Heima er bezt - 01.05.1958, Side 14

Heima er bezt - 01.05.1958, Side 14
Fjarskaáaveáriá 6. júíí 1947 Eftir Stefán Ásbjarnarson FLESt okkar mannanna börn þekkja híná svo- nefndu útþrá. Hún er dularafl í huga og blóði æskufólksins og verður tíðum svo voldug og sterk, að hún slítur öll bönd til að ná rétti sín- um. íslendingar fyrri alda og fram á öndverða tuttug- ustu öldina stilltu mjög í hóf kröfum sínum að upp- fyllingu útþrárinnar og létu byr ráða þeirri siglingu. Nútíma lslendingar á öllum aldri virðast aiteknir og illa haldnir af margs konar útþrá. Eiginleikinn er eldd iengur aldursfyrirbrigði. Sýkingin lýsir sér í því, að tolla ekki þar sem menn eiga að vera. Meinsemdin þjáir marga, en lækningin er ófundin enn. En þekkja margir innþrá? Útþráin leitar til hafs, en innþráin fram til heiða. Skáld, listamenn og yfirleitt allir listhneigðir menn eiga báðar þessar þrár samanslungnar í eðlisgerð sinni. Niður hafsins og þögn heiðanna verð- ur uppistaðan og ívafið í löngunum þeirra og starfi. En ein er sú lífvera íslenzk, sem á innþrána óskipta. Það er íslenzka sauðkindin, sem var fyrrum einn snar- asti þátturinn í búskaparsögu íslendinga. Margir hafa þó goldið kindinni illa skuld og telja hana orðna óþarfa í þjóðaruppeldi íslendinga, enda þótt þeir vilji eta kjöt í flestar máltíðir. Þessu fólki hefur Halldór Kiljan Lax- ness svarað beinlínis og óbeinlínis í snjallri ritgerð, þar sem hann gerir íslenzku sauðkindinni verðug skil. í skammdegi vetrarins, þegar kindin mókir í húsinu sínu að lokinni gjöf, er hana þá ekki að dreyma um óskalöndin sín, heiðarnar í hásumardýrð, þar sem heið- ríkjan er hreinust, grasið grænast og safaríkast og lindin tærust og svölust? Og senn er veturinn liðinn, og para- dísardraumurinn rætist með hverju nýju vori. En einnig í friðsæld fjallanna leynist hættan á næstu grösum. Ýmist er það dýrbíturinn eða snöggir vatna- vextir, skriðuhlaup af völdum stórrigninga, og þó verða haustsnjóarnir hættulegastir, þegar lækir og kílar bólgna upp af bládýpi, og hættan vakir við hvert fótmál. Þannig hefur margri kindinni verið illur aldurtili búinn, ýmist drukknun eða helsvelta í fönnum og fenjum, og jafnvel í júlíbyrjun, þegar heiðarnar klæðast sumarskrúðanum og bjóða sín gómsætustu grös, bíður aldurtilinn á næsta leiti og bindur skjótan enda á sæluvistina. Suður af mynni Vopnafjarðar gengur dalur að nafni Hraunfellsdalur. Skerst hann inn í Smjörvatnsheiði, sem myndar suðausturhlið þess hálendisrana, sem lykur um Vopnafjarðarhérað á þrjá vegu. Fyrir botni Hraunfells- dals er gróðursnautt fell, sem Sandfell heitir. Nær það þvervega frá Jökuldalsbrúnum að austan og norður í afréttarlönd Vopnafjarðar. Haft er það fyrir satt eftir gömlum bónda á Jökuldal, sem uppi var fyrir síðustu aldamót, að í Sandfelli væru átján dalir grösugir. Munu það vera grastægjur meðfram lækjum. Annars er há- fellið aldrei gengið í fjársmölun, og því lítt eða ekkí ltannað af núlifandi mönnum. Þykir allillt að fást við fé það, sem heldur sig við fellið. í haustgöngum sækir það mjög að komast upp á fellið, þótt allbratt sé, og verður þá ekki sigrað nema með góðum hundum. Við Sandfell verða vatnaskil og fjallreiðaskil milli Jökul- dals og suðurbýla Vopnafjarðar. Eru þau um Tröllkarl, einstæðan steindrang í miðju Sandfelli utanverðu. Eftir Hraunfellsdal rennur Sunnudalsá, sem á upptök í Sand- felli. Norðan Tröllkarls heldur áin enn sínu foma heiti, því eins og kunnugt er hét dalurinn Sunnudalur á land- námsöld, eftir vorþingstaðnum Sunnudal, sem er bær utarlega í dalsmynninu. Fjórir byggðir bæir eru í daln- um austan Sunnudalsár. Eiga þeir afréttarlönd í Smjör- vatnsheiði. Bæirnir heita: Hrappsstaðir yzt, Guðmund- arstaðir, Sunnudalur og Borgir. Allir þessir bæir eru í eins konar tungu milli Þverár, sem kemur úr Smjör- fjöllum og rennur í Hofsá utan við mynni dalsins, og Fossár að framan, sem á upptök í hálendi Smjörvatns- heiðar, og nefnist áin Steinka. Síðan klýfur hún austur- hlíðar Hraunfellsdals og rennur í Sunnudalsá framan við Borgir. Fyrir framan Fossá heitir dalurinn Gný- staðadalur eftir eyðibýlinu Gnýstöðum, sem stendur á austanverðum gilbarmi Sunnudalsár. „Innan við Fossá“ er skýlla og landsælla en ytra undir heiðinni, því ýmis veður standa af Smjörfjöllum, sem eru gustsvöl, úrg og jökulfönnum þakin árið um kring. Sumir telja Norðausturland og norðanverða Aust- firði einna harðbýlasta á landi hér. Víst er um það, að vorið er oft seint á ferð um dalinn undir Smjörvatns- heiði. Oft leitar napur gusturinn frá hjarnbreiðum heið- arinnar niður hlíðar tungunnar, og gengur svo fram eftir vori, þótt logn og sólfar sé daglangt í öðrum hlut- um sveitarinnar. En stundum kemur vorið næstum því fyrirvaralaust sunnan yfir heiði með þennan kyrrláta, sólhlýja blæ, sem er svo einkennandi fyrir Austfirði og Austurland. Þá er búsmalanum í heiðartungunni borgið og vorþing sældarinnar vikum langt í Sunnudal. Vorið 1947 kom snemma til Vopnafjarðar. Að vísu ekki með sólhlýjum blævindum, en kyrrum sóldögum og döggfalli um nætur. Sólin og hafrænan tóku saman tveim höndum og hlúðu að vexti og viðgangi vorsins, svo að gróðrinum í hlíðum heiðarinnar skilaði vel fram. En þegar kom upp fyrir Svörtubrún, sem liggur fast að sjálfri heiðinni, lá snjór í hverri laut, og fjallalækir og giljadrög voru að mestu orpin fönn og klaka. Mönn- um þótti því undarlegra, hvað heiðin rann seint, þar 160 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.