Heima er bezt - 01.12.1955, Side 27

Heima er bezt - 01.12.1955, Side 27
Nr. 12 Heima er bezt 379 vera smáglettinn og stríðinn, og í þetta sinn varS það sterk- ara en hræðslan. Hann fór því út að sækja nokkra steina og lét þá í húfuna, því að nú skyldi gera djarfa atlögu að djöfsa. Þegar Kristján kemur aftur inn í húsið, hafði kauði fært sig úr stað og var nú kominn fast að stallinum. Kristján henti þá þegar í hann fyrsta steininum, en hitti ekki. En við annað kastið kom steinninn á hann miðjan, og stappaði þá djöfsi niður fótun- um og ókyrrðist mjög. Herti þá Kristján á steinkastinu og tókst að hæfa hattbarðið að framan, en við það lyftist hatturinn upp að aftan og ætlaði þá að hvolf- ast við, en kauði þrífur þá í hattbörðin og þrýsti hattinum niður á hausinn. Og er hann þá sýnilega kominn í mjög æst skap, því hann kemur þá vað- andi fram eftir húsinu. Kom þá að Kristjáni nokkur geigur og leizt honum ekki á að bíða eftir kauða, en snaraðist þegar út úr húsinu. En ekki var hann samt á því að hætta, heldur herðir hann enn upp hugann og safn- ar að sér steinum á nýjan leik. Þegar hann kemur aftur að hesthúsdyrunum, sér hann, að djöfsi hefur fært sig til og er nú kominn rétt inn að gafli á hús- inu. Við þetta brá Kristjáni mjög, því nú varð hann að fara lengra inn í húsið, sem var langt og mjótt, og versnaði aðstaða hans því, bæði til sóknar og varnar. En hann sá, að nú var annaðhvort að duga eða drepast. Og lét hann nú steinkastið dynja á djöfsa og hitti nú beint framan í hann. En við þá send- ingu hoppaði hann upp og hvæsti. Þá leizt Kristjáni ekki á blikuna og tók til fótanna út úr húsinu og til systra sinna. Hann sagði þeim þá, hvað fyrir sig hefði borið og bað þær að koma með sér út í hesthúsið, ef ske kynni, að þær sæju það líka. En þegar þau eru að beygja fyr- ir reykhúshornið, kemur maður ríðandi og fer af baki við hest- húsið, og er það Jónas Guð- brandsson, bóndi í sólheimum. Hann ætlar þá að láta hestinn inn í hesthúsið, en Kristján seg- ir honum að sleppa hestinum á túnið; hann megi kroppa þar meðan hann standi við. Þóttist nú Kristján ekki leng- ur í vafa um, hver hefði verið á stjái í hesthúsinu, því á þeim árum var það almanna rómur, að Móri fylgdi fólki frá Sól- heimum. II. Heyskaparfólkið. Þetta var í ágústmánuði árið 1915. Þá var það aðalstarf Kristjáns að sitja hjá kvíaán- um, eins og svo oft áður, því á þeim árum var víða fært frá, en fór þá úr því að smáleggjast niður. • Þegar líða tók á sumar, var það siður á Hróðnýjarstöðum, að staðsetja ærnar á víðáttu- miklum flóa vestanvert við tún- ið, ef þurrkur var, svo að sá sem gætti ánna gæti verið eitthvað við snúninga heima við. Þennan dag, sem hér um ræð- ir, var þurrkur og var Kristján því heima við. Það taldi hann mikla hamingjudaga, því hon- um leiddist hjásetan. Klukkan 7 um kvöldið fer Kristján að huga að ánum, en bregður þá heldur í brún, því þær voru þá allar horfnar. Datt þá Kristjáni í hug, að þær væru sennilega komnar á fjöll og tapaðar, því mývargur hafði verið um dag- inn, ekki all-lítill og höfðu skepnur þá engan frið og tóku þá stundina snarpa spretti eitt- hvað út í buskann. Þegar Kristján kom fram á svokallaðan Heimri-Hrygg, sá hann stóran fjárhóp fram í Gvendarsundi. Þar er gott beiti- land, víðir og kjarr og stórar stararbreiður. Neðst í sundinu stóð lítið topptjald, sem Kristj- án notaði, þegar vont var veður. Hélt hann nú áfram fram á Nýpurholt, en þar stóð gamalt hjásetuhús, sem smalar notuðu áður fyrr, en var nú að hruni komið. Þaðan sá vel fram í Gvendarsund, og dreifðu ærnar sér þar til og frá í mestu mak- indum. En fleira var þar en ærnar, sem Kristján átti ekki von á að þar væru. Neðst í sundinu sá hann þrjá karlmenn við slátt og þrjá kvenmenn að raka af miklum krafti. Menn þessir voru í bláum stökkum og hárauðum buxum, en þær voru í rauðum blússum og bláum pilsum. Þarna höm- uðust stúlkurnar að saxa heyið og bera í fangahnappa, en þeir slógu af kappi. Kristjáni varð mjög starsýnt á sýn þessa og staldraði við um stund, þar til fólk þetta fór allt í einu upp hjá kletti, sem stend- ur efst í sundinu sunnanvert og þar hvarf það sjónum hans. Og hafði þá sýn þessi staðið um eina klukkustund, frá því Kristj- án sá hana fyrst og þar til hún hvarf. Þess skal líka getið, að vegalengdin frá holtinu, þar sem Kristján stóð og fram í Gvendarsund, telur hann um 6 hundruð metra. í sambandi við sýn þessa lætur Kristján þess getið, að þótt hann liti af fólk- inu, til þess að líta til kinda, þá sá hann það alltaf aftur. Daginn eftir sat Kristján yfir ánum á sömu slóðum. Tekur hann þá eftir því, að tjaldið hallast óeðlilega mikið á aðra hliðina. Hann gekk þá til tjalds- ins, til þess að athuga þetta bet- ur og sér þá, að öll stögin á suð- urhlið tjaldsins eru skorin í sundur niður við hæla, eins og það hafi verið gert með beittum hnífi eða hvössu eggjárni. Þremur dögum síðar fór Einar faðir Kristjáns með allt sitt fólk fram í Gvendarsund til heyskap- ar, því að þar var mokslægja og engin merki þess, að þar hefði verið slegið, þótt gengið væri um allt sundið og það athugað ná- kvæmlega. m. Söngurinn í Klifhausnum. í septemberbyr j un sumarið 1918 átti Kristján að sækja tjald fyrir föður sinn fram í svokall- að Klifsund. Hafði fólkið verið þar síðast við heyskap og kom- ið að heyskaparlokum þar fram á fjalli, en tjaldið af einhverjum ástæðum orðið þar eftir, þegar fólkið hætti að heyja þar fremra. Hann hafði gæfan og stilltan hest til ferðarinnar, því að hann átti að reiða tjaldið á honum fyrir framan sig. Ekkert gerðist sögulegt á leið- inni og eftir hálfan tíma var Kristján kominn í tjaldstað. Tjaldið stóð í brekkukima neð- anhallt við stórgrýtta urð, en

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.