Heima er bezt - 01.02.1958, Qupperneq 34
Eruá J>ér þáttakandi í getrauninni?
Munið eftir hinum glæsilega
RAFHA-ÍSSKÁP,
sem er fyrstu verðlaun
og auk þess eru
9 aðrir ágætir vinningar.
í þessu hefti birtist önnur þrautin í verðlaunasamkeppn-
inni um hinn stór-glæsilega RAFHA-ísskáp, sem hófst í
janúarheftinu.
Þér hafið nú sjálfsagt þegar leyst fyrstu þrautina og
bíðið með óþreyju eftir að leysa þá næstu, því hver veit,
nema það lán falli einmitt yður í skaut að hreppa hinn
stórglæsilega RAFHA-ísskáp með öllum þeim þægindum,
sem hann veitir.
Og nú er það enn á ný vandinn, sem yður er á hönd-
um, að finna út, hvar Villi lét ljósmynda sig í þetta sinn.
Síðan skrifið þér lausnina á svar-reitinn á næstu síðu hér
fyrir framan og farið að öðru leyti eftir þeim reglum, er
gefnar voru í janúar-heftinu.
ER VILLI STADDUR HJÁ:
1. Goðafossi?
2. Dettifossi?
3. Gullfossi?
Hér sjáið þér fallega RAFHA-ísskápinn, sem myndi
vera prýði í hverju eldhúsi og sem myndi einnig
vera mikil prýði í yðar eigin eldhúsi. RAFHA-ís-
skápurinn er með glansandi hvítri gljáhúð og með
tinnusvört handföng og undirstöður.
Isskápurinn er framleiddur í einmitt þeirri stærð,
sem hentar bezt íslenzkum heimilum, og það er
pláss fyrir hann í hvaða eldhúsi sem er.
Og til þess að þér getið velt því fyrir yður, hvar
þér mynduð staðsetja ísskápinn, ef þér skylduð
verða sá, sem yrði svo heppinn að fá þennan glæsi-
lega vinning í myndagetrauninni, þá birtum við
hér með málin á RAFHA-isskápnum:
Hæð: 116 cm. Breidd: 58.5 cm. Þykkt: 59 cm.
Með ísskápnum
fylgja 4 afbragðs
plast-skálar, sem
eru mjög hentug-
ar fyrir margs
konar matvæli,
sem þér ætlið að
geyma í ísskápn-
um, t. d. smjör,
ost og matar-
leifar. Þetta auðveldar yður að halda röð og reglu
í skápnum, og þér losnið við að pakka því inn, sem
þér þurfið að geyma í hvert sinn.