Heima er bezt - 01.05.1958, Qupperneq 9

Heima er bezt - 01.05.1958, Qupperneq 9
HvaSa tré voru þaá? Eftir J. M. Eggertsson Faðir niinn Eggert Jochumsson frá Skógum í Þorskafirði var kennari að lífsstarfi. En eftir að hann hætti kennslustörfum var hann síðustu ár ævi sinnar vitavörður að Naustum við Skutuls- fjörð (ísafjörð). Ég ólst ekki upp með foreldrum mín- um nema til þriggja ára aldurs. En þegar ég var við 12 ára aldur var ég um tíma í orlofi hjá foreldrum mínum. Móðir mín, síðari kona föður míns, hét Guð- rún Kristjánsdóttir frá Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal. (Hét áður fyrr Grundar-Garðshorn). Ég hafði snemma yndi af þjóðlegum fróðleik og frásögnum. Man ég enn orðrétt samtöl fólks og frá- sagnir, er ég heyrði í æsku. Naut faðir minn þessa með mér, að ég var eftirtektarsamur og minnugur. Sagði hann mér margt frá æsku- og uppvaxtarárum sínum í Skógum, enda fæddur þar og uppalinn, elzta barn og frumburður hjónanna Þóru Einarsdóttur og Jochums Magnússonar, Magnússonar Halldórssonar Bjarnasonar Jónssonar, er allir höfðu búið í Skógum í beinan karl- legg mann fram af manni. Þau hjón Þóra og Jochum (afi minn og amma) eign- uðust 14 börn og var faðir minn elztur, eins og áður er sagt, en Matthías þjóðskáld þriðji í röðinni. Faðir minn var vinnandi heima í Skógum og fór þaðan ekki fyrr en hálf-þrítugur, að hann gerðist sýslu- skrifari hjá Jóni Thoroddsen sýslumanni og skáldi að Haga á Barðaströnd. Eggert faðir minn sagði mér, að Jochum faðir sinn hefði sagt sér, að Magnús faðir hans hefði sagt honum eftir föður sínum Magnúsi Halldórssyni Bjamasonar, að þegar hann var unglingur að alast upp í Skógum með foreldrum sínum, hefði verið siður að sækja eld- gamlar feysknar trjárætur til eldsneytis í hlóðin og farið eftir þeim með reiðingshesta inn í Þorskafjarðar- þing í melinn eða holtið Skógamegin við Músará, svo- nefndan Grenimel eða Greniholt. Höfðu þeir með sér pál og fleiri tæld til að ná upp rótunum, sem ýmist voru á kafi í melnum, eða að nokkra uppblásnar, og litu út til að sjá svipað og hugsa mætti sér veðraðar beinagrindur af fornaldar risa-skrímslum eða kynja- dýrum. Flestar voru ræturnar þá svo fúnar, að þær loddu ekki saman nema að nokkru. En svo stórir og þungir voru þó sumir heillegustu rótarmolarnir að þeir voru fullkomin klyf á hest — og þó ekki nema lítill hluti rótarinnar. Töldu þeir af og frá að þar væri um bjarkarrætur að ræða, heldur rætur miklu stórvaxnari trjáa og þá helzt grenitrjáa. Eftir verksummerkjum, millibili trjárótanna, ummáli þeirra og öðru þvílíku, töldu þeir víst, að stærstu trén þarna í melnum við Músará, hefðu eigi verið minni að hæð og gildleika en grenitré það, sem Landnámabók ureinir frá, o°' se<iir á land komið í Grenitrésnesi utar við fjörðinn. Faðir minn sagði mér, að fróðir menn í sínu ung- dæmi hefðu haft þá skoðun, og haft hana eftir fornum fróðleiksmönnum enn lengra fram, að þetta „grenitréu ið mikla, sem nesið er kennt við, hafi annað hvort vax- ið þar á nesinu sjálfu, ellegar þá við fjörðinn innanverð- an í Grenimelnum við Músará í Þorskafjarðarþingi, skammt frá blótstaðnum, þar sem trjáræturnar miklu voru, sem sagt er frá hér að framan. Töldu þeir helzt, að tré þetta, sem Grenitrésnesið heitir eftir, hefði bor- izt út Músará í vatnavöxtum og fram í fjörðinn undan straumi og útfalli, unz það varð landfast í Grenitrés- nesi. Músará er mjög straumhörð og getur orðið ægi- lega vatnsmikil í vatnavöxtum. Það er hvort tveggja til, að tréð hafi rifnað upp og fallið í Músarárgljúfrin, eða það hafi verið hreinlega fellt og áin í vatnavöxtum látin bera það fram í fjörðinn. Líka getur verið, að um einhvers konar kaup eða viðskipti hafi verið að ræða því landeigendur Skóga og Hallsteinsness voru miklir vinir í þann tíma. Faðir minn sagði mér, að það hefði verið skoðun gamalla fræðimanna, að bæði greni og fura hafi vaxið á nokkrum stöðum á Vesturlandi um landnámstíð, en þó fremur fágæt og því mjög eftirsótt sem efniviður. Þeim hafi því verið útrýmt með öllu og það mjög fljótlega. En það er um Grenitrésnes að segja, að það er við langan innfjörð, inn úr sjálfum aðalfirðinum eða fló- anum og straumum og aðstöðu allri þann veg háttað, að þar rekur aldrei neitt af hafi. Rekavon og rekalíkur af hafi eru því engar í Grenitrésnesi öðruvísi en að tréð hafi borizt út fjörðinn innan frá, en til þess hefur tréð orðið að vaxa þar við fjörðinn sjálfan. Gömul sögn er, að fjörðurinn hafi upphaflega verið nefndur Þórskafjörður og hafi Hallsteinn Þórsgoði landnámsmaður gefið firðinum nafnið, er síðar breyttist í framburði í Þorskafjörður, líkt og mannanöfnin Þór- steinn í Þorsteinn, Þórgerður í Þorgerður, Þórkell í Þorkell o. s. frv. En um Hallstein Þórsgoða segir Land- náma (Hauksbók) eftirfarandi: „Hallsteinn son Þórólfs Mostrarskeggs nam Þorska- fjarðarströnd ina nyrðri og bjó á Hallsteinsnesi. Hann blótaði Þór til þess að Þórr sendi honum öndvegis- súlur, og gaf þar til son sinn. Eftir það kom tré á land hans, það var 63 álna langt og tveggja faðma digurt. (Framhald á bls. 178). Heima er bezt 155

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.