Heima er bezt - 01.05.1958, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.05.1958, Qupperneq 8
Það sem Kristinn man fyrst eftir frá því, er það að hann sat uppi, en gat lítið hugsað. Konist þó að þeirri niðurstöðu, að þetta hlyti að vera draumur, þetta um- hverfi og hann að vakna. Nei, það gat ekki verið, það var gott að halla sér aftur, svo féll hann aftur í mók. Er hann fékk aftur meðvitund var hugsunin skýrari. Hann gerði sér þá grein fyrir því, að hann lægi frammi í fjöru á snæviþöktu hnullungagrjóti. Svo tók hann eft- ir blóði í snjónum. Honum tókst að bera aðra hendina upp að höfði sér, en er hann leit hana aftur, var hún öll í blóði. Smám saman tókst honum að átta sig á því, að þetta var ekki draumur, heldur ískaldur veruleiki. Raddir fugla, sem kváðu við í kyrrðinni sannfærðu hann um það. Hann reyndi eftir mætti að berjast móti þeirri löng- un sinni að leggjast út af aftur, því honum var að verða það Ijóst, að hann væri í hættu staddur. Hann fór nú að reyna að hreyfa sig. Hendur hans voru með öllu dauðar, en fæturna gat hann hreyft. Enn hvarf veruleikinn, og honum fannst sem hann svifi í einhverju tómi í órafjarlægð. Eitthvert hljóð færði honum veruleikann á ný, og nú mun skýrari en áður. Hann tók nú að athuga ástand sitt, og komst að því að hann myndi óbrotinn, væri með sár á vinstra gagn- auga, sem væri farið að bólgna, hruflaður á höfði, og hendurnar voru eins og dauðir hlutir. Hann gat engan fingur hreyft, hvernig sem hann reyndi. Svo fór hann að reyna að rísa á fætur, en tókst það ekki. Þá fór hann að fá mikla tilkenningu í bakið. Ekki gat hann enn sem komið var gert sér neina grein fyrir því, hvers vegna hann væri þarna kominn. Kristinn kom nú auga á vettlinga sína skammt frá, og einnig varð hann þess var, að hann vantaði húfuna og annan skóinn, en ekki kom hann auga á það. Við fimmtu tilraun tókst Kristni að rísa á fætur. Honum var þá orðið nokkurn veginn ljóst, hvað gerzt hafði, og sá fram á, að annað hvort var að duga eða drepast. Leit mundi ekki hafin að honum fyrr en seint um kvöld, og það gæti verið um seinan. Hann riðaði á fótunum og hafði mikla tilkenningu í baki, svo drógst hann þangað, sem vettlingarnir voru. Með miklum erfiðismunum tókst honum að koma vettling á hægri hendina, en á vinstri hendina kom hann honum ekki. Nú fór hugsun hans óðum að skýrast. Kristinn sá að síðast hefði hann henzt fram af 3—4 metra háum ldetti, komið niður í snjó og skurrast 5—6 faðma fram í fjöruna. Nú fór að setja að honum hroll, svo að ekki var ann- að að gjöra, en reyna að dragast í áttina. Hann fann skarð í klettana, þar sem hann gat dregizt neðan. Enn gjörði hann tilraun til að koma upp vettlingnum, en það tókst ekki. Fyrst í stað komst hann aðeins fáa faðma, þá varð hann að hvíla sig, en áfangarnir smá lengdust eftir því, sem fæturnir iiðkuðust, en hendurnar gat hann ekki notað nema stutt þeim niður. Þannig þokaðist hann fet fyrir fet út í dalinn og þar fram með hlíðinni. Loks var hann kominn þar, sem gjáin, er fyrr getur, liggur nið- ur í dalinn. Kristinn hvíldi sig vel undir gjánni. Hann fann að vinstra augað var svo til sokkið í bólgu en allt virtist dofið og tilfinningarlaust. Svo tók hann að þoka sér neðan með gjánni. Hann reyndi lítið að ganga neðan brattann, því að enn var hann riðandi á fótunum. Hann skreið því mest neðan með gjánni, sem tók hann lang- an tíma og sársaukafullt erfiði, því að alltaf kenndi hann mikið til í bakinu. Fet fyrir fet skreið hann upp eftir gjánni. Hann einbeitti hugsun og kröftum að því að skríða áfram, lengra áfram, hærra og hærra, áður en myrkrið skylli á. Það var hans eina lífsvon, eins og komið var. Hann beitti olnbogunum, þegar þess þurfti við, því að þeir voru í lagi, en hendurnar einskis virði. Loks skreið hann upp á brúnina. Þar lá hann stutta stund, en reis svo á fætur og hélt heim. Nú sóttist ferð- in betur, því að brátt tók að halla niður í Hænuvíkina, og þangað kom hann klukkan 5, illa til reika, húfulaus með vetding á annarri hendi og skó á öðrum fæti. Ekki taldi þó Kristinn mikið að sér, nema það sem sæist, en er hann var búinn að vera inni í hitanum nokkra stund, fór hann að fá smá verki í hendurnar, þó sérstaklega í þá, sem hann kom vettlingnum á. Allt var þá eins og fjærri, er fyrir hann hafði komið, og eins og hann vissi lítið um það, eða með hvaða hætti hann hefði komizt heim. Hann mundi þó, að hann hafði farið neðan með gjánni, sem ekki þótti trúlegt, en reyndist þó síðar satt vera. Er hann var spurður um byssuna vissi hann ekkert um hana. Um nóttina fékk hann óþolandi kvalir í hendurnar, bakið og höfuðið. Morguninn eftir var hann fluttur í sjúkrahús Patreks- fjarðar. Þar dvaldist hann í tæpan mánuð. Var þá búinn að fá nokkurn mátt í hendurnar, sem reyndust ekki kalnar, en rétt við það, eftir því sem læknir taldi. Kristinn er langt frá því að vera búinn að ná sér, þegar þetta er skrifað, sérstaklega í baki og á taugum. Byssan hans er nýlega fundin skammt frá, þar sem hann féll fyrst. Hvorugt skotið hafði hlaupið úr byss- unni, og hún lítið skemmd. Skórinn fannst fastur á steinnibbu hátt í hlíðinni, en húfan niðri í fjöru. Kristinn telur, að hann hafi fallið í rot, strax og hann missti fótinn úr farinu og féll, því eftir það man hann ekkert, hvað gerðist, fyrr en hann raknaði við í fjör- unni. Þykir kunnugum það alveg sérstakt, að hann skyldi sleppa lifandi og óbrotinn eftir að hafa hrapað þessa leið. Einnig þykir það mikil harðneskja að geta dregizt heim svona til reika, og þó sérstaklega að fara neðan með gjánni. Ekki getur Kristinn gefið neina skýringu á því, hvers vegna hann valdi þá leið. Telur líklegt, að hann hafi farið hana, af því að hann var vanur að fara þá leið þegar hún var fær. Lýkur svo þessari frásögn. Látrum, 25. febrúar 1958. 154 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.