Heima er bezt - 01.03.1959, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.03.1959, Blaðsíða 14
IIér sér veginn austur úr Skansinum i Eyjum. Skarðið á miðri mynd er á brjóstvirkinu á austurkantinum. Þar var fyrrum hajt rammbyggt hlið. Til hægri við skarðið sér á sjógeyminn. Til heegri á myndinni sést hleðslan greinilega, og er þannig hlaðið beggja vegna vegarins. inni, bindindi á vín aukizt mjög mikið, og búðarstöður nær alveg horfið, en þær voru mjög almennar. Herfylkingin starfaði í nálægt 20 ár, en aldrei kom til þess, að hún ætti í höggi við ræningja eða erlenda uppvöðsluseggi. Er fullvíst að útlendingum var vel kunnugt um lið Eyjamanna og hafa efalaust haft beyg af því. Fór orð af, að herfylkingin væri vel vopnuð og æfð og öll hin harðsnúnasta. Einu sinni sást grunsamlegt skip sigla austan frá að Eyjum. Var þá allt herliðið kvatt á „Skansinn“ og því komið fyrir í stöður með brugðna byssustingi o. fl. Var skipið egnt til áhlaups með því að draga upp og niður fánann á stönginni o. fl. En skip þetta lagði frá Eyjum og hélt til Reykjavíkur. Var það kaupskip og var sagt, að það hefði haft orð um, að þeir hafi undrazt yfir að sjá vopnað varnarlið í Vestmanneyjum á Skansinum! Þegar kapteinn Kohl lézt og var grafinn, mætti öll Herfvlkingin vopnum búin og heiðraði útför hans með heiðursvcrði o. fl. Hafði það verið mikilfengleg sjón. Það var 31. janúar 1860. Hvílir kapteinn Kohl undir minnisvarða, er Eyjamenn reistu honum til verðugrar minningar og sóma. Við fráfall kapteins Kohl tók Pétur Bjarnasen verzl- unarstjóri við yfirstjórn Herfylkingarinnar í stað J. P. T. Bryde, er kosinn hafði verið en ekki getað aðstaðið embættið vegna tíðra utanfara og fjarveru. Pétur þótti mjög röggsamur stjórnandi og var lífið og sálin í við- haldi Herfylkingarinnar meðan hans naut við. Síðar tóku aðrir við stjórn Herfylkingarinnar, en ekki tókst að halda fullkomnu starfslífi hennar gangandi miklu Iengur, og lagðist hún svo niður, mörgum til sárs saknaðar. Vopnin voru ýmist seld hingað og þangað eða ryðguðu niður í miður góðum geymslustöðum og urðu þar til. Á Þjóðminjasafninu í Reykjavík er þó til einn korði frá Herfylkingu Eyjanna í góðu ásigkomulagi og nú fyrir skömmu heyrðist, að a. m. k. einn rifill væri enn við líði í bænum í bezta standi. Er trúlegt að gripir þessir, þ. e. a. s. rifflarnir, prýði innan tíðar byggða- safn Eyjanna, sem frægar minjar frá einustu hersveit landsins. Fyrir ekki svo mörgum árum síðan voru enn lifandi nokkrir menn, sem vel mundu Herfylkingu Eyjanna, og skemmtistundir, er hún veitti eyverjum með sýn- ingum og gerviorrustum. Meðlimir hennar voru kjarn- inn úr karlmönnum Eyjanna, er þjálfaði sig í hvers kon- ar manndygðum og voru fyrirmynd landsmanna á mörgum sviðum. Að sjálfsögðu átti Herfylkingin sinn hersöng og fer hann hér á eftir, til þess að forða honum frá gleymsku, þar eð hann er í mjög fárra höndum. Þegar Herfylk- ingin „marseraði“ um þorpið sungu allir sem sungið gátu og gengu í takt við sönginn. Hersöngur Vestmanneyja herfylkingar 1856. Lag: „Den Gang jeg drog af Sted“. Allir það vitum vér að vænum drengjum ber að vernda land vort voða frá og vondum ránaskap. Að rækja reglu og frið og ríkja eining með og gæta alls sem gagnlegt er í góðum félagsskap. Því það, sem einn ei megnar, þó aflið reyni sitt, sjötíu verum vegnar, sem væri ekki neitt. Ef allir ásamt hér fyrir ættjörð berjumst vér. Húrra! Húrra! Húrra! Allir það vitum vær hvað eining orkað fær og að vort land enn binda má um blóðug örva sár. Því fyrri alda frægð -frá oss var orðin bægð, og því höfum við þungan stunið þrátt í mýmörg ár. En nú er mál að rísa af rökkursvefni senn, svo öllum megum vísa, að vorðnir erum menn. Nú vit vér höfum á að verja oss og slá. Húrra! Húrra! Húrra! Það komi hver sem má, af oss er enginn sá, sem ei er gæddur góðum hug og glæstúm hetjumóð. Áfram! Áfram! Afram! Fyrir vort kæra rann við skulum sýna að ljúft oss er að láta líf og blóð. Hina aðra vesla menn, sem voga ekki með, við skulum vernda voða frá og varna við ófrið. Sjötíu saman við er sélegt hjálparlið. Húrra! Húrra! Húrra! (Höf. ókunnur). Framhald á bls. 110. 90 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.