Heima er bezt - 01.12.1955, Qupperneq 13

Heima er bezt - 01.12.1955, Qupperneq 13
Nr. 12 Heima er bezt 365 heyið. Þessi fallegu skip, sem löngum þutu áfram undir þönd- um seglum, urðu þá að fljótandi heystökkum og dröttuðust rétt aðeins áfram undan áratogum stritandi manna. — Það var ekki aðeins einni og einni fleytu, sem hrint var úr vör í eyjunum á gangnadaginn. Heldur heilum flota af fegurstu og beztu skipum. Og nú var ekki stefnt á vastir eftir fiski, eða á djúpmið í leit að hákarli. Öllum var þeim haldið inn á fjörðinn — til lands. Þessum man ég bezt eftir: — Hring úr Hergilsey, Leif og Breið úr Flatey, Blíðfara úr Bjarneyjum, Blika úr Svefneyj- um, Agli og Skrauta úr Hval- látrum, Svan og Draupni úr Skáleyjum, Veturliða úr Sviðn- um. Þessi skip voru misstór, þó öll teldust þau áttæringar, mis- jafnlega búin seglum, sigldu ekki öll jafn vel og formennirn- ir voru ekki allir jafn slíngir við stjórnina, þó allir væru þeir hraustir menn og vel færir í sínu starfi. — Drýgstur á bógn- um mun Egill í Látrum hafa verið, enda stærstur og oft val- inn maður við hvern enda. Ann- ars var reynt að velja úr mönn- um í þessar ferðir, svo sem kostur var á. Þá var nóg fólk í eyjum, og byggð í mörgum sem nú eru í eyði. Róðrar í verstöðv- um ekki hafnir svo snemma hausts, og voru því tómthús- menn, sem voru fleiri og færri í hverri ey, oft í þessum ferðum með bændum. Fimm til sjö manna áhöfn var á hverju skipi. Minna þótti ekki fært að leggja upp með, í marga og stranga fjárflutninga á haustdegi, þegar allra veðra er von og dagur stuttur. Það þurfti að vera hægt að kippa undir vind, jafnvel taka barning alla leið, hagræða seglum í vondum veðrum, brýna skipum undan sjó og gæta þes^ að kindur træðust ekki undir eða hrykkju út á leiðinni o.s.frv. Þegar búið var að iáta 70—80 kindur út í áttæringsskip, var orðið þröngt í því, og mátti hafa vakandi auga á öllu, ef mótvindur var og ferðin tók langan tíma. Eldra fénu er oftast óhætt. Það er vant volkinu. Það raðar sér með borðstokkunum og stendur af sér hverja skvettu eins og vík- ingar. Lömb og yngra féð er lin- gerðara. Það vill bresta kjark, ef ágjöf er til muna, leggjast niður og gefast upp. Verður þá að hafa stöðugt eftirlit með, að það kjarkmeira sem uppi stend- ur, troði ekki hitt undir fótum sér til óbóta. Var hreinasta furða hve vel tókst að forða öllu frá slysum. Það var viðburður á margra ára fresti, að kind biði bana í þessum flutningum, eða meiddist svo að brögð yrðu að. Var þó sjóleiðin 7—10 sjómílur. Fjárflutningarnir, haust og vor, voru einu nafni nefndir LANDFERÐIR —. Þeir stóðu oft lengi yfir, einkum á haustin. Ef þrálát utan átt var, (vestan eða sunnan), var lítt mögulegt að sækja út í eyjarnar með hlaðin skip af fé móti sjó og vindi, meðan ekki var á annað að treysta en seglin og árarnar. Þverseglin gömlu voru þung í vöfum, og ekki hentug í slíkar ferðir. Kom því oft fyrir, að mönnum legaðist í landi dögum saman, ef þannig viðraði, þó sæmilegt veður mætti kallast til annarra verka. — Eftir að seglabúnaður breyttist, og gaff- alsigling var sett á skipin, lag- aðist þetta nokkuð. Með þeim var hægra að sækja út yfir fló- ann, þó blési á móti. En lægði veðrið voru ferðirnar sóttar af kappi, og þá enginn munur gerður á sunnudegi og mánudegi. Því var heldur ekki sinnt, þó ekki væri orðið full- bjart, þegar lagt var af stað að morgni, og farið að rökkva þeg- ar skriðið var í hlöðuna að kvöldi. Formönnum voru allar leiðir kunnar, og kom það sér stundum betur. Fá slys hafa orðið í fjárflutningum á Breiða- firði. Þó eru þau til. Ekki var hægt að hýsa alla þessa sjófarendur inn í bæjun- um, sízt þegar margar skips- hafnir gistu á sama bænum. Einhverri hlöðunni var því breytt í gistihús eða verbúð, meðan á ferðunum stóð. Þang- að báru menn nestisskrínur sínar og þar var sofið um næt- ur. Og það var ekkert neyðarúr- ræði.Þurrt og ilmandi fjallaheyið var hið ákjósanlegasta hvílurúm. En þó svo væri, kom fyrir að ekki var mikið sofið. Mönnum varð oft ærið skrafdrjúgt inni í bæj- unum fram eftir kvöldinu. Margs þurfti að spyrja. Um hey- skapinn, um markaði og sölu- horfur á kjötinu, í hinum ýmsu kaupstöðum, sem fréttir höfðu borizt úr o.s.frv. Og svo var mik- ið spekúlerað í veðrinu, hvernig það mundi verða næstu daga, því nú þurftu menn svo mjög á góðu veðri að halda. — Þegar svo loks var skriðið í bælin, var ekki alltaf góður svefnfriður. Heyið gekk eins og skafbylur um alla hlöðuna. Ollu því einkum strákar, er gaman höfðu af ert-

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.