Heima er bezt - 01.05.1958, Qupperneq 7

Heima er bezt - 01.05.1958, Qupperneq 7
Ferðinni var heitið út í Láturdal. Er hann var kom- inn skammt frá bænum, opnaði hann byssuna og stakk á hana tveimur skotum af beztu tegund, svo lokaði hann byssunni, setti öryggið á og lagði hana á öxl sér, hagræddi á sér húfunni og hélt aftur af stað. Færi var ágætt; mikill, harður snjór á jörð undir hinu þunna, nýfallna snjólagi. Það er rösklega einnar stundar gang- ur frá Hænuvík og út í Láturdal. Kristinn hélt út brún- ir Hænuvíkurhlíða. Er hann var kominn út undir dal- inn, kom hann á nýgengna slóð eftir ref. Kristinn rakti slóðina niður í Láturdal, en þá sveigði tæfsa í innri hlíð dalsins. Hún virtist vera vör um sig, stanzaði af og til, eins og hún væri að hugsa um að leggjast, en fékk sig þó ekki til þess, en hélt áfram út eftir hlíðinni. Kristinn fór einnig gætilega, stanzaði af og til, svip- aðist vel um, hvort hann ltæmi ekki auga á hana, því að það gat miklu munað, hvort þeirra kæmi fyrr auga á hitt. Hann var kominn með byssuna í hægri hendi, til þess að vera fljótari til, ef tæfsa sprytti upp. Hann var kominn þar, er gjáin, er fyrr getur, liggur niður í dalinn. Hann stanzaði og leit upp eftir gjánni, hvort þar væri fært neðan, ef á þyrfti að halda. Jú hon- um fannst það, þótt ekki væri það álitlegt. Tæfsa virtist hvergi telja sér óhætt að leggjast í hlíð- inni. Vindurinn var henni ekki hagstæður, þannig að hún hefði hann í nefið úr þeirri átt, er manna var von. Hún vildi því komast lengra, komast þangað, sem óvini hennar yrði torveld eftirförin og hún sæi sem bezt til ferða hans. Kristinn fetaði sig eftir slóðinni. Það fór að harðna í spori í hlíðinni, því að hinn nýfallni snjór var svo lítill, að hann veitti ekki verulegt viðnám ofan á hjarn- inu, sem undir var. Þannig gekk Kristinn hlíðina á enda. Þegar henni sleppti sveigði tæfsa inn á Hænuvíkurhlíð- ar og hækkaði sig þá, upp í svokallaðan „Efstagang“, sem er fjártroðningur efst í hlíðinni. Enn þá hafði hvorugt þeirra orðið hins vart, Krist- inn hélt því áfram eftir slóðinni. Er hann hafði skammt farið eftir ganginum, harðnaði enn í spori. Hann stanz- aði því og litaðist um. Sldp skreið inn fjörðinn. Á haffletinum mynduðust langar öldurákir út frá kjölfari skipsins. Sjórinn hlóðst upp við kinnunga þess og brotnaði svo frá þeim í hvít- fyssandi löðri. Kristinn leit af skipinu upp í klettabeltin, sem gnæfðu fyrir ofan hann, þungbúin og illileg. Sums staðar voru hengjur í brúnum þeirra; á syllum lá snjór og klaki. Nokkrir múkkar svifu þarna um í loftinu eins og þeir væru í eftirlitsferð um þessa sumarbústaði sína. En nú voru þeir kuldalegir útlits, hreiðrin á syllunum full af klalta og snjó. Enn mættu þeir bíða í fjóra mánuði, þar til aftur yrði vistlegt í heimkynnum þeirra í fjallinu. Fyrir neðan var snarbrött hlíðin, þakin hörðu hjarni, um 150—200 metra löng niður á sjávarkletta, sem þama eru víðast lágir. Fyrir neðan þá liggur fjaran; snjór var í henni, þar sem sjór féll ekki á. Sums staðar sátu skarf- ar á steini og blökuðu hálf þöndum vængjum, eins og Kristinn Ólafsson í póstferð d Smára sínum. þeir væru að hreyfa þá sér til hita. Æðarfuglinn synti r hópum á vogum og víkum, en yfir svifu svartbakar, tilbúnir að hremma hverja þá veiði, er gæfist. Fyrir framan lá svo kyrrt og blásvart hafið svo langt sem augað eygði. Skammt fyrir neðan þar sem Kristinn stóð, voru klettaslefrur í hlíðinni og víða stórir steinar, sem stóðu upp úr hjarninu. Kristinn leit niður eftir hlíðinni, og hugsaði, að sá, sem hrapaði þarna niður, þyrfti ekki að segja frá tíðindum. Átti hann að snúa við? Nei. Tæfsa gat verið mjög nærri, og nú fór hún ekki að eiga um margar leiðir að velja. Hann ákvað að halda lengra, þar ætti hann að komast niður í fjöruna, og vita svo, hvort hann kæmist ekki þá leið inn í Hænuvík. Hann pjakkaði sér far með vinstra fæti, sté svo í það, tók með hægri hendi framarlega um byssuhlaupið og ætlaði að pjakka sér far með byssuskeftinu fyrir þann hægri. Er hann var að því, fann hann að hann missti vinstri fótinn úr farinu. Högg á höfuðið, stjörn- ur augnablik, svo endalaust tómið. Það ríkti dauðakyrrð þarna uppi í hlíðinni. Kjölfar- ið eftir skipið var horfið, og tæfsa hefur sjálfsagt verið lögzt örugg til hvíldar í sínu öryggisleysi. Hrafn sveif yfir fjörunni. Skyndilega lækkaði hann flugið, sveigði í hring og tyllti sér svo niður á sjávar- klettana. Hann hafði komið auga á eitthvað í fjörunni. Æðarfuglinn hélt áfram að synda fyrir framan land- ið. Stundum tylltu nokkrir sér upp á steina, sem skutu upp kollinum eftir því sem út féll, en þeir sátu ekki lengi. Það var mjög kalt. Steinarnir klökuðu, svo fugl- inn renndi sér aftur á sjóinn. Af og til hóf einhver blik- inn upp rödd sína, og aðrir svöruðu í sama tón. Þýður hljómur þeirra ómaði í kyrrðinni, en var stundum rof- inn af hjáróma gargi svartbaksins. Krummi var seztur á snjóinn í fjörunni, og hoppaði þar um ánægjulega, eins og hann ætti von á æti. Allt í einu rak hann upp garg og lyfti sér aftur upp á klett- ana. Hann sá að þetta var maður, sem lá þarna í blóði sínu í fjörunni. Það var Kristinn, sem þarna lá meðvitundarlaus. Er hann hafði legið þannig í fjörunni, eftir því sem næst verður komizt í tvo tíma, og það í 10—12 stiga frosti, skeði það ótrúlega, að hann fór að rakna við. Heima er bezt 153

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.