Heima er bezt - 01.12.1957, Síða 2

Heima er bezt - 01.12.1957, Síða 2
\(S jólum Óðum líður að jólum. Nafnið eitt hefir í sér fólginn töframátt, sem alla snertir, unga og gamla. Og í brjósti vor allra býr tilhlökkun til jólanna, jafnvel þótt árin færist yfir. Um aldaraðir hafa jólin verið mesta hátíð og helgistund kristinna manna, en löngu fyrir þann tíma, voru jól haldin um líkt leyti árs í heiðnum sið um norræn lönd, til að fagna þeim atburði, að sól tók að hækka, og rofið var heljarvald vetrar og myrkurs. Þannig voru jólin, þótt í öðrum skilningi væri, hátíð ljóss og birtu, löngu fyrr en kristnir menn héldu þau heilög í minningu um fæðingu Jesú Krists. Og það var í rauninni ekkert undarlegt, þótt vel tækist um sam- einingu þessarra tveggja hátíða úr ólíkri siðabreytni, þar sem þær báðar þjónuðu að vissu leyti sama tilgangi, að minnast fæðingar Ijóss og birtu í mannheimi. En hitt vitum vér og gjörla, að meiri fegurð, meiri birta, meiri mildi hefir fylgt hátíðahaldi kristinna manna en heið- inna. Elin heiðna hátíð var fagnaðarhátíð, en hátíð kristninnar einnig friðarhátíð. Jólin voru í senn fyrir- heit og sáttmáli urn frið á jörðu og guðs velþóknan yfir mönnunum. Þetta tvennt, sem kristnar þjóðir hafa þráð og þrá enn mest allra hluta, enda þótt oss oft virðist annað vera uppi. Jólin hafa öllum hátíðum fremur verið þess megnug að orka á hugarfarið, svo að áhrif þeirra hafa ekki einungis birzt í orði, hcldur einnig í verki. Þau hafa slævt hefndarhug, aukið á mannúð og mildi, hreinsað til í huganum, vakið fegurðarskyn og ást á ljósinu. Um jólin verður allt umhverfi manns að vera hreint, fágað, og prýtt eins og föng eru til hverju sinni. Jafn- vel hin aumustu hreysi fengu á sig fegurðarblæ, þegar um þau hafði verið farið höndum með jólin í huga. En þetta gerðist ekki einungis hið ytra. Einnig hið innra fannst mönnum þörf á að hreinsa til og ræða við guð sinn, annað hvort í einrúmi eða í sameiginlegri guðsþjónustugerð safnaðarins. Mannúðarverk eru þá unnin fleiri en endranær, og þess er ég fullviss, að aldrei gætir minni fordildar í þeim hlutum, en um jólin. Þau verk eru unnin af innri þörf, sem krefst fullnægingar, enda þótt sú þrá blundi oft helzti fast á öðrum tímum ársins. En sá er máttur jólanna, að þau fá jafnvel hinn harðasta stein til að klökkna. Og jólin eru hátíð barnanna. Máltækið segir, „að fæstir vilji sína barnæskuna muna“. Og mun þar vera mikill sannleikur fólginn. En í því efni sem fleirum eru jólin undantekning. Flestir munu vilja minnast bemskujóla sinna, og myndu fagna því af alhug, ef þeir mættu á helgri jólanótt hverfa, þótt ekki væri nema stutta stund aftur í heim bernskunnar. Njóta jólagleð- innar með huga barnsins, fagna jólaljósunum, fegurð þeirra og birtu með jafninnilegum og einföldum huga og þeir gerðu á barnsaldri. En því miður er oss fæstum gefin sú gáfa, að geta horfið inn í hugarheim bamsins og varpað brott daglegum áhyggjum og mati á hlut- unum. En tímarnir breytast. A öllum sviðum þjóðlífsins gerast svo óðfluga byltingar, að þeir, sem rekja aldur sinn aftur til aldamótanna síðustu eða lengra, verða að hafa sig alla við að daga ekki uppi, og standa eftir sem steinrunnin nátttröll um leið og elfur tímans gevs- ist framhjá. Erlendir straumar og erlendir lífshættir flæða inn í þjóðlíf vort án nokkurra hafta né hindrana. Og jafnvel jólahátíðin sjálf, elzt og helgust allra hátíða, hefir ekki getað haldist ósnortin af þeim flaumi. Ekki er það þó svo, að kjarni hennar breytist, hann helzt hreinn og tær á hverju sem gengur hið ytra. En hið ytra form, umbúðirnar, vaxa með ári hverju, og leitast við að hylja hinn dýrmæta kjarna. Þar sem jólahelgin sjálf með minningum sínum, innileika og trú, var fyrr- um meginhátíðin, virðist nú sem vtra prjál sé að verða helzta keppikeflið. Langt er síðan menn tóku að gera sér nokkurn daga- mun um jólin, en sennilega hefir margt af því átt rót sína að rekja til fornra trúarsiða. Menn klæddust nýj- um fötum, ef þess var nokkur kostur, enda var sú þjóð- trúin, að ófreskjan, jólakötturinn, kæmi og gripi hvern þann, sem ekki átti nýja flík. En liggur ekki einmitt þar að baki sú hugsun, að maðurinn verði að endur- nýja sjálfan sig, hugarfar sitt og siði, áður en hann gengur inn í hátíð jólahelginnar. Lengi hafa menn skipzt á smágjöfum til að gleðja hvem annan unt jólin, og ljós voru kveikt svo mörg sem unnt var. Jólagjaf- irnar eru vafalaust sprottnar af þörf mannsins að gleðja aðra ásamt sjálfum sér, og jólaljósin, tákn ljóssins mikla frá Betlehem, er lýsti öllum heimi þegar frá hinum fyrstu jólum. En þessir látlausu, fögru siðir hafa á síð- ustu tímum komizt út í hófleysu í skarti, stórgjöfum og yfirlæti, þar sem hver keppist við annan að verða sem mestur. Og vikum og jafnvel mánuðum fyrir jól hefst kapphlaupið um gullkálfinn í verzlun og við- skiptum, sem alltof oft eru kennd við jólahátíðina sjálfa. Jólaskraut og jólasýningar ber hvarvetna fyrir augu, ekki til þess að fagna mestu helgistund ársins, heldur til 386 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.