Heima er bezt - 01.03.1959, Page 26

Heima er bezt - 01.03.1959, Page 26
viða í kringum sig og reynir að átta sig. Henni er brátt ljóst, að hún hefir gist heila nótt í Árhvammi, og þar hefir hún fundið frið. En smám saman skýrist fyrir henni sá hræðilegi veruleiki, sem hún sofnaði frá, og aldrei hefir henni liðið jafnilla og nú. Hvað á hún að gera? í Ártúni getur hún ekki verið lengur. Hún verður að komast þaðan sem allra fyrst, hvað sem það kostar. Hún rís á fætur og heldur af stað ofan eftir Árhvammi, en að þessu sinni eru spor hennar þung heim á sýslu- mannssetrið. Enn hvílir heimafólkið að Ártúni í fasta svefni í morgunkyrrðinni. Ásta gengur hljóðlega inn í húsið og nemur staðar í eldhúsinu. Veggklukkan uppi í dagstof- unni slær sjö hljómsterk högg, og þau besast niður í eldhúsið til Ástu. Hennar venjulegi vinnutími er haf- inn, og skyldan kallar hana til starfa, því að enn hefir hún ekki fengið sig lausa úr vistinni. Hún verður að bíða þess, að frú Hildur komi á fætur, svo að hún geti borið fram lausnarbeiðni sína. Ásta gengur að sínum venjulegu störfum, og morg- uninn líður. XX. Hádegissólin ljómar björt og heit, og geislar hennar falla iðandi af lífi og fegurð inn um gluggana á sýslu- mannssetrinu. Frú Hildur situr við útsaum í dagstof- unni fyrir opnum glugga og nýtur yls síðsumarsólar- innar. En skyndilega er stofuhurðin opnuð, og Ásta kemur inn. Hún staðnæmist fyrir framan húsmóður sína, og heit bæn brýzt formálalaust fram af vörum hennar: — Lofið mér að fara héðan, frú Hildur, ég get ekki verið hér lengur. Saumarnir falla niður í kjöltu frú Hildar, og hún lítur undrandi á Ástu. — Hvað hefir komið fyrir þig, barn? — Ásta svarar því engu, en rödd hennar titrar af grát- klökkva, og hún segir: — Ég bið yður bara að lofa mér að fara héðan strax. — Einhverja ástæðu hlýtur þú að geta borið fram fyrir vistrofunum, og ég hefði gaman af að heyra, hvað það er. — Það er þungi í rödd frú Hildar, og hún horfði fast á Ástu. En Ásta lýtur höfði og segir lágt og biðjandi: — Eg ber enga ástæðu fram, því ég get það ekki, en ég bið yður að gefa mér upp vistina. — Ekki held ég þér nauðugri á heimili mínu, en þú ert fyrsta stúlkan, sem gengur burt úr vistinni hér í Ártúni, og slíkt mælist aldrei vel fyrir. Ásta reynir að stöðva áleitin tárin, sem leita fram í augu hennar, og nokkur andartök ríkir alger þögn. Frú Hildi er það vel ljóst, að Ástu líður illa, (fg eitthvað meira en lítið hlýtur að hafa komið fyrir hana, fyrst hún óskar svona eindregið eftir því að fara strax úr vistinni. En ástæðuna fyrir burtför hennar verður frú Hildur að fá að vita, því það getur skipt hana miklu máli. , Hún horfir á Ástu, og mildar tilfinningar vakna í sál sýslumannsfrúarinngr. Ásta er þó þrátt fyrir allt fátæk og vinalaus, og það hlýtur að vera mikilvæg ástæða fyrir því, að hún skuli vilja yfirgefa þennan ágæta stað á miðjum ráðningartíma og fara eitthvað út í óvissuna, heimilislaus og einmana. Frú Hildur rýfur þögnina og segir hlýlega: — Viltu ekki reyna að vera kyrr þessar fáu vikur, sem eftir eru af ráðningartíma þínum og njóta sumarsins til enda hérna í sveitinni. Það er miklu skemmtilegra fyrir okkur báðar. — Ég get það ekki, ég verð að fara. — Ásta ræður ekki lengur við tár sín, og þau brjótast fram í óstjóm- legum sársauka, en hún ætlar ekki að gráta frammi fyrir frú Hildi, og án þess að bíða eftir fullnaðarsvari gengur hún fram úr stofunni. Frú Hildur situr ein eftir, og andstæðar tilfinningar rísa í sál hennar. Hún finnur til hlýrrar samúðar með þessari einstæðings stúlku, sem hefir unnið heimili hennar af mikilli snilld og trúmennsku í sumar, og hún vill reynast Ástu góð húsmóðir, en að missa hana úr vistinni svona fyrirvaralaust veldur henni miklum óþæg- indum og hlýtur að vekja umtal, en slíkt særir metnað sýslumannsfrúarinnar. Hún andvarpar þunglega og rís á fætur. Hún verður að ganga á fund eiginmanns síns og leita ráða hjá honum í þessu vandræðamáli. Þórður sýslumaður situr einn á skrifstofu sinni og vinnur að ritstörfum sínum. Hann er svo niðursokk- inn í starf sitt, að hann veitir því enga eftirtekt, að hurðin opnast hljóðlega að baki hans, og Hildur kona hans kemur inn í skrifstofuna. Hún gengur að skrif- borði manns síns og leggur hönd sína á herðar hans. Sýslumaðurinn leggur frá sér pennann og snýr sér að konu sinni. Hann horfir ástúðlega á hana um hríð, og honum dylst ekki, að hún er í æstu skapi. Svo brosir hann til hennar og segir blíðlega: — Hvað er þér á höndum, góða mín? — Það hefir komið nokkuð óvænt fyrir hérna í Ártúni í dag, sem ekki hefir skeð fyrr í mínum bú- skap. — Jæja, og hvað er nú það? — Eldhússtúlkan okkar óskar eindregið að fá sig lausa úr vistinni. — Nú, og af hvaða ástæðu vill hún fara svo óvænt? — Það get ég ekki sagt þér, hún bar enga ástæðu fram fyrir burtför sinni, en vill bara fara héðan, ég held helzt strax í dag. Djúp alvara færist í svip sýslumannsins, og hann segir festulega: — Hvernig hefir þú hugsað þér að leiða þetta mál til lykta? — Ég veit það varla, en auðvitað kemur það mér mjög illa að missa Ástu á þessum tíma, og það svona fyrirvaralaust. En hún sækir þetta svo fast. Hvað leggur þú til málanna, Þórður? — Ekki höldum við stúlkunni nauðugri á heimili okk- ar, þótt burtför hennar valdi miklum óþægindum á þessum tíma. En veit Valur að hún óskar eftir að fara héðan. . Framhald. 102 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.