Heima er bezt - 01.02.1961, Page 5

Heima er bezt - 01.02.1961, Page 5
með að gera, en hins -vegar gat ekki hjá því farið, að afleiðingarnar gerðu vart við sig í búri og eldhúsi, ekki sízt hjá stórum barnafjölskyldum. Á þessum árum hófst flótti fólks úr sveitunum fyrir alvöru í þeirri von og trú að öðlast betri kjör og meiri þægindi í þorpunum, sem og líklega hefur verið rétt. Ekki höfðu þó Vaðbrekkuhjónin neina tilburði í þá átt að slást þar í för, enda þótt húsfreyjan væri hag- vön á mölinni. Og þrátt fyrir allan krankleika og kreppu í iifandi peningi og dauðum komu þau fljótlega upp stóru sauðfjárbúi og hafa rekið það nú um nærri 40 ára skeið með sama sniði og vaxandi velmegun. Hagsýni, dugnað og sparsemi mun þó hafa þurft til þar sem meginið af afurðum búsins þurfti lengi til að borga af skuldum, en það hefur verið regla Ingibjarg- ar að eyða ekki umfram aflann. Ingibjörg tók móður sína strax í hornið til sín. Mun það hafa verið henni mikill styrkur á frumbýlingsár- unum að njóta hollráða hennar, auk þess sem hún var sívinnandi heimilinu til þrifa meðan heilsa og kraftar entust. Jóhanna Stefánsdóttir andaðist á Vaðbrekku 3. febrúar 1933, 76 ára að aldri. Þau Vaðbrekkuhjón hafa eignazt 10 börn og eru 9 á lífi. Auk þess tóku þau 2 börn í blautri bernsku, ann- að með öllu vandalaust, og ólu sem sín eigin. Ingibjörg hefur sagt mér að hún hafi ekki haft áhyggjur af neinu nema því, að börnin fengju berkla- veiki, en hún var mikill vágestur á 3 fyrstu tugum þessarar aldar. Gaf Jónas læknir Kristjánsson það ráð við henni að færa frá og nota sauðamjólk til manneldis. Þrátt fyrir það erfiði og amstur, sem þessu fylgdi og flestir voru búnir að losa sig við fvrir löngu, var þessu ráði fylgt á Vaðbrekku og fært frá um rúmlega 20 ára skeið, eða þar til börnin voru flest vaxin úr grasi. Þá hóf Ingibjörg strax kál- og kartöflurækt með góðum árangri og hafa kartöflurnar ekki brugðizt nema einu sinni algerlega. Oftar en hitt verið góð uppskera og Hjónin á Vaðbrekku: Ingibjörg JónscLóttir og Aðalsteinn Jónsson. Hjónin á Vaðbrekku og þrír synir þeirra. stundum ágæt. Hefur Ingibjörg hrundið rækilega þeirri bábilju að nytjaplöntur geti ekki þrifizt nema í lág- sveitum. Hins vegar má vel vera að fyrir fleiru hafi verið hugsað í uppeldinu. Það þótti áberandi þegar unga fólkið frá Vaðbrekku kom í skólana, að það var betur að sér en margir þeirra jafnaldrar. Það þótti líka nokkrum tíðindum sæta, að drengir frá Vaðbrekku fóru af beitarhúsunum að lokinni fengitíð til Akureyr- ar og tóku próf upp í Menntaskólann. Settist annar í 2. bekk en hinn í 3. bekk. Að sjálfsögðu hafa góðir hæfileikar komið hér til en vera má að móðirin hafi eitthvað stutt að því, að lærdómsframi þeirra varð svo skjótur, því ekki höfðu þeir annarrar fræðslu notið en stopullar farkennslu. Vaðbrekkuhjónin lögðu kapp á að börn þeirra gætu notið þeirrar skólagöngu, sem hugur hvers og eins stóð til, hvort sem um var að ræða 2ja vetra dvöl á alþýðu- eða búnaðarskóla og allt upp í langskólanám. Þetta er í rauninni gömul saga að foreldrar leggi á sig erfiði og fórnir til þess að skila þjóðfélaginu sem hæfustum þegnum. Börnin frá Vaðbrekku eru nú flest gift og dreifð um borg og bý. Taka þau virkan þátt í þjóðar- búskapnum og hafa hvarvetna getið sér hið bezta orð, en öll halda þau tryggð við sitt æskuheimili og dvelja þar gjarnan þegar tóm gefst til. Ég spyr Ingibjörgu um hvort það hefðu eltki verið mikil viðbrigði fyrir hana að flytjast úr sjávarþorpi upp í afdal, þar sem einangrunin var hvað römmust og lang- ir aðdrættir um torleiði. „Mér fannst,“ segir Ingibjörg, „bæjarlífið ekki eftirsóknarvert í mínu ungdæmi hvað þá nú þegar sími og vegur er á hvern bæ kominn, enda ég aldrei gefin fyrir glys né glingur. Ég mat það líka umfram allt að fá framtíðar bústað, svo minnisstæður var mér húsmennsku-hrakningurinn frá æskuárunum. Móðir mín var líka búin að segja mér svo mikið um Heima er bezt 41

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.