Heima er bezt - 01.10.1960, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.10.1960, Blaðsíða 2
Hálfrar aldar sigurför Hinn 6. september sl. var minnzt 50 ára afmælis Heilsuhælisins á Vífilsstöðum. Stofnun þess var merk- ur áfangi í sögu landsins, og hefur hún vissulega mark- að stærra spor meðal þjóðar vorrar en vér gerum oss daglega Ijóst, enda hefur minna verið um þann atburð og þau störf talað en margt, sem ómerkara gerist meðal þjóðar vorrar. í ræðu, sem Helgi Ingvarsson yfirlæknir hélt við minningarathiifnina lét hann í Ijós þá skoðun, að berkla- veikin hafi verið að komast í algleyming í landinu um eða upp úr aldamótunum síðustu. Vér getum hugsað okkur, hvernig farið hefði, ef viðnámið hefði ekki haf- izt jafnsnemma og raun varð á með stofnun Vífils- staðahælis. Síðan hefur baráttunni við berklaveikina verið haldið áfram ótrauðlega. Fyrst var aðallega um varnir að ræða, en furðu fljótt snerist vörnin í sókn, og síðustu árin hafa verið óslitin sigurganga. Merkustu atburðirnir í þeirri sögu, síðan Vífilsstaðahæli var reist, eru stofnun Kristnesshælis 1927 og Reykjalundar 1945. En jafnframt þeim athöfnum hefur verið merkileg lög- gjöf um berklavarnir, sem unnið hefur ómetanlegt gagn, framfarir í læknavísindum, og þrotlaust starf þeirra manna, sem staðið hafa í fremstu víglínu í bar- áttunni við hinn ægilega vágest. En árangurinn af þessari baráttu er líka glæsilegri en nokkur mun hafa gert sér vonir um í öndverðu. Dauðs- fallatala af berklum hér á landi er nú meðal hins lægsta, sem þekkist í nokkru landi, og langflestir, sem sýkjast nú orðið, hljóta fullan bata. Svo er fyrir að þakka framförum í læknavísindum, ágætum berklalæknum og vel búnum heilsuhælum. Svo má kalla, að ógn berkla- veikinnar sé bægt í brott frá þjóðinni, þótt ekki sé hún sigruð að fullu. Það er full ástæða til að hafa í huga ummæli þeirra Helga yfirlæknis og Sigurðar landlæknis við áðurnefnda hátíð, að ekki má enn slaka á klónni um varnir og eftirlit, því að einungis með því að gæta hinnar fyllstu varúðar og halda uppi hinum sterkustu vörnum, meðan nokkur smitandi sjúklingur er til, verð- ur veikinni haldið í skefjum. Margt er merkilegt um viðnám íslenzku þjóðarinnar gegn berklaveikinni. En ef til vill eru þó viðbrögð og hjálp almennings merkilegasti þátturinn í þeirri sögu. Vífilsstaðahælið var reist að verulegu leyti með almenn- um samskotum. Á þeim tíma voru þó litlir peningar í umferð, og reynsla engin um hversu takast mundi með þessum aðgerðum. En fórnfýsin og áhuginn var vak- andi. Á sama hátt var Kristneshælið reist fyrir sam- skotafé Norðlendinga. Og loks þegar berklasjúkling- arnir sjálfir bundust samtökum um að hrinda af stað stofnun vinnuheimilis, til að taka við sjúklingunum, þegar hinni eiginlegu hælisvist lyki, og Reykjalundur var reistur, þá hétu þeir á alþjóð til styrktar, og enn voru allar hendur fram réttar. Fátt eða ekkert hefur gerzt í sögu þjóðar vorrar á þessari öld, sem sýnir Ijós- ar skilning almennings á vandamáli, fórnfýsi þjóðar- innar, eða hverjum Grettistökum má lyfta, þegar ein- hugur og góðvild alþjóðar stendur að baki. Að vísu má segja, að sársaukinn hafi að nokkru leyti verið sá aflgjafi, er knúði þjóðina til átaka í þessu máli, því að margur átti hér um sárt að binda. En ekki er öll sagan sögð með því. Þarna var einnig að verki skilningur á því, hvað gera þurfti og sú góðvild og menning hjart- ans, sem nauðsynleg er hverju verki, til þess að það megi blessast. Vífilsstaðir hafa nú starfað í hálfa öld. iMargir hafa sótt þangað huggun og heilsubót. Mörgu mannslífi hef- ur verið bjargað þar, og mikilli orku til hagsbóta ís- lenzku þjóðlífi. Þess vegna stendur þjóðin öll í mikilli þakkarskuld við stofnunina og þá menn, sem áttu frumkvæðið að stofnun hælisins og þar hafa starfað fyrr og síðar. Þá skuld fær þjóðin goldið með því einu að fylkja sér enn þétt um það merki, sem reist hefur verið og sótt er fram undir gegn berklaveikinni. Hún verður að halda vöku sinni gegn óvininum, og aldrei láta undan síga. Svo má heita að baráttan sé háð í tveimur fylkingum. Annars vegar er ríkisvaldið með stofnunum sínum og starfsmönnum, heilsuhælum og læknum. Þess er að vænta, að löggjafar þjóðarinnar verði enn sem hingað til minnugir þess, sem gert hefur verið, og trúir þeirri stefnu, að horfa aldrei í fé né fyrirhöfn, til þess að varnir megi verða sem sterkastar og árangurinn sem beztur. Á hinu leytinu eru hin frjálsu samtök almennings, þar sem forysta og framkvæmd er í höndum Sambands íslenzkra berklasjúklinga (SÍBS). Þau samtök hafa reist Reykjalund, sem tvímælalaust er fremsta stofnun sinnar tegundar um víða veröld. Um það ber öllum saman, sem hann hafa skoðað, hvaðan úr heimi, sem þeir hafa komið. Og vafasamt er hvort þjóð vor hefur á þessari öld reist sér nokkurt virðulegra minnismerki 374 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.