Heima er bezt - 01.02.1958, Síða 26

Heima er bezt - 01.02.1958, Síða 26
unum.“ Jennýju fannst tungan loða við góminn. — „Hafðu blöðin í höndunum, annars veiztu ekki, hvað þú átt að gera við þær. — Tjaldið upp!“ „Þetta gengur allt ágætlega, þegar miðað er við að þetta eru byrjendur í Iistinni,“ hvíslaði fólkið í salnum. En svo var eins og lágt undrunaróp færi um salinn, þegar Jenný gekk inn á leiksviðið. Hrifningaralda fór um salinn. „Uss — uss,“ heyrðist hvíslað, og þá varð alger kyrrð í húsinu. — Forspilið hljómaði hátíðlega, og fólkið beið með öndina í hálsinum. Grafkyrr og virðuleg stóð Jenný við hljóðfærið í björtu Ijósi á hvítum silkikjól. Síða, jarpa hárið bylgj- aðist urn axlir hennar, og sló á það rauðleitri slikju. Hún starði • björtum, geislandi augum beint fram, og það var eins og Ijósbaugur hreinleikans geislaði um hvarma hennar og augu. Hún líktist lítið ódælli skólastelpu, í snjáðum, dökkum skólakjól, þar sem hún stóð þarna fínleg og fögur í björtu leiksviðsljósinu. Skær, eins og silfurbjölluhljómur, hljómaði hin fagra, hrifnæma rödd Jennýjar um salinn. — Hljóðlega, veikt, en þó þrungið lífsfjöri æskunnar, söng hún hæstu tóna lagsins án sýnilegrar áreynslu. Söngurinn var svo heill- andi, að nokkur stund leið frá því að hún sleppti síðasta tóninum, þar til dynjandi lófaklappið leysti alla úr viðj- um hrifningarinnar. Næsta lag var léttara og Ijóðið í samræmi við lagið. Andlit Jennýjar varð brosmilt og glatt, er hún söng þetta hugljúfa lag. — „Guði sé lof að hún brosir,“ tautaði mamma Lilju og Nönnu. Hún gat ekki hugsað sér Jennýju svona alvarlega. En tvö næstu Iög voru aftur hátíðleg og alvarleg. Jenný varð að syngja nokkur lög enn, áður en tjaldið féll, en þá brauzt hrifningin út af fullum krafti. Áheyr- endur veifuðu, hrópuðu og kölluðu: „Da capo, da capo — aftur — aftur!“ heyrðist hvaðanæva úr salnum. Þetta var stórkostlegur sigur. Tjaldið var dregið aftur upp. Þarna stóð Jenný, og létt brosið lék um varir hennar. Hún hneigði sig og leit yfir salinn, en kom ekki auga á nokkurt andlit, sem hún þekkti, en einhver ólýsanlegur ylur fór um hana alla, og hún fann, að eitthvað stórbrotið og þó yndislegt var að gerast. Lítil stúlka færði henni blóm- vönd í fögrum umbúðum. „Til mín?“ sagði hún undr- andi. Hún leit ekki á miðann til að vita, frá hverjum blómin væru, en faldi sjóðheitt andlit sitt á bak við blómvöndinn, en fólkið klappaði látlaust. „Reyndu að syngja eitt lag enn,“ hvíslaði ungfrú Swart, „eða ertu kannske of þrevtt?“ „Nei, ég er ekki þreytt,“ svaraði Jenný hljóðlega, „en ég held að ég kunni ekki fleiri lög. Ég hef ekki æft fleiri.“ „Jú, þú hlýtur að kunna eitthvert lag utanbókar,“ sagði ungfrúin. Eitthvað hvísluðust þær meira á, en svo settist ungfrú Swart aftur við hljóðfærið. Fólk hætti samstundis að ldappa, er það sá, að Jenný ætlaði að verða við óskum þess. Þýðlega og angurblítt ómaði forspilið, og svo hljóm- aði hið heillandi ómþýða lag: „Heima vil ég vera.“ — Rödd Jennýjar var styrk og angurblíð. Það var, sem orð Ijóðsins fengju aukin áhrif, er þetta heimilislausa bárn söng af hrifningu hyllingarljóð heimilisins, sem hún þráði, en hafði aldrei eignazt á svipaðan hátt og önnur börn. Jenný varð ofurlítið ósyrk, og blómin titruðu í hendi hennar, en hún lauk laginu með hálflokuð augu, eins og í draumi. Áheyrendur sátu hljóðir, og tár sá- ust í augum margra. Laginu var lokið. í salnum ríkti dauðakyrrð. Jenný stóð augnablik hreyfingarlaus. Tjaldið féll, og dynjandi lófaklapp og bravó! bravó! hljómaði um salinn. En tjaldið var ekki dregið upp aftur, hvernig sem fólkið lét, því að söngkonan unga, Jenný van Marle, sat inni í búningsherberginu og grét með þungum ekka. Þetta var afturkastið eftir æsandi taugaspenning og hrifnæmar gleðistundir. — Nanna, Lilja og Jóhanna hlupu fram og aftur með kölnarvatn og ískalt öl. Þær voru alveg í uppnámi eftir allt, sem skeð hafði þetta kvöld. „Ó, Jenný, þetta var svo dásamlegt. Áheyrendurnir tárfelldu. Þeir urðu yfir sig hrifnir. Ungfrú Swart segir, að þú getir orðið heimsfræg söngkona. — Ó, gráttu nú ekki svona. Finnst þér þetta ekki vndislegt?“ Jenný brosti gegnum tárin og sagði: „Ég er viss um, að Huug bróðir verður glaður.“ En Jenný titraði enn þá og hallaði sér skjálfandi upp að Nönnu, sem settist hjá henni. Enn þá voru nokkrar skrautsýningar og smá leikþættir, en þeir vöktu enga hrifningu. Áheyrendur voru enn undir áhrifum söngsins. Karl van Laer, lækna- neminn, bróðir Jóhönnu, sást læðast út með tárin í aug- unum. Allir þátttakendur voru sammála um, að þetta hefði allt tekizt ágætlega, og stundarkorn sátu þeir og ræddu um leiklist og söng. Jenný fór nú smátt og smátt að hressast. Hún ók heim til sín með foreldrum Coru Berends. Heima hjá Jennýju var allt ljóslaust. Húsið var eins og myrkur klumpur í götunni, þar sem öll hús voru upplýst. Berends kaupmaður opnaði forstofudyrnar með lykli, sem Jenný hafði fengið honum. Frændi og frænka voru háttuð, og Berends kveikti ljós í forstofunni, um leið og hann opnaði dyrnar. Frúin fór ekki út úr vagn- inum, cncla var hún byrjuð að losa um klæði sín. Um leið og Jenný kvaddi hana, sagði hún hlýlega: „Ég vildi, að ég hefði haft tíma til að búa um þig og koma þér í rúmið. Ég vona, að þú sofnir nú fljótt, því að nú ertu reglulega þreytt. Sofðu nú rótt, og dreymi þig vel, elsku barnið mitt.“ Og Berends kaupmaður kvaddi hana innilega og sagði: „Góða nótt, ,prímadonnaí.il Síðan ók vagninn burtu. Framhald. .64 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.