Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1959, Qupperneq 4

Heima er bezt - 01.03.1959, Qupperneq 4
ÓLAFUR JÓNSSON: SveinLjörn Jónsson byggingameistari Ei g i kemur mér til hugar að skrá lífsreisu vinar míns Sveinbjarnar Jónssonar á fáar blaðsíður, og eigi mun það heldur hafa verið hugmynd útgefenda „Heima er bezt“, er þeir ákváðu að taka Sveinbjörn upp í afreksmannaskrá sína, en það tel ég vel ráðið. Óneitanlega væri það skemmtilegt við- fangsefni að skrá sögu Sveinbjarnar rækilega eftir hans eigin frásögn og öðrum beztu heimildum, en það uggir mig, að hvorugur okkar þykist hafa tóm til þess dund- urs enn sem komið er, og eigi veit ég, hvort ég væri til þess faliinn að skrásetja þá históríu, þótt ég viti, að efni myndi varla skorta. Nú hafa örlögin þó hagað því svo, að ég er til þess kjörinn að bregða upp nokkrum svipmyndum úr lífi og starfi Sveinbjarnar Jónssonar, en hvernig þetta hefur atvikazt er hernaðarleyndarmál. Því er ekki að leyna, að ég er engan veginn vel til þessa starfa valinn, meðal annars vegna þess, að leiðir okkar Sveinbjarnar lágu ekki saman fyrr en við báðir vorum fulltíða menn, og átti hann þá að minnsta kosti að baki allmikinn og viðburðaríkan starfsferil, er ég kann lítið frá að segja, og náin kynni hafði ég ekki af Sveinbirni og störfum hans nema tiltölulega skamman tíma, þó nægilega langan til þess, að ég gat gert mér fastmótaða mynd af Sveinbirni, hæfileikum hans, fjöl- breyttum viðfangsefnum og hugðarefnum, og hefur sú mynd eigi breytzt, þótt stundir hafi liðið. En vegna þess, Fyrsta vélin til að steypa i r-stein, reynd i Drammen í Noregi áriö 1919. er nú hefur verið sagt, hve seint leiðir okkar Sveinbjam- ar lágu saman, og að við höfum nú um langt skeið eigi dvalizt návistum, má vel svo fara, að mér dveljist stund- um við atvik úr afrekasögu Sveinbjarnar, er geta verið skemmtileg og táknandi, þótt litlum straumhvörfum hafi valdið, en nefni lauslega eða sjáist alveg yfir sum þau viðfangsefni hans, sem stærri eru í stykkjunum og meiru hafa áorkað. Vilji einhver vita skjót deili á einhverjum málsmetandi manni hérlendum, er hendi næst að grípa „Hver er mað- urinn?“ sem að vísu er hvergi tæmandi og auk þess mjög úrelt, þar sem það ágæta rit er nú orðið 14 ára, en margt skeður á hálfum öðrum áratug. Þar segir svo: Sveinbjörn Jónsson, f. 11. 2. 96 í Syðra-Holti í Svarf. For. J. Þórðarson, b. þar og smiður, og k. Sigríður Jóns- dóttir, b. í Hrappstaðakoti í Svarf., Þórðarsonar. Nám í unglingaskóla og tekniskum skóla í Ósló, á byggingar- námskeiði í Noregi. Námsferðir til Norðurlanda 1920, 1929 og 1936. Byggingameistari á Akureyri um hríð, reisti nýbýlið Knarrarberg í Kaupangssveit og bjó þar um skeið og gegndi jafnframt húsagerðarforstöðu á Ak. Nú búsettur í Rvík. Form. Iðnaðarmfél. Ak. mörg ár. O I stjórn Landssamb. iðnaðarmanna. Aðalstofnandi Ofna- smiðjunnar h.f., Iðju, Ak., Vikurfélagsins, Rvík, Raf- tækjaverksm. h.f„ Hafnarf., og Þangmjöl h.f. Skrif- stofustjóri Landssamb. iðnaðarmanna í Rvík. Hefur Fyrsta húsið, sem Sveinbjörn Jónsson byggði i Ólafsfirði, þá nitján ára gamall. 80 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.