Heima er bezt - 01.05.1958, Síða 23

Heima er bezt - 01.05.1958, Síða 23
Asta brosir dapurlega. — Það atvik er líka það eina dýrmæta, sem ég á. — Það var óheppilegt, að þú skyldir fótbrotna. Þú getur átt nokkuð lengi í því. — Læknirinn gefur mér góðar vonir um að brotið muni gróa fljótt. — Já, en ekki verður þú vinnufær að sinni. Mér kom það heldur en ekki illa, að missa þig svona allt í einu úr vistinni. — Mér þykir það leiðinlegt að hafa valdið þér óþæg- indum, frú Sjöfn, en við það gat ég ekki ráðið. — Sem betur fór, rættist furðu fljótt úr stúlkuvand- ræðunum hjá mér. Snorri er búinn að ráða til okkar stúlku, og hún kemur í vistina á morgun. — Það var þá ágætt, segir Ásta stillilega. — Nú verður þú að taka dótið þitt úr vinnukonu- herberginu, því stúlkan flytur f það á morgun. — Eg hefi því miður hvergi vísan stað fyrir dótið mitt. — Þú verður að ráða einhvernveginn fram úr því. — Ég kemst nú ekkert, eins og er, og svo veit ég ekki, hvern ég ætti helzt að biðja fyrir það. — Ég get þá kannske geymt það fyrir þig nokkra daga í kjallaranum, en samt ekki lengi. Því eins og þú veizt er kjallarinn oftast yfirfullur af vörum. Ásta horfði með undrun á fyrrverandi húsmóður sína, og djúpur sársauki gagntekur hana. Sízt hefði hún búizt við þessu af Sjöfn. Henni er það full ljóst, að hún á ekki athvarf í kaupmannshúsinu framar. Þar er ekki einu sinni geymslurúm fyrir fátæklegar eignir hennar. Hún segir loksins hljóðlátlega: — Ég skal hafa einhver ráð með að fjarlægja dótið mitt úr húsi þínu, frú Sjöfn, innan fárra daga, svo að þú hafir ekki óþægindi af því. — Já, þú verður að hafa einhver ráð með það. — Frú Sjöfn stendur upp. — Ég má eklti sitja hér lengur. Nú hvíla öll heimilis- störfin á mér einni. Vertu nú sæl, Ásta, segir hún. — Vertu sæl, frú Sjöfn. Frúin hraðar sér fram úr stofunni, og dyrnar lokast á eftir henni. Ásta hagræðir sér á sjúkrabeðnum og brosir dapur- lega. Nú er hún ósjálfbjarga og heimilislaus, og einnig vinalaus. En það skiptir ekki máli, fyrst Nonni litlí lifir. — Ásta vaknar skyndilega upp úr þessum hugs- unum við það, að stofudyrnar opnast á ný, og Jóna móðir Nonna litla kemur inn í stofuna og gengur að> rúminu til Ástu. Þær horfast innilega í augu, og Jónæ réttir Ástu hönd sína, en djúpt þakklæti móðurhjartans. deyr á vörurn hennar, og hann skortir orð, sem megnæ að lýsa því. Ásta finnur glöggt hjartanlegt þakklætið, sem felst í handartaki Jónu, og heit gleði streymir um sál hennar.. Jóna lýtur niður að Ástu og þrýstir kossi á enní hennar: — Guð launi þér fyrir drenginn minn, segir hún grátklökk. — Það er ekkert mér að launa, Jóna mín, slíkt var bara heilög skylda, sem hver og einn hefði innt af hendi í mínum sporum. Ásta brosir til Jónu og býður henni sæti á stólnum við rúmið, þar sem frú Sjöfn hafði setið fyrir stundu. síðan. Jóna sezt niður og segir: — Hvernig líður þér annars í fætinum, Ásta mín? — Ágætlega. — Hvað býstu við að verða að liggja lengi hérna í sjúkrahúsinu? — Ég veit það ekki. Læknirinn segir, að ég þurfí ekki frekar að liggja hér en í heimahúsum, en... Ásta hikar og lýkur ekki setningunni. Jóna tekur eftir því og spyr: — En hvað, Ásta mín? — En ég á hvergi heima. — Ferðu þá ekki aftur í kaupmannshúsið? — Nei, þar er víst engin þörf fyrir mig framar. — Jæja... Jóna brosir næstum feginsamlega. Þá vona ég að þú gerir það fyrir okkur hjónin að dvelja á heim- ili okkar, þangað til þú hefir fengið fullan bata. Það yrði okkur til svo mikillar gleði. — Ég þakka þér kærlega fyrir, Jóna mín, en þetta myndi valda þér óþægindum. — Ekki orð um slíkt. Nú fer ég og tala við lækninn, ég vil helzt fá þig heim til okkar strax í dag. Framh. • • • VILLI Heima er bezt 169'

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.