Heima er bezt - 01.03.1959, Page 23
um Ijóðið Lóa litla á Brú. Höfundur ljóðsins er Jón
Sigurðsson, starfsmaður í Búnaðarbankanum, og hafa
áður birzt ljóð eftir hann í þessum þætti. Haukur Mor-
thens hefur sungið lag og Ijóð inn á hljómplötu.
Hauk Morthens þarf ekki að kynna fyrir lesendum
þessa þáttar, því að enginn dægurlagasöngvari er eins
vel þekktur og Haukur.
Og þannig er þá ljóðið:
Lóa litla á Brú,
hún var laglegt fljóð,
svo ung og glöð
og æskurjóð,
vildi fá sér vænan mann
og vera alltaf svo blíð og góð við hann.
og vinir fagna, vorsins undur gerast,
þá verður yndislegt að koma heim.
Ennþá liggur hjá mér allvænn bunki af bréfum, sem
reynt verður að svara eftir því sem rúm leyfir. Sendið
óskir ykkar bréflega.
Stefán Jónsson,
Skeiðarvogi 135, Reykjavík.
Bréfaskipti
Ég undirritaður óska eftir að komast í bréfasamband
Og eitt sumarkvöld
ók hann Sveinn í hlað
á litlum bíl
og Lóu bað
aka með sér upp í sveit,
þá varð hún feimin og rjóð og undirleit.
Og síðan saga þeirra
varð sögum margra lík.
Þau áttu börn og buru,
og þau búa í Reykjavík.
Hann vinnur eins og hestur,
og hún hefur sjaldan frí,
því Lóa þarf að fá sér fötin ný.
Lóa litla á Brú,
hún er Iagleg enn
og hýr á brá
og heillar menn,
ergir oft sinn eiginmann,
því hún er alltaf svo blíð við aðra’ en hann.
Heimþrá eftir Tólfta september, sem sungið er af
Erlu Þorsteinsdóttur, er mjög vinsælt lag og Ijóð, og
hafa margir beðið um að fá ljóðið birt í þessum þætti.
Erla Þorsteinsdóttir og Tólfti september hafa bæði
verið kynnt áður.
Mig dreymir heim um dimmar, kaldar nætur,
mig dreymir heim til þín, ó móðir kær,
er hjarta þreytt í húmi dapurt grætur
og hníga tár, sem þú ein skilið fær.
Og þegar blessuð sólin gegnum glugga
með geislum sínum strýkur vanga minn,
mér finnst það vera hönd þín mig að hugga,
og hjartað öðlast ró við barminn þinn.
Er sunnan-gestir sumarlandsins berast
á söngvavængjum norður bjartan geim
við dreng eða stúlku á aldrinum 10—11 ára.
Sigurður H. Helgason, Grund, Grýtubakkahr.,
Höfðahverfi, Suður-Þingeyj arsýslu.
Óska eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 13—
15 ára.
Stefanía Helgadóttir, Keldunesi, Kelduhverfi,
Norður-Þingey j arsýslu.
• • VILLI
Heima er bezt 99