Heima er bezt - 01.08.1959, Blaðsíða 14
ÁRNI í EYJUM ÁRNASON:
Einn á eyðihjarni
Yfir kaldcm eyðisand
einn um nótt ég sveima....
Fyrstu mánuði ársins 1910 var nokkuð kalt í
veðri, frost allhörð og snjókoma, sem þó varð
að mestu leyti að svellhjarni í lágsveitum Yestur-
Skaftafellssýslu, því að öðru hvoru blotaði í
snjóinn nýfallinn og. fraus svo strax á eftir. Eins og oft
áður og síðar, bar svo til þenna vetur, að útlent skip
strandaði á Meðallandsfjörum. í þetta sinn var það
enskur togari, Thomas Hamling að nafni. Varð hann
fyrir því óhappi, að rekast upp á Skarðsfjöru. Skipverj-
ar komust heim til bæjar hraktir og illa til reika. Það
gátu menn fljótt skilið að tvo menn vantaði af skips-
höfninni, að annar væri dáinn en hinn slasaður.
Strax barst fréttin um sveitina. Allir sem gátu, brugðu
við að leita hins strandaða skips og manna þeirra er
vantaði. Skipið fannst fljótt og lík þess er látinn var, en
það tók nokkurn tíma og allmikla leit að finna hinn
slasaða mann. Hann var fótbrotinn og mjög illa hald-
inn af kulda og þreytu. Var hann fluttur til bæjar, þar
sem hann fékk þá hjúkrun, sem unnt var að veita og
góða hjálp er Iæknirinn kom á vettvang.
Maðurinn hresstist líka furðu fljótt, en varð þó vitan-
lega að vera kyrr og eftir af félögum sínum, er þeir
skömrnu síðar voru fluttir til Reykjavíkur áleiðis heim
til sín.
Skömmu eftir þetta þurfti ég að fara til Víkur í
Mýrdal. Stóð svo á, að ég þurfti að leggja af stað dag-
inn, sem uppboð var haldið á varningi þeim, er bjargað
var úr togaranum. Þann dag var bjart veður og spakt
með talsverðu frosti. Ég lagði af stað um hádegisbilið.
Kúðafljót var þá ekki neinn farartálmi, þareð það var
lagt alltraustum ísi, nema nokkrir smá álar vestast í
„Utfljótinu“.
Ég hélt sem leið lá að Þykkvabæjarklaustri. Þar naut
ég hins bezta beina, eins og jafnan á þeim bæjum, og
fékk náttstað. Að morgni var svipað veður en frost
þó nokkru meira. Lítill snjór var í Alftaveri en íshella
yfir öllu. Það var álit manna þar, að á sandinum mundi
hjarnið halda gangandi manni, þó lítt eða alls ekki væri
fært hestum.
Ég lagði af stað frá Þykkvabæjarklaustri snemma
morguns. Var ég með létta tösku á bakinu. í henni
voru þurrir sokkar, matarbiti og auk þessa stakk ég í
hana smávisk af þurri töðu. Ég gekk sem leið lá fram
hjá Hraunbæ og út í Mýrdalssand. Gekk ferðin vel, því
að færið var þá ágætt. Nú varð fyrir mér auður lækur
sem heitir „Kælir“. Þareð frostið var allhart fannst
mér ekki gott að bleyta plögg mín. Tók ég því það ráð
að fara úr sokkunum og vaða berfættur yfir lækinn,
sem ekki var djúpur. Allt gekk þetta vel. Eftir þetta
var þurr vegur út undir Dýralækjarsker, en þar var
auður uppsprettulækur. Ég hafði sömu aðferð við hann,
óð hann berfættur og bretti upp buxnaskálmunum til
að verja þær bleytu. Þetta gekk prýðilega. Þegar upp
úr læknum kom, lét ég ofurlítinn töðuvisk við ilina, um
leið og ég fór í sokkana, til þess að fyrirbyggja að raki
kæmist að þeim.
Rétt síðar fór færðin að þyngjast. Snjórinn fór vax-
andi eftir því sem utar kom. Hörð skel var á honum
sem hélt manni eitt og eitt skref, en jafnaðarlegast
brotnaði hún undan fætinum. Auðséð var að gangan
mundi verða erfið. Þó hélt ég áfram og vonaði að
skárra yrði þegar enn utar kæmi á sandinn.
Nálægt miðjum sandinum eru tvær ár með stuttu
millibili. Þær eru Blautakvísl og Háöldukvísl. Þær voru
báðar auðar enda frjósa þær sjaldan. Blautakvísl var í
tveim álum en ís á miðjunni. Ég fór nú úr sokkunum
og ytri buxunum og óð yfir austari álinn. En þat sem
aðeins fá skref voru milli álanna, vildi ég spara tímann
og hlaupa milli þeirra án þess að fara í skó eða sokka.
En ísinn var kaldur og krafðist tolls. Tók hann því of-
urlítið af yztu húð iljanna á fótum mér, heldur en að
fá ekki neitt. Þetta gekk nú samt allt sæmilega, einnig
yfir Háöldukvísl. Hún var þó nokkuð dýpri og lá í
einu lagi, en tolla greiddi ég henni enga.
Ekki batnaði færðin, það var nú eitthvað annað.
Leiðin sóttist því seint og þreyta fór að gera vart við
sig. Langt var enn til byggða og nokkur tvísýni var á,
hvort þrekið entist til þess að komast á leiðarenda. Þó
var ekki um annað að gera en reyna að halda áfram.
Ekki dugði að leggjast fyrir. Hægt og hægt nálgaðist
Höfðabrekkufjall og hvert sporið færði mig nær tak-
markinu. Þannig hélt ég áfram lengi, hægt og sígandi,
en þreytan óx og freistingin að setjast niður og hvílast.
Ymsar sagnir komu fram í huga minn, sagnir um menn,
sem lentu í ófærð og illveðrum á eyðisöndum eða á
heiðum uppi. Þeir ko’must stundum til byggða eftir
mikið erfiði oft stórskemmdir af kali eða meiddir. Aðr-
ir lögðust fyrir þreyttir og örmagna eða villtust af leið
og enginn var til frásagnar um stríðið, sem háð var áð-
ur en yfir lauk. Það segir fátt af einum.
Það var óumræðilega gott að vera þurr í fæturna og
töðuviskurinn veitti notalega hlýju. Ekki hlóðst heldur
til muna snjór í buxurnar því þær höfðu ekki blotnað
í ánum. Ég var öruggur um að halda réttri leið, þótt
nú væri farið að snjóa nokkuð, því stikur stóðu upp
úr snjónum með stuttu millibili — 60 faðma millibili —.
I raun og veru var þess vegna allt í lagi á meðan þrekið
270 Heima er bezt