Heima er bezt - 01.09.1959, Side 12

Heima er bezt - 01.09.1959, Side 12
Þannig leit út á Strandstígnum um 1918, um vetrartíma. Sölu- turninn rnerktur með x. Ishúsið til hægri á myndinni. Fyrir miðju sér á verzlunarhús Drifánda. Öll önnur hús á myndinni eru fiskikrær og beituskúrar, sem nú er löngu horfið, en stór- hýsi komin i staðinn. á vegum Björgunarfélags Vestmannaeyja í glugga „Söluturnsins“ við Strandveg og sett hafði verið þar upp, af félaginu, sjálfritandi loftvog (Barograf), lögðu formenn oftast leið sína þangað er þeir fóru til róðra, til athugunar á veðri og vog. Urðu þar oft spjallfundir um veðrið ef menn „voru í vomum“, þ. e. hvort róa skyldi eða ekki. Þegar veðurspáin var vond, stormur eða rok í aðsigi, var hún birt á rauðum þar til gerðum eyðublöðum. Vöktu þau eyðublöð meiri athygli en venjuleg hvít. Þessi rauðu skeyti voru nefnd „storm- skeyti". Ef þau birtust í glugga Söluturnsins tók af all- ar vomur og spjallfundi formanna lauk. „Það er rok í honum, ég ræ ekki,“ sögðu þeir, eða eitthvað því líkt, og hver fór aftur til síns heima. Menn trúðu fastlega á veðurspána. Burtfararmerkið, þ. e. blússið, var þá gefið frá einum bát, sem kjörinn var til þessa starfa af bæjarstjórn kaup- staðarins. Þótti það virðingarstarf hið mesta. Blússið var gefið með björtum ljósblossa, sem bar vel yfir. Olíu- blautum tvisti var vafið um skaft á t. d. fiskigogg, kveikt í tvistinum og blysinu haldið á lofti stutta stund. Síðan var drepið snögglega á blysinu þannig, að því var dýft í sjóinn. Hver bátur lá þá við eigin festi á höfninni þar til að blússið kom. Enginn mátti fara af stað í róðurinn á und- an því, og lágu refsingar, þ. e. fjársektir, við ef út af var brugðið. Vel var þess gætt að hafa ekki of mörg vöf af við- legukeðjunni á pallstyttunni, þcgar leið að blússtíma og hafður handfljótur og öruggur maður við að slcppa viðlegubólinu. Skjökktbáturinn, þ. e. þríróinn árabátur, sem liafður var til þess að fara á, milli lands og vélbáts þegar útfiri var og ekki flaut að bryggjunum, scm og til þess, að fara á út í vélbátinn, sem lá við festar sínar á „Botninum“, þ. e. Innri höfninni, og lá þar oftast þeg- ar vélbáturinn fór í róður. Skjökktbátnum var haldið þannig, að sem allra fljótlegast gengi að komast af stað og sleppa honum þegar blússið kom. Þetta gekk oftast ótrúlega fljótt fyrir sig. Þess var einnig ávallt gætt að láta vélbátinn „horfa út Leiðina", þ. e. hafnarmynnið. Þegar vindur var vestan eða norðvestanstæður, var stundum strítt í ströngu í þessu efni. Viðlegukeðjan var þá færð aftur á og hún fest þar, svo báturinn gæti snúið rétt þegar blússið kom. Þegar það svo birtist, varð allt á flugi og ferð og oft þröng mikil á „Leiðinni“ og yzt í höfninni. Allir vildu verða fyrstir út og hreppa beztu fiskimiðin. Voru bátarnir þá keyrðir áfram með þeirri orku, sem frekast þótti gerlegt, út á bátaleguna og innsiglinguna allt út á „Víkina“, þ. e. Ytri-höfnina. Þar var svo allt sett á fullt, svo sem bátur og vél þoldu. Oft virtist þessi útsigling bátanna úr Innri-höfninni gerð meir af kappi en forsjá, þar eð „Leiðin“ er þröng milli hafnargarðanna, ekki bein útsigling og bátafjöld- inn þess utan 70 til 80 bátar af mismunandi stærðum og ganghraða. Furðu lítið var þó um stór eða alvarleg brot á bátum í þessum ærslagangi, þó hins vegar kæmi fyrir ekki ósjaldan minni háttar árekstrar og allharðir pústr- ar, er ollu einhverjum skemmdum, braki og brestum, hrópum og köllum skipverja með mergjuðum orða- hnippingum milli báta. Þó orkaði þetta meir, sem græskulaus orðaleikur heldur en alvarlegar ásakanir, sem gleymt var um leið og það varð til. Austur á „Skansi“ og frammi á'haus syðri hafnar- garðsins, mátti oft sjá fólk á öllum aldri sem beinlínis vakti fram á róðrartíma bátanna eða vaknaði til þess að sjá bátaflotann leggja úr höfn á góðviðrisnótt- um. Það þótti fögur sjón og tilkomumikil, að sjá hann upplýstan eftir föngum þeysast út „Botninn“, bátaleguna, út um hið þrönga hafnarmynni í kolsvarta myrkri aðeins máske hálfan meter frá hafnargarðs- hausnum. Þar stóð fólkið og hrópaði velfarnaðarkveðj- ur til sjómannanna, sem stóðu í hálfrökkri á dekkinu, nema þegar ljósgeislar hafnargarðsvitans klufu myrkrið með ljósgeisla sínum nokkur augnablik í einu. Þarna þutu bátarnir áfram hlið við hlið, stefni við stafn í óslítandi röð. Vélarnar stynjandi, suðandi og hljóðandi í ýmiss konar hljómföllum, hátt og hvellt, dimmt og mjúklega. „Leiðin“ varð eins og uppbólginn, hvítfald- andi straumáll frá átökum skrúfunnar og hvarvetna á Myndin sýnir leiðina út milli hafnargarðanna og hve sund- ið er þröngt. 304 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.