Heima er bezt - 01.03.1959, Page 8

Heima er bezt - 01.03.1959, Page 8
Stdlvaskur frá Ofnasmiðjunni i Reykjavík. Sveinbjörn Jóns- son hefur stjórnað því fyrirtceki frá stofnun þess 1936. fellsnesi. Vann hann var sumarlangt að mannvirkjagerð vegna vikumámsins og mun þar fyrst hafa kennt sjúk- leika þess, er síðar átti eftir að verða honum þungur í skauti. Þá er Sveinbjörn einn aðalhvatamaður og stofnandi raftækjaverksmiðjunnar Rafha í Hafnarfirði. Það fyrir- tæki hefur gefið ágæta raun og verið til mikilla þjóð- þrifa. Svipað má og segja um helzta einkafyrirtæki Sveinbjamar, Ofnasmiðjuna h.f., sem hann hefur rekið af miklum myndarskap og til mikilla hagsbóta fyrir þjóðina. Ennfremur hefur hann sett á fót gólfteppagerð í Reykjavík, sem framleiðir ágæt gólfteppi að mestu úr íslenzku hráefni, og einnig hefur hann framleitt ein- angrunarefnið Gosull úr íslenzku hráefni, og margt fleira. Svo sem áður er að vikið, hefur Sveinbjörn látið sig margt fleira varða heldur en byggingar og iðnaðarmál, og hefur þegar verið drepið á heyskúffuna og amboðin. Jafn glöggskyggnum manni og Sveinbirni gat eigi dul- izt, að eitt erfiðasta vandamál landbúnaðarins var fóður- öflunin, og þó einkum tapið við öflun fóðursins, þ. e. heyjanna. Vélþurrkun heys varð eitt af áhugamálum Björn Sveinbjörnsson verkfrceðingur og norskur sérfrceðingur við uppsetningu fyrsta gólfteppavefstólsins. Nýtt verksmiðjuhús Vefarans i byggingu að Kljásteini i Mos- fellssveit. Sveinbjörn Jónsson gerði teikningar að húsinu og stendur sjálfur fyrir byggingunni. Sveinbjarnar, og kynni hans og afskipti af jarðhita ollu því, að þetta tvennt tengdist saman í huga ljans, og eftir að hann flyzt til Reykjavíkur, á hann þátt í að koma upp þurrkstöð við hverina í Hveragerði. Meginhlutverk þessarar þurrkstöðvar var að vísu þara- og þangvinnsla, en jafnhliða gerði hann þar tilraunir með þurrkun á stör og töðu. Ekki mun þessi framleiðsla hafa reynzt arðbær, og lítils stuðnings eða skilnings mun hún hafa notið, og hætti hún því brátt. Nú eftir 20 ár eða þar um bil virðist ný hreyfing vera að komast á þetta mál. Norðmenn hafa nú um nokkurt skeið rekið þangmjöls- verksmiðju, og er þangmjölið talið verðmætt til íblönd- unar í fóður búfénaðar, og eigi man ég betur, en fyrir síðasta alþingi væri þingsályktunartillaga um rannsókn á framleiðslu þangmjöls hérlendis. Framhald á bls. 108. Alúmin-amboðin hafa verið eftirlceti alls heyvinnufólks. Þau voru fyrst smíðuð 1932. 84 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.