Heima er bezt - 01.10.1960, Síða 16

Heima er bezt - 01.10.1960, Síða 16
Snorri með tikina Frigg. hundi, sem kom inn að rúmi smalans á morgnana og togaði í hann þegar tími var kominn til að fara að smala. En svona nákvæmni væri varla hugsanleg. En það fór nú svo að hann sannfærðist. A tvennan hátt vildi hann sannreyna þetta. Fyrst það, að vera á hnot- skóg við skólann og reyna að koma auga á eitthvað, sem kynni að minna hana á tímann. Þar varð hann einskis vísari. Á síðustu mínútunum fyrir kl. 4 kom Frigg að heiman, fór hægt og rólega og opnaði dyrn- ar. Klukka, sem sló, kynni að hafa minnt hana á tím- ann, en slík klukka var hvorki heima né í skólanum. Þá tók hann hana og drenginn með sér á gönguför upp Kambinn með fram sjónum. Þar gat verið margt skemmtilegt að sjá og eftirtektarvert, er vera kynni að hún gleymdi sér við. En ekki varð honum kápa úr því klæði. Þegar líða tók á seinni hluta 4. tímans tók Frigg að ókyrrast og vildi snúa heim. Og er fáar mínútur voru eftir tók hún undir sig stökk og þeyttist heim og mætti móð og másandi inn á skólastofugólfi á réttum tíma. Þá var henni vel fagnað, því að við vissum um þessa spennandi prófraun. Aldrei gátum við skilið hvemig hún fór að því að miða tímann eins nákvæmt og hún gerði. Og svo lét ég hana hætta að koma í skólann, — fannst þessi koma hennar þangað valda traflun. En það tók nokkum tíma og kostaði mikla alvöru og all mörg högg, þar til hún lét undan. En ætíð reyndi hún að koma eitthvað á móti mér, er ég kom úr skólanum, og varð það henni nóg þegar frá leið. Frigg hafði geysilega gaman af að busla í vatni, synda og færa til lands allt sem hún sá fljóta. Það var hennar yndi að sækja það sem hent var út í sjóinn og furðu- legt hve miklu hún gat þá áorkað. Við slíkt gat hún hamazt ótrúlega lengi, einkum ef ég var nærri og held- ur ýtti á hana. Höfðu menn oft gaman af ýmsum til- tektum hennar í þessu björgunarstarfi, þegar þungum hans og dröslaði honum til lands. Sumarið 1914 var hún með mér á Siglufirði. Þar var litli drengurinn okkar hjóna líka. Var hann eitt sinn að vappa fram á bryggjustúf, sem þar var, og féll í sjóinn. Þá var Frigg ekki sein á sér. Eins og byssuskot henti hún sér út af bryggjunni, beit í kragann á kápu hans og dröslaði honum til lands. Öðru sinni þetta sumar var verið að skipa í land tómum tunnum. Var talsverður vindur á og stóð þvert á bryggjuna. Tókst þá svo illa til að all margar tunnur fuku í sjóinn. Frigg var þar nærri og var nú ekki sein á sér. Stökk hún í sjóinn og hóf björgunarstarfið af mikilli ákefð. En þetta reyndist henni erfitt, því að engu taki gat hún náð á tunnunum, nema þá helzt með því að bíta í löggina, en með því náði hún þó engu valdi á tunnunni. Reyndi hún þá að ýta á þær með hausnum, en það gekk heldur ekki, og horfðum við spenntir á þennan leik. En allt í einu sjáum við að hún ýtir tunnu á undan sér með framlöppinni, til skiptis, og buslar svo áfram með hinni og afturlöppunum, og þannig kom hún nokkram tunnum að landi. En aldrei sá ég hana eins þreytta og eftir þetta erfiði, enda hlaut hún mikla aðdáun þeirra er á þetta horfðu. Og skip- stjórinn á tunnuskipinu lagði mjög fast að mér að selja sér tíkina og bauð hátt verð. Svo mjög dáði hann hana, bæði fyrir þetta og fleira er hann sá hana gera. Á Flateyraráram mínum átti ég á sumram sérstökum erindum að gegna um norðanverða Vestfirði og var þá oft vel ríðandi. Hófst það starf mitt 1915 og átti ég þá marg oft leið yfir Breiðadalsheiði. Var Frigg mjög áköf í að fá að elta mig, en ég bannaði henni það og hlýddi hún því, nema einu sinni. Þá hafði ég farið snemma morguns að heiman og ekki hirt um að gefa henni gætur. Reið ég hart inn Ströndina og fram Breiðadalinn og datt ekki Frigg í hug. En er undir Skógarbrekkurnar kom, kemur hún í hendingskasti of- an úr fjallinu, hafði hlaupið þar hátt uppi og líklega farið á undan mér af stað. En móð var hún nú og lúpu- leg, því að vel vissi hún að þetta mátti hún ekki. Ég tók hana þó í sátt og héldum við nú sem leið lá til ísafjarð- ar og lá nú ákaflega vel á henni. Þegar þangað kom skildi ég hest minn eftir ofan við bæinn og lét hnakkinn inn í skúr, sem kunningi minn átti þar. Og nú fór ég að sinna erindum mínum og fylgdi Frigg mér fast eftir framan af deginum. En svo fór þó að við urðum viðskila og gat ég hvergi fundið 388 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.