Heima er bezt - 01.03.1959, Page 12

Heima er bezt - 01.03.1959, Page 12
Hundraðsmannahellir. hafði gripið fólk í Eyjum við komu og aðfarir þessa ræningjaflokks. John Gentlemann rændi klukkunni úr Landakirkju, og varð það honum til falls, því er hann kom heim til Englands, þekktist klukkan af áletrun, sem á henni var. Lét þá Jakob konungur Englands senda klukkuna aft- ur til Eyja, en John Gentlemaður og félagar hans voru hengdir fyrir tiltækið. Hvor sögnin um Hundraðsmannahelli er réttari skal ósagt látið, en líkur benda til að nafnið sé komið frá öðru hvoru ráninu. I sambandi við þessar Tyrkjaránssagnir mætti minn- ast nokkuð á Skansinn í Eyjum, eitt elzta mannvirkið, þótt hins vegar hafi hann lítið komið við sögu í rán- inu. Skansinn er mikið mannvirki, vel til hans vandað og hefur staðið ótrúlega vel af sér veður og tímans tönn. Það hefur alla tíð verið mikill og afhaldinn skemmtigöngustaður Eyjabúa. Þaðan sér vel til allra skipaferða til og frá höfninni. Þar hafa menn fyrr og síðar fylgzt með komu bátanna í vondum veðrum, og þar hafði setuliðið, er var í Eyjum í síðustu heims- styrjöld, eina af aðalbækistöðvum sínum, vopnabúr mikið og annan útbúnað margvíslegan. Minnti það Eyjamenn að vonum á liðna tíð, þ. e. a. s. á daga Her- fylkingar Vestmannaeyja (1856—1870). Um byggingu Skansins er fyrst vitað, að með bréfi 20. maí 1515, skipar Kristján konungur II. Söffrin Nordby foringja Iénsmann á íslandi í 3 ár með ákveðnum skilyrðum. Meðal annars átti hann að koma upp tveim virkjum þ. e. á Besssastöðum og í Vestmannaeyjum. Ástæður fyrir þessari varnarráðstöfun konungs hafa víst verið nægar, þar eð undanfarið höfðu verið miklar siglingar til íslands frá Englandi og Þýzkalandi,og nokkuð oft all- róstusamt, t. d. í Eyjum. Ekki varð þó af þessari virkis- gerð þá, því konungur afturkallaði þessa skipun sína. Á síðari hluta 16. aldar fyrirskipar svo Friðrik II. (bréf 1586) Hans Holst skipstjóra sínum „at bygge et Blokhus paa et beligligt Sted ved Havnen paa Wes- penoe“. Af reikningum umboðsmanns konungs sést, að þá hefur verið byggður „Skandtseu í Eyjum, þó ekki verði ráðið, hvar það hefur verið. Hefur það mannvirki sennilega verið fyrsti Skansinn og vísir til núverandi Skans, en hann líklega lagður í rústir af Tyrkjum 1627. Það er vitað að Skansinn í Eyjum var endurbyggður á árunum 1630 til 1637, og stóð fyrir því verki hr. Jens Hasselberg, er þá var verzlunarstjóri og umboðsmaður konungs hér í Eyjum. Telur Gísli biskup Oddsson hann mikinn verzlunarmann, og að hann hafi ýmislegt með höndum, sem til nytsemda horfi, t. d. látið endurreisa verzlunar- og íbúðarhús Dana í Eyjum, er brennd voru af Tyrkjum. Einnig hafi Hasselberg látið víggirða hús- in, til þess að geta varizt árásum ræningja, ef til kæmi. Húsin stóðu í þann tíð inni í Skansinum, en hann þótti snemina fagurt og mikið mannvirki og talað um hann sem mestu prýði Sunnlendingafjórðungs. Frá fyrstu dögum Skansins munu hafa verið þar og lengi fram eftir árum, einhver vopn, a. m. k. fallbyssur og auk þess varðmaður, sem kunnað hefur að fara með þau. Um 1640 er t. d. Jón Indíafari þar um tíma. Er hann í Eyjum með fjölskyldu sína en flutti héðan aftur vegna óyndis konu sinnar. Jón hafði í laun jarðarábúð, Efst til hægri: Kristnir fangar voru hafðir i hlekkjum i fanga- vist sinni i Norður-Afríku. Attu þeir þd óhcegt um allar hreyfingar og enga möguleika til að strjúka. 88 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.