Heima er bezt - 01.02.1958, Page 5

Heima er bezt - 01.02.1958, Page 5
lygilegt hafi það þótt í ungdæmi sínu, að skáld gætu fæðzt í Vopnafirði, að kæmist kvis á það, að unglingar færu að ieggja sig eftir tónsmíðum, þá hafi verið um það rætt í hálfum hljóðum, hvort ekki mundi vera að búa um sig geðbilun í þeim. í þennan tíma var litið á kirkjuorganista og menn, sem eitthvað skynbragð báru á nótur sem hálfgert ver- aldarundur, enda var tónmenning þjóðarinnar á frum- stigi. Með sönglagaheftum sínum hafði Jónas Helgason að vísu unnið mikið og gott brautryðjandastarf að út- breiðslu fallegra smásöngva, en tónskáld átti þjóðin ekki mörg, og hið eina, sem nokkuð kvað að, var Sveinbjörn Sveinbj örnsson. En hann var búsettur erlendis og var fátt kunnugt hér heima af tónsmíðum hans nema þjóð- söngurinn. Þrátt fyrir alla fátækt í tónlistarefnum hérlendis og þá ekki sízt í þessari afskekktu sveit, var Björgvin far- inn að brjóta heilann um tónstigakerfin og hlutföllin milli tóntegunda langt innan við fermingu og lærði af eigin rammleik að skrifa upp bæði takt- og tónrétt þau lög, er hann kunni. Auðvitað varð hann að leggja hönd að öllum venju- legum sveitastörfum í æsku sinni og það því fremur, sem faðir hans andaðist, er Björgvin var ekki nema 16 ára. Heldur var hann óhneigður til líkamlegrar vinnu, eins og oft verður um menn, sem meiri hæfileika hafa á öðrum sviðum. Finnst þeim moldarverkið miða lítið til þeirrar áttar, sem þá dreymir um. Þó var Björgvin laghentur, ef hann vildi, svo sem verið hafði föðurafi hans, og kom það sér vel seinna, er hann fékk helzt at- vinnu við húsasmíðar vestan hafs. Ekki lýsir Björgvin sjálfum sér glæsilega um sextán ára aldurinn. Segist hann hafa verið þunglyndur og ein- rænn og orðhákur hinn mesti, og hafi á þessum gelgju- árum kennt mikils jafnvægisleysis í lundarfari sínu. An efa hefur hann snemma verið orðheppinn og tannhvass, ef því var að skipta, en á hinn bóginn mildur og blíður sem barn. En það alkunna, að sálarstrengir listamanna eru oft þandir milli andstæðra skauta, og er lundarfar þeirra því iðulega viðkvæmara og vanstilltara en venju- legra borgara. En bezta afhvarf hans í þessu ölduróti gelgjuskeiðsáranna var ofurlítið stofuorgel, sem hann hafði eignazt. Á þessum árum byrjar Björgvin á því að fást við að semja sönglög og raddsetja þau. Fyrsta lagið, sem hann samdi, var við sálminn „Þitt nafn er, jesú, unun öll.“ Það lag endursamdi hann þó síðar. En fáum dögum síðar gerði hann lag við hinn alkunna sálm Hallgríms Péturssonar: „Bænin má aldrei bresta þig“. Skapaðist það lag í huga hans fyrirhafnarlaust og svo að segja á svipstundu með öllum röddum, og er það prentað eins og hann gekk frá því seytján ára unglingurinn í Presta- félagsritinu 1931. Næstu árin samdi hann nokkur smá- lög, og voru þá þegar farnar að skapast í huga hans tónhendingar, sem hann notaði mörgum árum síðar í hin miklu tónverk, er hann gerði við Ijóð Guðmundar Guðmundssonar. Systkini Bjögvins þrjú höfðu fluzt vestur um haf nokkrum árurn áður en faðir þeirra dó, og undu þar allvel hag sínum. — Þó brá elzti bróðirinn sér heim skömmu eftir að faðir hans andaðist, í því skyni að taka við búskap á Rjúpnafelli, en ekki undi hann sér þar í fásinninu eftir utanför sína. Varð þetta til þess, að öll fjölskyldan hvarf að því ráði að flytja til Amer- íku þrem árum síðar, sumarið 1911. Ekki var Björgvin létt um hjartarætur, er hann yfir- gaf heimasveit sína og sá ættjörðina hverfa í hafið. En bak við söknuð hans vakti þó einhver von um, að fyrir- heitna landið mundi ef til vill verða þess megnugt að greiða honum veg að takmarki drauma hans. Það eitt sætti hann við þessa ráðabreytni. Þegar vestur kom, tók við fyrsta sprettinn lífsbarátt- an hörð og miskunnarlaus. Þó gafst honum þarna tæki- færi til að heyra miklu meira af sígildri tónlist, einkum kirkjutónlist, en hann hafði áður átt kost á, og einnig kynntist hann nokkrum tónlistarmönnum, sem miðluðu honurn af þekkingu sinni og örvuðu hann til starfa. Allt þetta féll eins og dögg yfir sál hins unga listamanns. Einkum var hann hrifinn af oratoriustílnum og samdi hann fyrsta helgikór sinn, „í upphafi var orðið“, árið 1914. En nú dundi yfir heimsstyrjöldin fyrri og með henni kreppa á atvinnusviðinu. Þegar kom fram á sumarið 1915 mátti heita, að Winnipeg væri orðin gersamlega dauð borg, byggingarnar stóðu hálfreistar, en hvergi heyrðist hamarshögg. Höfðu Björgvin og bræður hans einkum stundað byggingarvinnu, en sáu nú, að annað hvort yrðu þeir að ganga í herinn eða flýja út á lands- byggðina. Völdu þeir seinni kostinn og hófu búskap í svonefndum Vatnabyggðum, í Leslie, Sask. Þarna átti Björgvin síðan heima um sjö ára skeið. Á þessum árum samdi hann tónverkin við hina miklu ljóðaflokka Guðmundar Guðmundssonar: Strengleikar og Friðnr á jörðu. Skrifaði hann þau við borð úr óhefl- uðum kassafjölum, er hann hafði rekið saman á frum- býlingsárum sínum, milli þess sem hann sinnti gegning- um og annarri sveitavinnu. Tóku nú sveitungar hans að veita tónlistarstarfsemi hans vaxandi athygli, og var hann brátt fenginn til að æfa kóra og stjórna söng við öll hátíðleg tækifæri þar í byggðinni. Mesta uppörvun fékk hann þó við það, er vinir hans í Elfros létu sér detta það í hug að senda píanósnillingnum Percy Gran- ger sýnishorn af tónsmíðum hans. En þessi frægi maður lét svo um mælt, að þessi tónverk hans væru betri en flest fræg nútímatónskáld gætu samið. Gáfu þessi lof- samlegu ummæli tónskáldinu byr í seglin og stæltu stjálfstraust hans, sem stundum hafði fengið ágjöf og verið hikandi. Einnig var nú farið að syngja tónverk hans á samkomum meira en áður, og vöktu þau athygli söngvinna manna með þrótti sínum og þokka. Eftir að Björgvin fluttist aftur á ný til Winnipeg, urðu mikil og góð þáttaskipti í lífi hans, er hann kvænt- ist vorið 1923 Hólmfríði Frímann, sem fædd var vestra en ættuð úr Kelduhverfi. Var hún ekki aðeins hin feg- ursta mær, heldur einnig gædd hinni elskulegustu skap- Framhald á bls. 69. Heima er bezt 43

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.