Heima er bezt - 01.12.1957, Side 25

Heima er bezt - 01.12.1957, Side 25
Höfundur: TOP NAEFF . Þýðandi STEFAN JONSSON, námsstjóri BhJyJJ SKÓLASAGA FRÁ HOLLANDI OG VIN STÚLKUR HENNAR „Þakka yður kærlega fyrir, herra Iæknir,“ sagði Lilja glöð. Þetta gat maður nú kallað heppni, — að losna við fargjaldið, sem var svo dýrt. Þetta myndi gleðja mömmu, þegar hún skrifaði henni. Farmiðarnir giltu fyrir fyrsta farrými, og það var ekki sízt gaman fyrir þessar ungu dömur, sem ferðuðust nú í fyrsta skipti einar með járnbraut. Lestin var að fara, og þær stöllur flýttu sér inn í vagnana. Andrés leit allt í kringum sig, og teygði sem hann gat úr sínum langa, granna hálsi. Það var eins og hann vantaði eitthvað. „Jenný kemur. — Jenný kemur,“ sagði Nanna glett- in, og andlit Andrésar varð að einu brosi. — Tvær ungar stúlkur sáust koma á harða hlaupum, og litlu síðar stóðu þær másandi og blásandi á brautarpallin- um. Þær höfðu orðið heldur seinar. Pabbi Jóhönnu heilsaði þeim brosandi og sagði: „Kæru, ágætu ungfrúr. Hvaða strákapörum ætlið þið finnið upp á í sumarleyfinu? “ „Ætli okkur detti nokkuð slíkt í hug,“ sagði Maud hugsandi, en Jenný hneigði höfuð til samþykkis, því að hún gat ekki komið upp nokkru orði fyrir mæði. Hún var nær örmagna eftir hlaupin. Hún var eldrauð í andliti og greip andann á lofti og studdi hönd undir síðubarðið, eins og hana kenndi til. Karl horfði á hana áhyggjufullur, án þess að hún tæki eftir því, og sagði síðan, svo lágt, að hún ein heyrði orðaskil: „Þú ættir ekki að reyna svona á þig, Jenný. Það er ekki hollt fyrir þig.“ Oh, — það er engin hætta,“ svaraði Jenný brosandi. „Ég þreytist alltaf svo fljótt. En þreytan líður fljótt úr mér aftur. Nei, það er víst ekkert hættulegt." En ungi læknirinn hugsaði til móður Jennýjar, sem dó svo ung, og honum leizt ekki á dökka bauga undir augum Jennýjar og rauða díla í kinnum hennar, en hann sagði aðeins lágt og innilega: „Þú ættir að hugsa um það, sem ég sagði, og fara varlega. Þú gerir það fyrir mig.“ „Ég vil nú allt fyrir þig gera,“ svaraði Jenný glettnis- lega, en blikið í brúnum augunum og tvíræður hlátur- inn gaf ekki miklar vonir um að hún tæki þetta alvar- lega. En Karl sagði ekki fleira í það sinn. Jóhanna teygði sig út um lestarglugga og kallaði: „Jenný! Þú mátt nota reiðhjólið mitt á meðan ég er að heiman, og Nanna líka. Þið getið notað það á víxl.“ „Þakká þér fyrir,“ kallaði Jenný. „En því tekur þú það ekki með þér?“ „Af því að Lilja á ekkert reiðhjól.“ Lilja var að hugsa um að segja, að hún kærði sig ekkert um reiðhjól, en hún hætti við það. Hún hélt að þá yrði hlegið að sér. — Lestin rann af stað. Vasaklút- um var veifað, og Lilja og Jóhanna sáust brosandi í cinum glugganum, og svo var allt horfið á svipstundu. „Jæja,“ sagði Lilja. „Þá erum við lagðar upp í ferð- ina. Þetta verður yndislegt sumarleyfi." En svar Jóhönnu kældi heldur blóðið í Lilju: „Það veit maður aldrei fyrir fram. Ég hef sagt þér það áður, að frændi og frænka eru ekki.... Ja, hvað á ég að segja.... Þau eru ekki sérstaklega fínt fólk.“ „Fínt fólk. Ég skil ekki, hvað þú átt við.“ „Ég meina, þau eru svona almúgafólk. Ekki þó eins og við. Ég meina, þau eru ekki venjulegt alþýðufólk.“ Nú hafði hún leyst frá skjóðunni. Það var betra að Lilja vissi þetta áður en hún sæi þau, annars yrði hún svo undrandi, er hún sæi frænda og frænku í Rotter- dam. „Eru þau sveitaleg?“ spurði Lilja, eins og hún skildi nú loks, hvað Jóhanna ætti við. Enn var Jóhanna þó ekki ánægð. „Já, að nokkru leyti, og þó ekki beint það. En þau eru ákaflega gamaldags.“ „Nú, þannig,“ svaraði Lilja, eins og úti á þekju. „Rotterdam,“ kallaði lestarþjónninn, og eimlestin stanzaði. „Jæja, þá erum við komnar alla leið,“ sagði Jóhanna. „Þarna, Lilja, taktu töskumar. Ég tek regnhlífamar og hattakassann. Hafðu tiltækan farseðilinn. Herra lestar- stjóri! Hvar fömm við af lestinni?” Heima er bezt 409

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.