Heima er bezt - 01.03.1959, Síða 25

Heima er bezt - 01.03.1959, Síða 25
að venju og nýtur þráðrar hvíldar í mjúku skauti hans. En endurminningarnar frá sumrinu liðna flykkjast fram í huga hennar, og fyrr en varir streyma brennheit tárin niður kinnar hennar, og hún lofar þeim að streyma óhindruð, því hér uppi í Árhvammi sér þau enginn. — Kvöldhúmið dökknar, þögnin verður dýpri, fossinn raular vögguljóð sitt, tíminn líður. Eldhússtúlkan á sýslumannssetrinu er ekki lengur ein í Árhvammi. Þangað vitjar einnig í kvöld eigandi hans að loknu starfi. Asta hrekkur upp úr döprum hugleið- ingum sínum og sezt upp í fáti. Hún heyrir fótatak rétt hjá sér og lítur skelkuð í kringum sig, en vissulega er ekkert að óttast. Valur er kominn í lundinn og nem- ur staðar við hlið hennar. Þau horfa hvort á annað nokkur augnablik, en hvorugt mælir orð af munni. Svo sezt hann þögull hjá henni. Ástu kemur fyrst til hugar að rísa á fætur og hlaupa á brott, án þess að gefa honum nokkurt tækifæri til að hefja umræður, en hún hefir ekki tíma til að framkvæma þessa hugsun sína, því að rödd hans rýfur þögnina, þýð og nærri angurvær, og hann segir: — Ertu alveg hætt að syngja Árhvamminum mínum fallega kvæðið um Fossinn og Eikina, Ásta? — Ég syng hvorki það né annað, þó ég fari hingað upp í Árhvamminn. — Ertu þá búin að gleyma því, að eitt sinn kom okk- ur saman um að yrkja nýjan endi á kvæðið um Fossinn og Eikina og láta hann lýsa fyllingu lífsins, en enda ekki með skilnaði og dauða. — Mér hefir víst aldrei komið til hugar að reyna að breyta kvæðinu á neinn hátt, enda kann ég ekkert til slíkra hluta, og endirinn finnst mér alveg ágætur á þann veg, sem skáldið gerði hann í fyrstu, því hann er raun- veruleg mynd af lífinu sjálfu, eins og það er. — Vertu nú ekki of svartsýn, Ásta, þú veizt þó að lífið á, sem betur fer, fleiri en eina hlið, og skáldið hefur auðsjáanlega haft eina hinna dekkrí í huga, þegar hann orti þetta hugljúfa ástarkvæði sitt. — Það verður nú kannske fleirum en skáldinu á að hafa dekkri hliðina í huga, að minnsta kosti þeim, sem varla hafa augum litið hinar bjartari hliðar lífsins. — Þeir eru nú vonandi fáir, sem ekki hafa séð björtu hliðarnar líka. Ásta svarar því engu, og þau sitja hljóð um hríð, en þögnin hvíslar heitum og þungum hjartaslögum þeirra beggja. Skyndilega tekur Valur um kalda hönd hennar, sem hvílir í döggvotu grasinu, og þrýstir hana fast, en mjúldega í heitri karlmannshönd sinni, og varir hans hvísla, lágt og angurblítt: — Hvemig ætlar þú að láta kvæðið okkar enda, Ásta? — Kvæðið okkar? Ég veit ekki til þess, að við eigum neitt sameiginlegt kvæði. — Þú misskilur mig, Ásta. Af hvaða ástæðu heldur þú, að ég hafi ráðið þig hingað að Ártúni? Ásta lítur snöggt á Val og brosir kalt: — Af með- aumkun. — Hið kalda bros hennar og svar særir Val, en hann segir jafn hlýtt og rólega og áður. — Já, Ásta mín, víst fann ég til með þér og skildi kjör þín. Það var vissulega rétt, en — hann færir sig nær henni og þrýstir hönd hennar enn fastar. — Tilgangurinn var sá, þegar ég sendi þig hingað heim að Ártúni, að skapa þér heimili og gefa þér allt með mér. — Viltu þiggjfi þetta af mér, Ásta? í svipinn getur hún engu svarað. Hún starir út í kvöldhúmið, og fjölþættar hugsanir streyma fram í vit- und hennar. Er henni óhætt að treysta orðum Vals? Getur þetta verið raunveruleg meining hans? En þótt svo væri, er þetta með öllu óhugsanlegt í framkvæmd. Hún er aðeins fátæk og ómenntuð vinnustúlka, en hann er hálærður maður og höfðingjaefni sýslu sinnar, hvers virði gæti hún orðið slíkum manni. Skyldur þær, sem þeirri stöðu fylgdu að standa við hlið stórmennis og stjórna heimili hans, yrðu henni vafalaust ofviða, og það gæti hún ekki þolað. Hún hefir heldur ekki gleymt hverju hún lofaði móður hans í sumar og sjálfri sér jafnframt. Nei, hún skal aldrei setja blett á Val né ætt hans, og aldrei þiggja meðaumkun hans framar. í kvöld er úr- slitastundin, og nú má hún hvorki bregðast frú Hildi né sjálfri sér. Hjarta hennar verður að vera hlutlaust, því helgustu tilfinningar þess eiga engan rétt á sér í þessu máli. Ásta þvingar fram allan þann kulda og hörku, sem hún getur knúið fram í hjarta sínu, og loks er hún til- búin að svara honum. Hún kippir að sér höndinni um leið og hún segir kalt og rólega: — Ég þarf ekki að þiggja neitt náðarbrauð, ég get séð fyrir mér sjálf. — Náðarbrauð! Bitur orð hennar snerta Val eins og svipuhögg. Hann sprettur á fætur og segir sárri og titr- andi rödd: — Þú misskilur mig ennþá, Ásta, ég býð þér ekkert náðarbrauð, eins og þú orðar það, en ég vil gefa þér það helgasta og bezta sem ég á. — Það skaltu gefa þeirri, sem þess er verðug, en ekki mér. Valur stendur kyrr um stund og horfir á Ástu, en kvöldhúmið hylur að mestu kvöl þá, sem logar í augum hans, og loks segir hann lágt: — Er þetta lokasvar þitt, Ásta? — Já, ég hef þar engu við að bæta. Hann lofaði henni að eiga síðasta orðið og snýr á brott. Lamaður af þunga sárustu vonbrigða yfirgefur hann lundinn sinn kæra að þessu sinni og gengur hægt ofan með ánni heim á sýslumannssetrið. Ásta situr kyrr og horfir á eftir Val, en augu hennar fyllast tárum og hann hverfur í móðu þeirra. Allur uppgerðarkuldi og harka er horfið úr sál hennar, og hún hnígur út af í lundinn, máttvana af sorg og kvöl. Þögnin er djúp og höfug, og húmsæl nóttin ríkir. Nýr dagur rís, og skuggar næturinnar víkja í brott. Fyrstu ylgeislar rísandi sólar falla niður yfir Árhvamm- inn og þerra dögg næturinnar. Ásta vaknar af þungum svefni og sezt upp, köld og stirð- Hún lítur fyrst for- Heima er bezt 101

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.