Heima er bezt - 01.05.1958, Síða 19

Heima er bezt - 01.05.1958, Síða 19
listakonan, komi fram á fjölsóttustu skemmtununum í fjölmennustu bæjunum. Þetta getur alveg eins skeð í fámennu kauptúni eða sveit. Beztu snillingar íslenzku þjóðarinnar hafa ekki allir fæðzt í fjölmennum bæjum eða borgum. Mjög oft hafa þeir fæðzt í rislágum bæ í fámennri fjallasveit og lifað sín fyrstu æskuár við fátækt og kröpp kjör. Jónas Hallgrímsson er fæddur að Hrauni í Öxnadal, Jón Sigurðsson að Rafnseyri við Arnarfjörð, Gunnar Gunnarsson að Valþjófsstað í Fljótsdal, en Halldór Kiljan í Reykjavík. Davíð Stefánsson að Fagraskógi í Eyjafirði og Tómas Guðmundsson að Efri-Brú í Grímsnesi. Svona gæti ég haldið áfram að telja þjóð- fræg skáld og listamenn Islands og nefna fæðingarstað þeirra og enn hefur strjálbýlið alið fleiri fræga íslend- inga en fjölbýlið. — Eg gat þess í byrjun, að hvergi í öðrum löndum væri sumardagurinn fyrsti slíkur hátíð- isdagur og á Islandi. Það fékk ég sjálfur að reyna, er ég var staddur í Stokkhólmi á sumardaginn fyrsta fyrir 12 árum síðan. Ég vaknaði snemma um morguninn á gistihúsinu og leit út um gluggann. Ég fann það á mér strax, er ég vaknaði, að dagurinn yrði mér enginn hátíðisdagur í ókunnu landi. Undanfarnar vikur hafði þó verið veður- blíða. Langir, sólríkir dagar og gróðurdögg um nætur. Trjágróður allur var í fullum blóma og jörð algróin. En það var enginn hátíðablær yfir borginni eða borgar- Hátiðahöld á Austurvelli. búum. Hvergi var flaggað og verkamenn gengu til vinnu sinnar. Svo var að sjá sem enginn þekkti þennan yndislega hátíðisdag íslenzkra bama. Mér varð hugsað heim og söknuður og dapurleiki náði tökum á mér. Ég hafði margs að sakna og margs að minnast. í meira en tvo áratugi, hafði ég þennan dag átt anna-saman og ánægjulegan dag í hópi æskumanna. Allir reyndu að Mannjjöldi i Reykjavik á sumardaginn fyrsta. Heima er bezt 165

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.