Heima er bezt - 01.02.1958, Qupperneq 10

Heima er bezt - 01.02.1958, Qupperneq 10
annars gáfu |>ær þeim bolakálf — heiðinn þó — og átti hann að túlka þakklæti þeirra fyrir greiða í sambandi við heimsóknina og sýna um leið hið eilífa líf náttúr- unnar, þegar honum yxi fiskur um hrygg. Munkarnir þágu gjöf þessa með þökkum og ólu vel bolakálfinn. Tók hann miklum framförum og varð stór og sterkur og óviðráðanlegur. Þá létu þeir hann upp í fjöllin, og þar varð hann stærri en þau, og þar lét hann lífið úr elli. Má sjá annað hornið á honum þar sem Einhyrningur er, en svo var langt á milli hornanna, að hitt hornið kom fram austur í Hornafirði, og af því hlaut hann nafn sitt. Sést af því, karl minn, að þessu systragraðneyti hef- ur verið vel í skinn komið.“ Ein kaupstaðarferð var oftast farin á þeim árum á ári hverju. Var hún farin á vorin eftir fráfærur, þegar búið var að þvo ull og þurrka. Voru þá oftast nokkrir menn í hóp í ferðunum og hjálpuðu hver öðrum og höfðu félagsskap í lestaferðinni, þar til kom heim, eftir nálega þrjár vikur. Þótti það happ, þegar Símon var einn af félögunum í lestaferðinni. Oftast sóttist hann þá eftir að vera fremstur í lestinni, til þess að taka á móti gestum, er heimsóttu lestina, og svara og svala forvitni þeirra. Hafði hann gaman af því að ganga fram af gestunum með andsvörum sínum, sérstaklega ef það voru ungir menn, sem hlut áttu að málum. Þannig svaraði hann manni, meðal annars, sem spurði hann, hvað hann héti og hvaðan hann væri: „Ég heiti Kuntus frá Kríkuskellastöðum." Gesturinn varð alveg hissa á svarinu og vissi ekki, hvernig skyldi taka þessu, enda kom þetta alveg óvænt. Símon hafði gaman af því að gera menn steinhissa með svörum sínum og sögum. Hann komst þannig að orði um þetta, að svipurinn á andliti þeirra sumra minnti sig á svipinn á einum af geldingunum sínum (sauðun- um), hann „Gráaula sinn“. Hann hefði verið fremur grunnhygginn, en allir hinir geldingarnir sínir hefðu verið sérlega vel gáfaðir og vel að sér í sauðamenntum, hrekkjóttir, þverir og óþægir. < Margar fleiri sagnir munu vera til um Símon, sem bera vott um frábæra karlmennsku hans og hugkvæmni. Auk þess sýna þær hina sérkennilegu skapgerð hans og glettni, ásamt fyndni og glaðværð. Faðir minn hafði þau orð um hann, að hann væri alltaf að gera tilraunir til þess að koma samferðamönnum sínum í gott skap. Og mér fannst alltaf verða léttara yfir honum, þegar Símon bar að garði. Þeir voru vinir, en mest bar á glettni, glaðværð og kímni í samræðum þeirra. Afkomendur Símonar eru margir, og eru þeir allir í röð hinna myndarlegustu manna og kvenna, sérlega dugmiklir og vel gefnir athafnamenn. Mér þótti hlýða að skrifa hér stuttan þátt um bónd- ann Símon Jónsson á Jórvíkurhryggjum og rifja upp um leið ýmsar æskuminningar um hann og sögur, sem aðrir sögðu mér, er voru honum kunnugri en ég. Það var í barnæsku, sem ég sá hann og kynntist honum. Ég hef reynt að grafa upp sagnir um hann, sem sýndu aðra hlið á skapferli hans en þá, er hér hefur verið getið. En það hefur ekki tekizt. Allt ber vott um, að hann var manndómsmaður mikill, mjög harður af sér og eldsnar í öllum hreyfingum, fjörmikill og kappsamur. En jafn- framt var hann tryggur vinum sínum, greiðvikinn og gestrisinn. Væri ráðizt á hann, þá varði hann sig vel og hratt árásinni á þann veg, sem árásarmanninum kom illa, en aldrei með vopnum illinda eða haturs. Símon andaðist á Jórvíkurhryggjum, þá ekkjumaður 94 ára að aldri, 12. október 1906. Vann hann að ýmsum heimilisstörfum, t. d. slætti, fram undir andlát sitt. Annars er eftirmæli Símonar Jónssonar að finna í blaðinu Þjóðólfi árið 1906, 48. tölublaði, á blaðsíðu 185, eftir X, og er talið vafalaust, að þau séu eftir dr. Jón Þorkelsson. Ber ritháttur og ættartölufróðleikur eftir- mælanna vott um það. Er þar greint nákvæmlega frá ætterni Símonar. Meðal annars er sagt frá því, að Símon hafi verið skyldur Magnúsi sálarháska og náskyldur sr. Jóni Sigurðssyni, sem prestur var á Mýrum í Alftaveri og seinna á Prestbakka. Gekk orðrómur um það, að sr. Jón Sigurðsson væri launsonur séra Jóns Þorlákssonar skálds á Bægisá. Símon var kunnugur séra Jóni frænda sínum og þekkti söguna um fæðingu hans og vísu skálds- ins: „Á Bægisá ytri borinn er býsna valinn kálfur,“ o. s. frv. En bæði áður og eftir að séra Jón varð prestur, erti Símon hann stundum með því að kalla hann bara kálf (ekki Bægisárkálf). Um orðaskipti þeirra frændanna er þessi saga: Það var kunnugt, að séra Jóni þótti áfengir drykkir góðir, þó ekki væri hægt að kalla hann drykkjumanm. Þegar hann var undir áhrifum áfengis, var hann stund- um nokkuð ertinn. Eitt sinn, þegar svo var ástatt fyrir séra Jóni, bar fundum þeirra saman, Símonar og hans. Tók þá séra Jón að erta Símon. Kvað hann Símon koma sjaldan í kirkju og vera harðan í horn að taka við sam- býlismann sinn, en bætti því við, að kristnir menn ættu að elska hver annan. Þá svaraði Símon: „Þú ætlast þó varla til þess, séra karl minn, að ég fari að elska mad- dömuna þína. Og ég ætlast heldur ekki til þess, að þú farir að elska garminn hana Gunnu mína. Ég held, séra karl minn, að menn ættu að láta sér.lynda að hugsa um sína eigin kálfa, en skipta sér ekki af hinum.“ DYGÐIR VALLHUMALSINS Himneska heillagrasið held ég sé vallhumall, margs konar meiðslaslasið mýkir hann dygðasnjall, verki, tök, væmur, mein, hósta með hryglu græðir og hjartveiki, er brjóstið mæðir, listajurt lífsins hrein. (Gömul visa). 48 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.