Heima er bezt - 01.08.1959, Síða 4

Heima er bezt - 01.08.1959, Síða 4
Vignir Guðmundsson blaðamaður rabbar við Eirík Kristófersson skipherra á Þór Pá vildu allir strákar verda sjómenn Um hógværar handtökur, bóndason af Barðaströnd, rottugang og dulræn fyrirbæri UM ÞESSAR mundir er að koma út ævisaga Eiríks Kristófers- sonar skipherra. Kennir þar margra grasa, og mun menn fýsa að kynnast æviferli þessa margreynda sjómanns og skipstjórnar- manns. Ævisöguna hefur Ingólfur Kristjánsson blaðamaður ritað, en Kvöldvökuútgáfan á Akureyri gefur út. Hér fer á eftir stutt viðtal við skipherrann. r E^g veit ekki hvað þú kallar sögulega handtöku, Eiríkur. Við höfum lesið um, að þið hafið elt skip fleiri tugi sjómílna á haf út og jafnvel orð- “■ ið að skjóta þau sundur og saman, áður en skip- stjórinn hefur fengizt til að nema staðar. — Já. Um það hafa nú allir heyrt. En það væri ekki nema ég segði þér frá hógværustu handtökunni, sem ég hef lent í. Eiríkur Kristófersson skipherra á Þór hallar sér aft- ur á bak í sófanum í íbúð sinni í flaggskipi íslenzka flotans. Hann kímir góðlátlega, treður Prins Albert í svera pípu með leðurklæddum haus, og kveikir í. Hógvær handtaka. — Ég var þá á Gaut og við vorum suður á Hafnar- leiði. Þetta var um hánótt í blankalogni og sléttum sjó. Þá sjáum við, hvar enskur togari liggur með vörpuna Varðskipið „Þór“, flaggskip íslenzka varðskipaflotans. á síðunni nokkuð fyrir innan línu. Bátarnir frá Sand- gerði og Keflavík eru að fara í róður og sigla út allt í kringum togarann. Við rennum hægt upp að bakborðs- síðunni á honum og bindum okkur fasta. Ég skunda um borð og upp í brú en sé þar engan mann. Karlarn- ir eru allir við vörpuna stjórnborðsmegin og enginn þeirra hefur tekið eftir okkur. Ég litast um í brúnni, en enginn kemur. Þá geng ég út stjórnborðsmegin og sé þar skipstjórann, hvar hann hallar sér fram á brúar- vænginn og er að tala við karlana. Ég geng til hans, klappa á öxlina á honum og býð gott kvöld. Hann snýr sér við, gónir á mig eins og tröll á heiðríkju og spyr undrandi: — Þú hér? Við erum þó ekki í landhelgi? — — Jú, það er nú einmitt það, segi ég. — Jæja, þá er víst ekki um neitt að gera. Skipstjórinn fylgdi okkur svo án nokkurrar mótbáru, er menn hans höfðu gert klárt á dekkinu, til Reykjavíkur. Þar var svo dæmt í málinu, hann borgaði sektina, kvaddi og fór aftur á veiðar. Já, þannig getur þetta gengið til stundum. Bóndasonur af Barðaströnd. Við höfum setið um hríð og rabbað um flest sem nöfnuni tjáir að nefna, allt frá dulrænum fyrirbrigðum og niður í rottugang um borð í skonnortunni Hauk. Ég hef fræðzt um það að skipherrann er fæddur á Brekkuvelli á Barðaströnd hinn 5. ágúst árið 1892.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.