Heima er bezt - 01.05.1958, Síða 33
Glæsileg Heklu-peysa í.verálaun
og 50 aSrir góáir vinningar í barna-
getrauninni í maí
1 maí-getrauninni fyrir hina yngri lesendur „Heima er bezt“ eru
fyrstu verðlaun falleg og hlý Heklu-peysa. Þessar peysur eru, eins
og allt annað, sem Fataverksmiðjan Hekla á Akureyri framleiðir,
sérstaklega ætlaðar fyrir íslenzka veðráttu, og eru glæsilegar flíkur.
Þær henta alvcg eins vel á sólbjartan sumardaginn, þegar þú
klæðir þig í falleg föt, eins og kaldan vetrardag, þegar þú rennir
þér á fleygiferð niður skíðabrekkuna. Sá, sem verður svo heppinn
að vinna fyrstu verðlaunin, getur sjálfur valið um það, hvort
hann vill heldur peysuna, sem drengurinn er í, eða peysuna, sem
telpan er í og þið sjáið á meðfylgjandi mynd.
Það er nú búið að draga í barnagetrauninni í febrúar hjá bæjar-
fógetanum á Akureyri, og hér eru nöfn þeirra þriggja barna, sem
voru svo heppin að vinna í getrauninni:
1. verðlaun: Steinþór Torfason, 9 ára,
Lundi, Borgarhafnarhr., A.-Skaft.
2. verðlaun: Gísli S.. Skarphéðinsson, 13 ára,
Kirkjubóli, Skutulsfirði, Isafjs.
3. verðlaun: Guðlaugur Höskuldsson, 12 ára,
Réttarholti, Grenivík, S.-Þing.
Um leið og við óskum ykkur til hamingju með verðlaunin, get-
um við sagt ykkur, að verðlaunin hafa verið sett í póst, og þið
fáið pakkana einhvern næstu daga.
Önnur verðlaun verða, eins og i fyrri getraununum, taflið góða
i fallega trékassanum.
Þriðju til tiundu verðlaun verða cevintýrabókin „Drengurinn og
hafmarin", gullfalleg œvintýri.
Elleftu til fimmtugustu verðlaun er unglingabókin „Jónsi karlinn
i Koti og telpurnar þrjár", eftir Guðmund L. Friðfinnsson, bónda
og skáld á Egilsá i Skagafirði.
í þessum mánuði eru það krakkarnir tveir í Heklu-peysunum,
sem þið eigið að finna. Við höfum falið litla mynd af þeim ein-
hvers staðar í blaðinu, — en athugið það, að þau eru ekki bæði
á sömu síðu, heldur á tveimur síðum. Til þess að geta tekið þátt
i getrauninni, verðið þið að finna þau bæði og skrifa síðan blað-
síðutölin á báðum síðunum á getraunaseðilinn neðst á næstu síðu.
Setjið síðan seðilinn í umslag og skrifið utan á: „Barnagetraun
Heima er bezt, pósthólf 45, Akurcyri." — Og við verðum að hafa
fengið lausnir ykkar fyrir 1. júnx 1958.
ÍSvona eru myndirnar tvær af
krökkunum í Heklu-peysunum,
sem þið eigið að finna.