Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1959, Qupperneq 35

Heima er bezt - 01.03.1959, Qupperneq 35
 'f ■ 297. Hvað cg hafði þráð þessa stund! Og hvað ég hafði verið hræddur um Mikka! Loksins gat ég nú faðmað að mér gamla, trygga vininn minn. Og ég þarf víst ekki að vera fjölorður um, að Mikki var eigi síður glaður en ég sjálfur! 298. Maðurinn, er kom með Mikka til mín, sagði mér nú frá, að kona ein, sem var mesti dýravinur, hefði tekið Mikka og annazt hann, og er hún af tilviljun las auglýsinguna, sendi hún hundinn til næsta fiskiþorps með járnbrautarlest. 299. Dagarnir líða hratt, og Nikulás er aftur kominn á fætur. Hann er nú ger- breyttur maður. Síðan hann hætti að drekka hefur hann reynzt bezti maður og mjög vingjarnlegur. Og við Mikki unum okkur prýðisvel á eynni hans. 300. Kvöld eitt, þegar ég er að ganga mér til skemmtunar með Mikka, rekur hann allt í einu upp ógurlegt illsku- gjamm og þýtur í hendingskasti ofan að bátabryggju. Ég kalla á hann og skipa honum að koma. Hann sinnir því ekki. 301. Ég sé, að maður gengur í land úr báti við bryggjuna og stefnir upp að húsi okkar. Mikki þýtur að húsinu með ógurlegu gelti. Loks bítur hann í frakka- lafið á manninum og rykkir og rífur í það af öllum kröftum. 302. Ég blístra og kalla á Mikka, sem hleypur á eftir honum. En Mikki er al- veg trylltur af bræði og gegnir mér ekki. Og loks hleypur maðurinn dauðskelk- aður eins og fætur toga í áttina heim til hússins. tm....._ 303. Nú kannast ég við gestinn og verð verulega hræddur. Þetta er þá enginn annar en gamli þorparinn Perlberg! — Bölvandi ryðst hann inn í húsið og skellir hurðinni á eftir sér. 304. Ég get séð skuggann af Perlberg gegnum gluggatjöldin í herbergi Niku- lásar og bægslagang hans. Það er auðséð, að hann er bálreiður. Ætti ég að hætta á að smeygja mér inn til þeirra? 305. Nei, ég kýs að bíða úti, og labba gætilega burt frá húsinu. Hvað skyldi nú Perlberg hafa í huga? Ekki þarf að efa, að það er eitthvað misjafnt og óhreint, eins og oftast áður!

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.