Heima er bezt - 01.09.1959, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.09.1959, Blaðsíða 35
342. „Ekki getum við skilið aumingja Perlberg eftir í dauðans hættu," segi ég við Mikka. „Við verðum að reyna að bjarga honum, þó að hann sé fjandmað- ur okkar. Hann er sýnilega ekki syndur. Hvað skal gera? Ef við hefðum bát. .. “ 343. Ég svipast um á tjarnarbakkanum. Engan finn ég bátinn, en eftir dálitla stund rekst ég á digran trjástofn. Loks get ég skotið honum á flot, og síðan stígum við Mikki um borð í skipið eða trjábolinn. 344. Ég hef náð mér í langan stjaka og nota hann til að róa mig yfir um tjörn- ina. Gagntekinn af sívaxandi ótta og skelfingu bíður Perlberg hinum megin tjarnarinnar, og eldurinn nálgast hann í sífellu. 345. Ég þarf ekki að hafa fyrir því að biðja Perlberg að fá sér sæti á trjástofn- inum. Skjálfandi af ótta og ákafa skreið- ist hann upp á stofninn. Aður en varir var hann farinn að kveinka sér yfir því, hvað farkosturinn sé valtur. 346. Þrátt fyrir kvein og hræðslu Perl- bergs og alls kyns heimskulegar ráðlegg- ingar, komumst við ioks yfir tjörnina. Nú hef ég hugsað mér að gæta fyllstu varkárni. Ég stjórna bolnum þannig, að við Mikki hljótum að fara fyrstir í land. 347. Til að girða fyrir að Perlberg geti tafarlaust elt okkur uppi, ýti ég trjáboln- um snöggt frá landi aftur með stjakan- um. Perlberg verður æfur og skelkaður og veifar með staf sínum. En ég þekki kauða og treysti honum alls ekki. 348. Nú verður Perlberg að reyna að klóra sig að landi og róa með prikinu sínu. Honum gengur seint, eins og við var að búast, en sígur þó áfram. En við Mikki notum tímann til að forða okkur. 349. Við hlaupum nú sem fætur toga. Það er um að gera að vera komnir sem lengst frá tjörninni, áður en Perlberg nær fandi. Og það verður að minnsta kosti stundarkorn þangað til. 350. Eftir skamma stund sjáum við veg á milli trjánna, og þar koma tveir menn gangandi á móti okkur. Þeir veifa til okkar, óðar en þeir sjá okkur, og það er auðséð, að þeir hafa þekkt okkur aftur. Heima er bezt 327

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.