Heima er bezt - 01.10.1960, Blaðsíða 32

Heima er bezt - 01.10.1960, Blaðsíða 32
Hartmann gamli fyllti hvern pokann eftir annan af sauðataði og hrúgaði |>eim í kerrukassann. Það var af nógu að taka. Asdís klæddi son sinn í nýju fötin og amma hans var búin að prjóna handa honum ákaflega skrítna húfu og leista. Það var eiginlega í fyrsta sinn sem nokkur hafði séð hann nema á kafi í yfirsæng. „Nú á hann að fara að ferðast í fyrsta sinn út í þenn- an kalda, miskunnarlausa heim,“ sagði amma hans. Kristján stóð á gólfinu og horfði á þau. „Hann er svei mér orðinn stór, strákurinn,“ sagði hann. „Ojá, hann dafnar vel, anginn litli,“ sagði Arndís. „Það er óþarfi að líta hann hornauga. Þú eða þín syst- kini voru ekki myndarlegri en hann.“ „Ætli hann líkist ekki meir í móðurættina svo skemmtileg sem hún er,“ sagði hann og gekk inn í hjónahúsið og kom aftur með sængurfötin sín í poka. Það var búið að bera allt út úr húsinu nema rúmin. Geirlaug hjálpaði til að láta niður þvottinn úr tau- skápnum. Þá kom Kristján inn og tók hálft hjónarúmið, kall- aði til Ásdísar að koma með hitt. Hann hafði ekki tal- að orð við hana allan morguninn. Hún var fljót að grípa rúmið, leit glottandi til Geirlaugar og sagði: „Það á sjálfsagt ekki illa við að við berum hjónarúmið út í félagi og líklega verður það félagseign á nýja heimil- inu.“ Geirlaug þagði. Það fór að fækka glósunum, sem hún gæti sært hana með. Það hefði mátt vera fyrr, sem hún hefði riðið úr hlaði þessi manneskja. Það var borinn fram morgunmaturinn áður en eld- húsborðið yrði tekið. Þar settust allir að seinustu mál- tíðinni á þessu heimili. Ásdís sagði að það væri eftir að bera út nýja rúmið, sem væri inn í hjónahúsinu. „Það fer nú sjálfsagt ekki langt,“ sagði Geirlaug. „Það er rúmið hans Jóns litla og sængurfötin hans, sem í því eru. Kristján fer varla að taka það.“ „Þú bara læsir húsinu svo það sé ekld hægt að ná því. Það er meira bölvað ráðríkið í þér yfir öllu sem Rósa hefur átt,“ sagði Ásdís og var nú orðin verulega reið og ætlaði að lesa rækilega yfir Geirlaugu á síðustu stundu. Þá sagði x\rndís gamla, óvanalega hátt: „Ósköp rýk- ur þarna og logar. Hverju er verið að brenna?“ „Það er bara rusl svona til þrifa,“ sagði Hartmann. „Hann er enginn trassi hann sonur okkar máttu vita.“ Geirlaug gekk út að glugganum. Það var eitthvað meira en rusl, sem var að brenna í hlóðunum. Fljótt á litið var það ekki ólíkt hliðarmynd af tveim mannver- um, sem stæðu þarna í reykjarkófinu og hölluðu sér saman að ofan. Rauðar eldtungumar færðu sig upp eftir þeim eins og kátir krakkar í leik, unzt há eldsúla teygði sig upp yfir reykjarhafið. Hún fór að hlæja til að leyna klökkvanum, sem settist í kverkar henni. „Það er hjónarúmið, sem hann hefur borið á bálið,“ sagði hún. „Betra gat hann ekki gert,“ svo flýtti hún sér burtu. „Bölvaður asnaskapur er þetta að fara að brenna þessu indæla rúmi. Eg get varla trúað því,“ sagði Ásdís. Þá kallaði Kristján úr bæjardyrum: „Eruð þið ekki ferðbúin. Eg er búinn að leggja á hrossin og allt er til- búið.“ Faðir hans kallaði á móti: „Hér bíður matur og kaffi eftir þér.“ „Ég hef enga lyst á kaffi eða mat. Ég sýp kaffi hjá Geiriaugu seinna.“ Þá komu allir út á hlaðið nema Geirlaug. Hún stóð enn þá við baðstofugluggann og horfði á rúmið gömlu og nýju húsbændanna sinna brenna. Það var búið að standa inni í hjónahúsinu öll þau ár, sem hún var búin að vera á þessu heimili og nú var það að verða að ösku á svipstundu. Hún hefði helzt viljað fara að gráta yfir þessu öllu, en það gat víst beðið þangað til hún væri orðin ein. Ásdís hafði farið upp að Bala þennan morg- un og fengið lánaðan söðul hjá Stínu gömlu, þar sem enginn söðull var til á heimilinu. Bogga hafði náttúr- lega farið með sinn söðul, átta ára kaupið, en Geirlaug hafði aldrei átt söðul. Nú stóð rauði reiðhesturinn hús- bóndans í hlaðvarpanum með fallegum söðli ekki nýj- um, en vel með förnum. Þá glaðnaði yfir henni. Hún hló hátt og sagði: „Þó þtt hefðir haft hugsun á því að láta mig hafa söðul til að reiða son þinn í á nýja heim- ilið okkar.“ var nú að hugsa um hana mömmu, en ekki þig,“ anzaði hann. „Þú getur víst séð þér fyrir reiðtygjum.“ Það dofnaði yfir henni við þessi vonbrigði á eftir hinum. En Hartmann gamli svaraði skörulega eins og vant var. „Hún var líka búin að fá lánaðan söðul, en líklega ætlarðu henni þó ekki að fljúga á honum eða hvar er reiðskjótinn.“ „Getur hún ekki setið í kerrunni með strákinn?“ sagði Kristján. „Ofan á þessu bölvuðu drasli og skrani,“ sagði Ás- dís öskuvond. „Það verður víst ekkert af því. Ef þú getur ekld lánað mér almennilegan hest skal ég gera þér það til skammar að fara gangandi með barnið í fanginu.“ Hartmann gamli spretti reiðingnum af einum klárn- um og lagði söðulinn á án þess að tala meira um það. Svo hélt hann á strákanganum meðan Ásdís var að koma sér fyrir í söðlinum, batt svo löngum ullartrefli utan um allt saman og aftur fyrir sveifina. Svo hló hann kuldahlátri og sagði: „Mér þykir mjög líklegt að þú fáir þennan söðul til afnota, því varla fer Arndís Kristjánsdóttir að taka upp á því að ríða út. Hún hef- ur aldrei átt söðul á sinni ævi. Ég býst við að þú sért búin að vinna fyrir honum í hálft annað ár. Engum dettur þó í hug að segja að þú hafir svikið hann á vinnu þinni.“ Kristján anzaði rausi hans engu, en sagði honum að láta reiðinginn ofan á kerruhlassið. Þá kom Geirlaug út. „Ég held það yrði nú betra fyrir þig, Geirlaug mín, að koma með okkur, en verða ein 404 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.