Heima er bezt - 01.09.1959, Side 24
synda yfir en fólk ferjað á lítilli kænu. Lögferjur voru
víðar á Hvítá fyrr á öldum, eins og t. d. á Hvítárósi,
skammt frá Hvanneyri. Vöð voru þó á Hvítá, þegar
Jengra kom upp í héraðið, en þau voru ekki fær, nema
þegar minnst var vatn í ánni.
En Hvítá og þverár hennar draga líka til sín auðæfi
úr hafinu. A hverju vori og fram eftir sumri, gengur
mikil mergð laxa inn í Hvítá og upp í árnar, sem í
Hvítá falla. Eru mestu laxveiðiárnar, auk Hvítár, að
austan Andakílsá, Grímsá, Flóka og Reykjadalsá, en að
vestan Gljúfrá, Norðurá og Þverá. í öllum þessum ám
unir laxinn í sumarleyfi sínu, en hverfur svo aftur út í
hafdjúpið með haustinu, það er að segja þeir, sem lifa
af ferðina upp árnar. En laxveiðimenn fylgja laxinum
eftir langt inn til dala og heiða, og reyna að ginna hann
a færi sín með litfögrum gerviflugum eða lostætum
maðki. Er laxveiði á stöng vinsæl íþrótt og eftirsótt, en
mjög dýrkeypt.
Menn eru mjög misjafnlega veiðnir eða heppnir, og
verður aldrei útskýrt af hverju sá mismunur stafar. En
eitt e!1 yfirleitt sameiginlegt með öllum laxveiði-mönn-
um, að þegar þeir segja frá veiðiferðum sínum, þá
missa þeir venjulega stærsta Jaxinn. (Framhald).
Stefán Jónsson.
Bréfaskipti
GuÖríin Benediktsdóttir, Birningsstöðum, Laxárdal, S.-Þing.,
óskar eftir að komast í bréfasamband við pilt eða stúlku á aldr-
inum 18—20 ára.
Halldóra Kristmsdóttir, Miðengi, Grímsnesi, Árn., óskar eftir
bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 13—15 ára.
Valgerður Kristinsdóttir, Miðengi, Grímsnesi, Árn., óskar eftir
bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 12—14 ára.
Þórunn Kristinsdóttir, Miðengi, Grímsnesi, Árn., óskar eftir
bréfaskiptum við stúlkur og drengi á aldrinum 9—11 ára.
Grétar Amason, Lækjamóti, Þorkelshólshr., V.-Hún., óskar
eftir bréfaskiptum við stúlku eða pilt á aldrinum 11—12 ára.
Sævar Sigurgeirsson, Skeggjastöðum, Miðfirði, V.-Hún., óskar
eftir að komast í bréfaskipti við pilta eða stúlkur 13—15 ára.
Margeir Steinþórsson, Skeggjastöðum, Miðfirði, V.-Hún., ósk-
ar eftir að komast í bréfasamband við pilta eða stúlkur á aldrin-
um 26—28 ára.
Isafold Þorsteinsdóttir, Nauteyri, Nauteyrarhrepp, Norður-
Isafjarðarsýslu, óskar að komast í bréfasamband við pilt eða
stúlku á aldrinum 15—16 ára.
Margrét Benediktsdóttir, Staðarbakka, Miðfirði, V.-Hún., ósk-
ar eftir að komast í bréfaviðskipti við pilt eða stúlku 13—15 ára.
Dagný Marinósdóttir, Valþjófsstað I, Fljótsdal, N.-Múlasýslu,
óskar eftir að komast í bréfasamband við pilta eða stúlkur á
aldrinum 12—14 ára.
Jóna Guðmundsdóttir óskar að komast í bréfasamband við
stúlkur og drengi á aldrinum 10—12 ára. — Ragna Guðmunds-
dóttir óskar að komast í bréfasamband við pilta og stúlkur á
aldrinum 16—22 ára. — Valur Guðmundsson óskar að komast í
bréfasamband við drengi og stúlkur á aldrinum 12—14 ára. —
Þau eiga öll heima í Fremri-Hlíð, Vopnafirði, N.-Múlasýslu.
Aldrei áður hafa jafnmörg bréf borizt snertandi dæg-
urlagaþáttinn, og vil ég þakka öll bréfin, ásamt hlýleg-
um ummælum um þátt æskunnar í Heima er bezt. En
þegar bréfin eru mörg, er hætt við, að allir fái ekki í
einu blaði óskir sínar uppfylltar. Nokkur bót er að því,
í þetta sinn, að margir bréfritaranna biðja um sama lag
og Ijóð. Þetta vinsæla dægurlag er: Vertu sæt við mig.
Um þetta lag hafa beðið: Laufey E., Þráinn í
Hvammi, Lillý, Sigga, Gunna, Dóra og Lilla. Nellý
Sigurðardóttir, Bodda og Olga. Dúdda. Guðrún í Stafni
og Anna í Hólakoti. Enn fremur: Sigga, Nanna, Bára,
Ema og Steini í Hjarðarholti.
Ég fór á ball í bænum,
en bara gleymdi þér,
og þú varst ljóni líkust
og lékst þér svo að mér.
Þú fórst á ball með Bjarna,
og Bjarni kyssti þig.
Ég veit ekki, af hverju þú hatar mig.
Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.
Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.
Ó-ó-ó-c, vertu sæt við mig.
Ég veit ekki, af hverju ég elska þig.
Ég fór á ball með Birnu,
sem býsna falleg er.
Við svifum léttstíg saman,
ég sá hún skemmti sér.
En svo var ballið búið,
og ég bauð henni heim,
en hún sá aðra stráka
og fór með þeim.
O-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.
Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.
Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.
Ég veit ek'ki, af hverju ég elska þig.
Við skulum vera saman
og semja frið í kvöld
og láta ást og unað
hér aftur eiga völd.
Við höfum sært hvort annað.
Ég veit þú skilur mig.
Ég veit ekki, af hverju ég elska þig.
Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.
Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.
Ó-ó-ó-ó, vertu sæt við mig.
Ég veit ekld, af hverju ég elska þig.
316 Heima er bezt