urðu meiri og bústofninn stækkaði, réði hann til sín vinnufólk. Sú saga gekk um sveitina, að eitt vor, er hann fór með vinnu- mann sinn áleiðis til Kollumúla til að rýja sauðina, og þeir komu að Jökulsá, sem rennur undir Kollumúlanum, þá var hún í miklum vexti. Þeir leituðu að góðu broti, en fundu ekki. Vinnumaður hans hafði þá orð á þvi, að áin væri ófær og eng- in leið að vaða yfir hana. Jón Markússon kvað hana illvæða, en sagðist þó mundi reyna, hvort hún væri ekki væð. Hann hafði, eins og þá tíðkaðist, er fallvötn voru vaðin, fjögra álna langa stöng með broddi og renndum hnúð á efri enda hennar, svo að hún rynni ekki úr hendi, þegar fallvötnin voru reynd á ísi, eða án hans. Eftir að hann hafði lengi reynt að rannsaka straum- þunga og dýpt áriruiar, leitaði hann að tveimur hellusteinum, sem sagt var, að verið hefðu að þyngd um 40—50 pund hvor. Þá batt hann saman þannig, að hann hafði annan á brjósti, en hinn á baki. Reiptaglið, sem hann batt steinana með, hvíldi á öxlum hans. Þannig útbúinn lagði hann út í Jökulsána og studdist við stöngina. Þessi út- búnaður átti að varna því, að hann flyti upp, en gera hann um leið fastari á fótum. Vinnumað- urinn stóð á bakkanum og fylgdist nákvæmlega með til- raunum húsbónda síns að vaða yfir ána. Var hann mjög ugg- andi um hann og tilbúinn að reyna að bjarga lífi hans, ef illa skyldi fara, svo að hann missti fótanna í ánni og afl hans reynd- ist ekki nægilegt gegn hinu þunga straumfalli árinnar. Þeg- ar Jón var kominn út í miðja ána og straumþungi hennar skall nærri því á öxl hans, hras- aði hann lítils háttar. Vinnu- maðurinn varð óttasleginn og bað fyrir sér. Heyrir hann þá, að húsbóndi hans segir ofsareiður: „Get ég ekki staðið á helvítis löppunum!“ Lýsa þessi ummæli hans hörkunni, sem í skapgerð hans bjó, ásamt djörfung og kjarki og miskunnarleysi við sjálfan sig. Vinnumaðurinn vissi vel af afli Jóns og karlmennsku og taldi hann allra manna sterkastan, þeirra, er hann hafði kynnzt, en þarna hélt hann, að húsbóndi sinn hefði reist sér hurðarás um öxl, að reyna að vaða Jökulsá í vexti, sem ekki var fær hesti. Hann var því mjög hræddur um líf Jóns og mjög feginn, þegar hann var kominn upp á árbakkann hin- um megin, og tekinn að losa sig við steinana, sem meðal annars áttu að hjálpa honum til að komast yfir ána. Ekki er þess getið, hve sauðir hans voru margir, en honum hafði tekizt að rýja þá alla án hjálpar annarra manna, og var það út af fyrir sig þrekvirki. En aðalþrekvirkið var þó það að reisa nýbýli inni á afrétti, einn síns liðs og nærri efnalaus og smala saman rekavið hingað og þangað, til notkunar í bæjar- og gripahús, og koma þeim húsum upp án hjálpar. Hitt hefur einn- ig hlotið að reyna mjög á dugn- að Jóns og fyrirhyggju, að verða á þeim tímum svo efnaður mað- ur, á níu árum þarna, að geta keypt jörðina Hlíð í miðri sveit og sezt þar að með sæmilegum bústofni. Slíkt afrek er ekki heiglum hent. Sagt var, að bú- skapurinn að Hlíð hafi gengið vel og efnin aukizt þar. Mátti sjá þess merki, er ég kom að Hlíð, að þar var umhirða og um- gengni til fyrirmyndar og reglu- semi svo að af bar. Jón Markússon flutti að Hlíð í Lóni árið 1849. En ári seinna, eða 1850, eignaðist hann son með vinnukonu sinni, Sigurveigu Markúsdóttur. Kvaðst hann hafa gert þetta að gamni sínu. Þessi barnsmóðir hans var þá 33 ára að aldri. Drengurinn þeirra hlaut nafnið Eiríkur og ólst upp að Hlíð með föður sínum og konu hans, Valgerði. Á þeim árum var tekið hart á siðgæðisbrotum og framhjátökum giftra manna. Þá var það einnig venjan, að gift- ar konur snerust illa við tryggðarofum manna sinna. Þessu var þó á annan veg hátt-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.