Heima er bezt - 01.10.1960, Síða 31

Heima er bezt - 01.10.1960, Síða 31
ÞRÍTUGASTI OG FJÓRÐI HLUTI Kona hans svaraði: „Hún er að fara út í kaupstað til að taka ýmislegt í búið.“ „Ójá, það er nú eitt...." sagði hann, en hætti svo í hálfnaðri setningu. Asdís kom heim seint um kvöldið. Hún hafði dokað við eftir Gerðu, hún hafði í svo mörgu að snúast. Fyr- ir hennar kunningsskap hafði hún fengið kaffi hjá konu þarna á Eyrinni. Engum hafði dottið í hug að bjóða henni inn fyrir dyr hjá sér. Hún kom með súkkulaði, sem hún gaf gömlu hjón- unum, en Geirlaugu var ekki boðið slíkt góðgæti. Svo liðu nokkrir dagar að ekki var flutt frá Hofi. Ærnar voru flestar bornar og Ásdís þráði að komast burt. Kristján heyrðist sjaldan tala orð nema við ntóður sína. Einn daginn fór Leifi að stinga út úr húsununt. Strák- ar hans óku taðinu frá í hjólbörum, sem Grímsi gamli á Bala átti. Gerða hamaðist við að kljúfa. „Það er bezt að flytja á morgun,“ sagði Kristján við föður sinn. „Eg get ekki stigið út fyrir girðinguna svo ég mæti ekki nýbrennimerktri á með blóðmarkað lamb og nú er farið að stinga út úr húsunum. Það minn- ir mig á að mál sé að fara að hugsa eitthvað fyrir eldi- við á nýja býlinu.“ Ásdís geistist inn til þeirra og sagði þeim að Geir- laug gamla væri farin að kljúfa með Gerðu. Eiginlega bjóst hún við að enginn hefði sagt henni það. „Hún er því vönust að hugsa um taðið hérna,“ sagði Kristján. „Það er margt sem bendir til þess að hún eigi að brenna þessu taði. Það eru engin vandræði fyrir nýja bóndann að fá hana til að hugsa um eldamennsk- una.“ Alltaf gat hann verið að hæla þessari kerlingarálku, hugsaði Ásdís sárgröm. „Adér finnst að það hefði verið nær fyrir hana að hafa heitt á könnunni handa okkur Hartmanni, en að þrælast í því, sem henni kernur ekkert við,“ sagði Ásdís. „Hún er ekki skyldug að vinna mér lengur þó hún geri það af sinni miklu trúmennsku,“ sagði Kristján. „Eg skil ekki að þið komizt ekki af þó að þið séuð ekki að þamba kaffi allan daginn. Þvílík þó bölvuð kaffiúttekt þetta missirið. Hún er upp á nokkrar krón- ur.“ Það snerist í gantla manninum. „Þú verður nú að þola það. Eg hef hugsað mér að vinna fyrir því sent ég læt ofan í mig, bæði kaffi og mat,“ sagði hann, „og nú er farið að loga undir könnunni svo það verður ekki lengi að hitna blessaður sopinn.“ „Þú heldur svo áfram að hreinsa til kringum húsin. Eg þarf að skreppa út í kaupstað. Það er víst eitthvað lítið um söðla á þessu heimili þegar riðið verður úr hlaði.“ „Þú færð ekki söðul keyptan,“ sagði Ásdís. „Ég fór til söðlasmiðsins um daginn, en hann hafði engan söðul.“ Kristján var kominn út á mela áður en kaffið var orðið heitt. „Þetta er nú lítið vit að ætla sér að fara að flytja áður en ærnar eru bornar,“ sagði Ásdís, „og svo á ég eftir að ná í föt, sem verið er að sauma fyrir mig út í kaupstað.“ „Þú skalt fara að komast að því, því eins og þú heyrðir sagðist hann flytja í fyrramálið. Það verður þá að ríða út eftir á kvöldin til að líta eftir ánum, heldur en híma yfir þeim,“ sagði hann. „Það þykir mér vænt um að heyra,“ sagði Ásdís. „Það er nú ekki alveg víst að þú verðir eins frjáls utanbæjar og þú hefur verið héma, þegar þú þarft að fara að hugsa um bæjarverkin. Mér heyrðist það á hon- unt syni mínum, að hann ætli sér ekki að láta hana rnóður sína gera þau með krakkann á handleggnum.“ „Það er ekki lengi verið að hrista þau af,“ sagði Ás- dís. Seint um kvöldið fór Ásdís út í kaupstað og kom heirn með nýsaumuð föt utan á sig og drenginn. Snemma næsta morgun var farið að kófrjúka í hlóð- unum við lækinn þar sem ullin var vanalega þvegin. Þangað var svo borið allt rusl, sem hafði verið hreinsað utan bæjar og innan, hvergi mátti sjást svo mikið sem torfutætla. Geirlaug sagði að hann væri sjálfsagt ekki búinn að gleyma því hvemig jörðin hefði litið út þeg- ar hann tók við henni. Heima er bezt 403

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.