Heima er bezt - 01.12.1955, Síða 30
«*
Úr söfnum
elztu ljós-
myndara á
íslandi
ÞESSI BÓK er einstök í sinni
röð. — Hún veitir ykkur innsýn
í liðna tíð, tíð afa ykkar og
ömmu, og jafnvel ennþá lengra.
Myndirnar eru margvíslegar,
bæði úr bæjum og sveitum.
Þarna sést m. a. góðskáldið
Matthías Jochumsson á tröpp-
um Odda-kirkju, Helgi Helgason
tónskáld með hornaflokk sinn á
Lækjartorgi, Hallgrímur í Guð-
rúnarkoti í réttunum, hefðar-
konur í skrautklæðum, Hannes
Hafstein og sr. Árni á Skútustöðum á leið úr Dómkirkjunni ásamt fleirum, gömlu kaupmennirnir á
Eyrarbakka, bruninn mikli á Akureyri, verzlunarhúsið á Borðeyri, Vopnafjörður, bændur fyrir
bæjardyrum með hjúum sínum o. fl. o. fl. — Myndirnar eru sannur vitnisburður um íslenzkt líf
og íslenzka hætti nokkra áratugi fyrir síðustu aldamót og rétt eftir þau. Þær sýna fólkið við
skemmtanir, í útreiðartúr, í dansi, við spilaborð. Þær sýna lestaferðir og sjóróðra, ýmsa verzlunar-
hætti og vinnandi fólk við hversdagsleg störf. Sumt af því er gleymt eða óþekkt, en það var samt
á sínum tíma fólkið, sem með erfiði og hagleik handa sinna hélt uppi hinu starfandi þjóðfélagi.
Bókaútgáfan NORÐRI