Heima er bezt - 01.12.1955, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.12.1955, Blaðsíða 14
366 Heima er bezt Nr. 12 ingum, og linnti þeim leik venjulega ekki fyrr en formað- urinn hastaði alvarlega á stóð- ið. Einhver fór að segja drauga- sögur eða kveða rímur, og va) þá stundum langt liðið á nótt. Eins og nærri má geta flýtti þessi hlöðuvist ekki fyrir hey- skaparlokum hjá þeim bændum er hlöðurnar áttu, þeir gátu ekki alhirt fyrr en landferðun- um var lokið. Því mátti stundum sjá galta úti fyrir hlöðudyrum á þessum bæjum á göngum og réttum, þó heyskap annars væri lokið. Þeir biðu þess að fara í hlöðurisið, þegar eyjamenn höfðu bælt heyið að ferðunum loknum. — Börn og kvenfólk í eyjun- um átti þess ekki kost, að ríða í réttirnar, eins og tíðkast víða til sveita á landi, og almennt var hlakkað mikið til. En það hlakkaði engu að síður mikið til réttanna og fjárflutninganna. Það hlakkaði til að sjá kindurn- ar eftir fjarveruna. Og í stað þess að raða sér á réttarveggina, skipaði það sér stundum á var- arveggina þegar sleppt var upp úr skipunum, til að koma sem fyrst auga á kindina sína eða lambið sitt. Og því var vel fagn- að, ef til þess náðist. Og féð — eyjaféð — það hlakkar líka til landferðanna. Á vorin, er það nær ört að kom- ast á land. Og nú, að hausti, vill það ákaft út í eyjarnar aftur. Það hefur tileinkað sér eitthvað af eðli farfuglanna. Þarf því lít- ið að hafa fyrir því að koma því í skipin. Það stekkur sjálft út í, ef aðstaða er góð og kemur sér svo v_el fyrir, að furðu gegnir. — Á þessum ferðum hefur orð- ið mikil breyting á síðustu ára- tugum. „Sjást nú ei lengur seglin hvít sjóndeildarhringinn tjalda.“ Nú mun vera hætt að draga upp segl í fjárflutningum á Breiðafirði. í gömlu áraskipun- um — sem nú raunar flest fúna í naustunum — er hvorki mast- ur, árar né segl, máske ekki stýri, þó þeim sé skotið á flot. Þau mega muna sinn fífil fegri. Allslausum er þeim hnýtt aft- an í skröltandi mótorbáta, og svo öllu draslað áfram gegnum þykkt og þunnt. Það er engin list. Til þess þarf enga kunn- áttu í sjómennsku. Aðeins dá- litla þekkingu á vélum. Það eru leiðinlegar sjóferðir, og óskap- leg sjón fyrir þá, sem muna seglin. 3. Þegar landferðunum var lok- ið, og féð hafði jafnað sig eftir volkið, byrjuðu sláturstörfin og smærri flutningar. Dilkum var slátrað strax, en ám og geldfé dreift í úteyjar til bötnunar. Því var slátrað seinna. Fé fitnar fram eftir vetri í eyjum, eink- um gamlar ær. Bezt er beitin í hólmum, þar sem vex skarfa- kál og annar safamikill gróð- ur. — Líffé var líka flutt í úteyjar, sumstaðar allt, sumstaðar nokk- ur hluti þess. Það var gert til þess að létta á beitinni á heima- eyjunni. Hún skyldi geymd til vetrarins. Að nokkru er hún líka uppurin. Hún hafði orðið að kviðfylli nautum og beljum yf- ir sumartímann, enn í útieyjum er skarfakál og annað lostæti ósnert. En oft fylgir böggull skamm- rifi, svo sem kunnugt er. Og beitinni í eyjunum fylgdi sá böggull, að hún varð víða ekki notuð án mikillar fyrirhafnar og vinnu, vegna sjávarhættu. Þær eru teljandi á fingrum sér, eyj- arnar í Flateyjarhreppi, sem ekki er meira eða minni hætta í fyrir sauðfé. Flúðir og tangar eru áfastir við þær flestar um fjöru, og verður féð þrásinnis til á þeim, þegar það sinnir fjöru- beit, ef ekkert er að gert. En til að geta notað beitina eftir föngum, og forða fénu frá slysum, var fólk látið fylgja því eftir. Sums staðar var það ekki yfirgefið allt haustið, en annars staðar var þess aðeins gætt um stórstraumana. Fór það eftir staðháttum. Vegna þessarar fjárgæzlu, voru byggðir kofar í nokkrum eyjum fyrir smal- ana að hírast í, því hlýrra var að búa í þeim en tjöldum. Ekki voru þetta mikil hús, síst á nútíma mælikvarða. Einn kof- ann þekkti ég gjörla. Hann var í Langeyjum í Skáleyjum, og not- aður þar við fjárgæslu í tugi ára. Nú er hann liðinn undir lok, og víst allir kofar í eyjum, er svipuðu hlutverki gegndu. Til þess að halda uppi minningu hans enn um stund, ætla ég að lýsa honum með nokkrum orð- um. — Hann var byggður upp við lítinn klett, í Ystulangey, þar sem heitir Starartangi, og kletturinn notaður fyrir hliðarvegg. Hann var þrjár áln- ir á breidd, lítið eitt lengri og grafinn niður um eina alin. Manngengur var hann í risi, en mikið lægri út við veggina, því þakið var nokkuð bratt. Fjögra rúðu gluggi í djúpri tótt var á þeim veggnum, er frá klettinum sneri, en enginn á stafni. Öðru megin við gluggann var skot út í vegginn, og þar í hlóðir, er notaðar voru til eldamennsku. Uppyfir í þekjunni var reykháf ur, allmyndarlegur. Torfgaflar voru í báðum endum, á þá lagð- ur mæniás, og reft af honum út á veggina. Á vesturgafli voru dyr. Þær voru svo lágar, að ekki varð komist inn um þær, nema beygja sig all verulega, og mjóar að því skapi. Fyrir þeim var hurð allramger. G-engt dyrum, fyrir þverum gafli, var grjót- bálkur þakinn þurru þangi, og notaður fyrir rúmstæði, þegar búið var í kofanum. Framan við bálkinn var allmikil rekaviðar- stoð, úr gólfi upp í mæniás. Hún var löngu svört af sóti og reyk, þegar ég man fyrst eftir, en stóð vel í sinni stöðú, og hélt uppi þakinu með míkíllí prýði. í stoðinni var haglega gerð ugla, sem lýsislampinn hékk á, þeg- ar kveikt var ljós. Að sjálfsögðu var þarna moldargólf. Að utan var kofinn vaxinn þróttmiklu melgrasi, og var því til að sjá, eins og myndarleg melþúfa. í þessum kofa bjuggu fjár- gæzlumenn í herrans mörg haust, og leið flestum vel. Eldri konur önnuðust þarna oft fjár- gæzlu, og höfðu ungling hjá sér til skemmtunar. — Aðrir við- legukofar munu sízt hafa verið betri. Og ekki voru þessir kofar verri, en verbúðir gerðust á sama tíma. Kona hét Svanborg Péturs- dóttir, Steinssonar í Skáleyjum, þess er framsýnn var og rammskyggn, og skráðar sagn- ir eru til um. Hún var ein-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.