Heima er bezt - 01.02.1958, Side 31

Heima er bezt - 01.02.1958, Side 31
og honum þóknaðist. En hún var þá kannske enginn einfeldningur, hún maddama Karen. En skyldi hún vera ánægð með hann sem tengdason? Það gat enginn sagt með vissu, bara það, sem vinnufólkið sleppti út úr sér, að þau töluðu varla orð saman, og hún var svo köld og óþekkjanleg til skapsmunanna. Allt var þetta svo sem skiljanlegt. Útlitið sagði til sín. Heilsan var á förum, og svo það, sem tók út yfir allt, ef sálin var ekki heldur í góðu lagi. Það var nú það, sem enginn gat vitað. Svo kom sá mikli dagur, þegar allt búið á Hofi var látið undir hamar uppboðshaldarans. Þann morgun kallaði maddaman á ráðsmanninn á eintal. Hún sagði, að hann mætti velja úr ærhópnum þær, sem hann fengi í kúgildið og tíu ær að auki, sem hún ætlaði Rósu. Hann hafði ekkert fyrir því að þakka henni þennan eina vináttuvott, sem hún sýndi honum. Svo átti Rósa að fá fallegustu kúna úr fjósinu. Hitt var allt selt, nema reiðhestarnir þeirra prestshjón- anna og Bleikur Rósu og hryssa með tvæveturt tryppi, sem hún átti líka. Sýslumaðurinn hélt uppboðið, vegna þess að Rósa var ekki myndug ennþá. Kristján bjóst við því, að maddaman ætlaði að rausn- ast til að gefa dóttur sinni reiðhesta foreldra hennar. Hann var gramur í skapi þennan dag. Þarna varð hann að koma fram sem hver annar vandalaus maður og skipta sér ekki af neinu, vegna þess að hann var ekki búinn að opinbera trúlofun sína með dótturinni. Hefði honum dottið í hug, að kerlingarálkan snerist svona móti honum, þá hefði hann haft einhver ráð með að ná í hringana um nýjárið. Hann keypti eina kú og tuttugu ær. Ólíklegt, að hann þyrfti að borga þær. Þær gætu sjálfsagt komið upp í arfshlutann hennar Rósu, hugsaði hann. Hann gat ekki annað fundið, en hreppsbúar vildu helzt sneiða hjá hon- um og ekkert við hann tala. Hann var heldur ekkert að auðmýkja sig fyrir þeim, og honum kom því varla orð af vörum allan daginn. Framhald. Björgvin Guðmundsson Framhald af bls. 43. -—-—--------------------- gerð og þar að auki frábærlega myndarleg húsmóðir. Hefur hún alla stund síðan verið manni sínum mesta hollvættur og heimili þeirra rómað fyrir gestrisni. í Winnipeg gerði Björgvin helgikantötuna: „Til komi þitt ríki“, og var hún flutt af söngflokki undir stjórn tónskáldsins í Fyrstu lúthersku kirkju þar í borg ásamt nokkrum tónverkum fleiri, með aðstoð góðra listamanna. Vakti þessi konsert svo mikla athygli, að Vestur-íslendingar hófust nú handa um að safna fé til að kosta hann til tónlistamáms. Kom þá fyrst í ljós, hversu vinsæll Björgvin var, og hvílíks álits hann naut vegna tónsmíða sinna, því að peningarnir streymdu að • úr öllum áttum. Haustið 1926 héldu þau hjónin til London, þar sem Björgvin hóf nám í Royal College of Music. Lauk hann þar námi á skömmum tíma og tók burtfararpróf vorið 1928. A þessum árum samdi hann að mestu leyti orator- íuna við Þiðrandakviðu Stephans G. Stephanssonar, sem mun vera hans mesta tónverk. Eftir komu þeirra hjónanna aftur til Winnipeg sum- arið 1928, tók Björgvin til óspilltra málanna þar sem fyrr var frá horfið við tónsmíðar alls konar og tónlistar- starfsemi, auk þess sem hann stundaði tímakennslu, og gat hann nú fremur en áður einbeitt sér að hugðarefn- um sínum. Stofnaður var karlakór, sem hann æfði, og síðar tók hann við stjórn blandaðs kórs, sem nefndist The Icelandic Choral Society, auk þess sem hann tók brátt við söngstjórastarfi og organleikarastörfum við Sarnbandskirkju, eins og fyrr er getið. Mátti það telj- ast með helztu tónlistaratburðum meðal Islendinga í Winnipeg þessi árin, að Choral Society flutti veturinn 1930—31 kantötu þá hina miklu, sem Björgvin hafði gert við hátíðarljóð Davíðs Stefánssonar 1930, við al- menna hrifningu áheyrenda. í þann sama mund barst honum tilboð frá Akureyri um að taka við söngkennslu við Menntaskólann og Barnaskólann þar. Blossaði þá heimþráin upp í honum á ný, og tók hann þessu boði og hvarf heim til ættjarðarinnar að áliðnu sumri árið 1931. Það yrði of langt mál að fara að gera grein fyrir allri tónlistarstarfsemi Björgvins Guðmundssonar eftir að hann fluttist heim til ættjarðarinnar. Kennslu hefur hann haft á hendi við Menntaskólann á Akureyri til þessa dags. Arið 1946 var hann af bæjarstjórn í heiðurs- skyni leystur frá kennsluskyldu við Barnaskólann með óskertum launum, svo að honum mætti gefast betri tími til tónsmíða. Skömmu eftir heimkomuna stofnaði hann Kantötukór Akureyrar, sem flutt hefur mörg af stórverkum hans, við mikla hrifningu manna hér norð- anlands, auk þess sem hann hefur farið í söngför til Norðurlanda við góðan orðstír. Hefur Björgvin haft á hendi stjórn kórsins til skamms tíma. Alls mun hann hafa stjórnað söngflokkum í 38 ár og samið á sjötta hundrað tónverk, stærri eða minni, en sum af þeim umfangsmeiri en dæmi eru til eftir nokkurt annað ís- lenzkt tónskáld. Fáir munu gera sér grein fyrir því feikna starfi og þolinmæði, sem til þess þarf að þjálfa söngflokka, af misjafnlega söngvönu fólki. Er það efalaust hið mesta stritverk. En til slíkra starfa hefur Björgvin verið óþreytandi. En þrátt fyrir það, að hann hefur löngum verið önnum kafinn við þessi viðfangsefni og tónsmíð- ar sínar, hefur hann einnig fundið tíma til að reyna sig við önnur viðfangsefni. Árið 1941 var sýnt eftir hann á Akureyri leikritið Skrúðsbóndinn, undir ágætri Ieik- stjóm Ágústs Kvaran, og hlaut það svo mikla aðsókn, að sjaldan hefur leikur verið betur sóttur í höfuðstað Norðurlands. Einnig hefur hann skrifað sjálfsævisögu sína, er hann nefnir Minningar, og kom sú bók út árið Heima er bezt 69

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.