Heima er bezt - 01.12.1957, Síða 26

Heima er bezt - 01.12.1957, Síða 26
Eftir stutta stund stóðu þær stöllur á brautarpallin- um. Þá komu þær auga á aldraða, gildvaxna konu í glansandi grænum kjól, sem lagður var með dökkum leggingum. Hatturinn var eins og lítill pottur á hvolfi, skreyttur með gulum blómum. Þessi gildvaxna kona, með eldrautt, brosandi andlit, olnbogaði sig í gegnum mannþröngina, eins hart og hún komst, lágvaxin og hnellin. Jóhanna hefði helzt viljað snúa inn í vagninn aftur í sæti sitt, svo skelkuð varð hún. Þetta var frænka Miet í Rotterdam. „Hér eru þá blessuð börnin komin,“ hrópaði þessi brosandi kona. „Góðan daginn, Jóa litla. Þú lítur út eins og fullorðin stúlka. Hvernig líður pabba og mömmu? Vel. Það er ágætt. Og systir þín og hennar tilvonandi eiginmaður. Líður þeim líka vel. Agætt er það. Og þetta er líklega vinstúlka þín. Hvað heitir hún nú. Van der Horst. Er það ekki rétt? Nei, Terhorst,“ Ieiðrétti Jóhanna. — Jóhönnu dimmdi fyrir augum, er hún hlustaði á vaðalinn í frænku sinni, en Lilja stóð þögul, eins og lostin eldingu. Hún hneygði sig virðulega, eins og hún hefði æft sig í daginn áður, og sagði: „Kæra frú.“ Miet frænka þreif í hönd Lilju og þrýsti hana inni- lega, með sinni grófgerðu, hörðu hendi. „Komið þér sælar, ungfrú,“ sagði hún hlýlega. „Ég heiti Lilja.“ „Einmitt það. Komið þér sælar, Lilja. Ég skal taka við töskunum. Flýtið ykkur nú, elskurnar mínar. Ég kom með hestvagn með mér.“ „Það var ágætt,“ hugsaði Lilja. „Þá komumst við þó að minnsta kosti burt frá þessu fólki.“ En Lilja hugsaði sem svo: Hvílík manneskja! Það var’ grátlegt, hvað Jóhanna átti leiðinlega frænku. Ungu stúlkurnar fengu beztu sætin í vagninum, eftir bendingu frá „frænkunni“, en sjálf settist hún í aftur- sætið. Það dimmdi altaf meira og meira yfir svip Jó- hönnu, en Lilja mátti gæta sín með að skella ekki upp úr. „Þetta hefði ég átt að vita,“ hugsaði Jóhanna í angist sinni, — „og þá hefði ég aldrei farið að bjóða Lilju með.“ Frænka hennar leit alvarlega á hana og sagði: „Þú ert eitthvað svo þreytuleg, Jóa litla. Þolir þú ekki að aka í hestvagni?“ „Jú-jú, frænka,“ svaraði Jóhanna og reyndi að láta sem ekkert væri. „Það þola samt ekki allir,“ blaðraði frænkan. „Eg þoli til dæmis aldrei að aka mjög langt, og Piet þolir það alls ekki heldur. Ég fæ svo illt í magann, eins og ég ætli að selja öllu upp, — en sem betur fer hefur það aldrei komið fyrir mig ennþá. Það myndi nú líka vera saga til næsta bæjar, ef ég færi að kúgast uppi í vagni, fullum af fólki. Ég veit ekki, hvað ég ætti af mér að gera á eftir.“ Lilja leit út um vagnrúðuna og reyndi að halda niðri hlátrinum, en Jóhanna reyndi að halda uppi samtali við frænku sína: „Já, það væri mjög leiðinlegt,“ sagði hún, með uppgerðarlegri hluttekningu. Þessi ökuferð ætlaði aldrei að taka enda. Allt í einu sneri frænka sér snögglega að Lilju: „Ég er eiginlega alltaf hálfhrædd, þegar ég er í ökuferð. Ert þú ekki líka hrædd, Lilja? í götuumferðinni geta hestar alltaf fælzt. Hér er alltaf svo mikil umferð í Rotterdam og steinlagðar göturnar svo hálar. Gættu þess að halda þér vel.“ Lilja, sem hafði athugað húðarjálkinn, sem gekk fyrir vagninum, kvaðst hvergi smeyk. „Ha, er það mögu- legt,“ skrækti frænkan, en í því stanzaði klárinn og var þá komið á leiðarenda. Frænkan var þá væntanlega laus við magaveikina. Hesturinn hafði stanzað við meðalstórt, ellilegt hús í útjaðri borgarinnar. „Gætið ykkur, stúlkur litlu, þegar þið hoppið út úr vagninum,“ heyrðist í frænkunni, með hræðslurómi. „Mikið held ég að Píet frændi verði glaður, að þið skuluð báðar vera komnar hér til okkar, heilar og hraustar.“ Píet frændi stóð snöggklæddur í dyrunum, bros- andi út undir eyru, og hélt á reykjarpípunni í vinstri hendi. „Velkomin, frænka, velkomin. Ég er svo glaður að hafa fengið loksins gest úr fjölskyldu minni eða ætt- fólki. Þið verðið að fyrirgefa mér, að ég hef leyft mér að smeygja mér úr jakkanum. Það er svo heitt í dag. Slíkt ætti ekki að gera til innan fjölskyldunnar.“ Jóhanna fyrirvarð sig, en Lilja vorkenndi Jóhönnu. Hvílíkur frændi! „Ef til vill vilja ungu stúlkurnar fyrst fara upp í svefnherbergið og laga sig svolítið til,“ sagði frænka og fylgdi þeim upp. Mikið urðu þær fegnar, er þær litlu síðar stóðu einar eftir í hinu dimma og ósmekk- lega skreytta herbergi, sem átti að vera þeirra sameigin- lega heimili næstu daga. Fyrst stóðu þær dálitla stund steinþegjandi og störðu hvor á aðra, en svo settist Jó- hanna í skársta stólinn, sem stóð þarna inni, og fór að hágráta, en Lilja stóð og horfði á hana og skellihló. Það fór því brátt svo, að Jóhanna hló og grét á víxl. Þessar litlu skrautdúfur, af fínum, hreinlegum heimil- um, litu agndofa í kringum sig, þar sem skærir litir veggfóðursins eins og æptu á þær. „Ég þoli ekki að vera hér stundinni lengur,“ dæsti Jóhanna. „Verst var að ég skyldi taka þig með, Lilja mín. Ég vissi að frændi og frænka voru dálítið skrítin, en að þau væru svona einkennileg og gamaldags, það datt mér aldrei í hug.“ En Lilja var hin rólegasta og lét engin vonbrigði í ljós. Hún sagði vingjarnlega og róandi: „Vertu róleg, Jóhanna mín. Maður veit aldrei, hvern- ig allt fer. Vel getum við látið okkur líða ágætlega hér. Frænka þín er reglulega alúðleg. Ég myndi ekk- ert skammast mín fyrir að láta sjá mig á götu með henni, þótt hún væri margföld frænka nu'n. Hún er heldur ekki svo náskyld þér. Hún er móðursystir mömmu þinnar, systir ömmu þinnar, sem hefur tekið „niður fyrir fyrir sig“, og þannig breyzt í framkomu.“ Jóhanna lifnaði öll við þessa ræðu, þótt hún hefði áður sagt Lilju þetta allt, og fannst þetta bjarga sér 410 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.