Heima er bezt - 01.02.1961, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.02.1961, Blaðsíða 11
STEINDOR STEINDORSSON FRA HLOÐUM: Pættir um ;k sKosa ;k sKogræ INNGANGUR. „Baðstofa og eldiviðurlí. E'l inhvern tíma í bernsku minni las ég greinarstúf j eftir Guðmund Björnsson landlækni. Hét hann j Baðstofa og eldiviður. Þótt ég væri þá barn að aldri, og skilningur minn á því lesna af skom- um skammti, festist meginefni greinarinnar svo í huga mér, að ég hef aldrei gleymt henni síðan. Höfundur segir þar frá því, er forfeður vorir komu til landsins, og „reistu þar byggðir og bú“. Á bæjum sínum gerðu þeir skála milda og hátimbraða, og þar voru langeldar kyntir á vetrum, enda var þá skammt að sækja elds- neytið í skógana, sem klæddu landið. Á hverjum bæ var einnig baðstofa, lítið hús, þar sem menn fengu sér gufubað eftir þörfum og löngun hvers og eins, enda var hreinlæti þá í hávegum haft. En tímarnir hðu. Skóg- urinn eyddist fyrr en varði, svo að ekki var lengur unnt að kynda langeldana. Fólkið fluttist þá úr skálun- um inn í baðstofurnar, því að minna þurfti við, til að hita þær sæmilega. Síðan hefur baðstofa verið heitið á vinnustofu og svefnhúsi fólksins á íslenzkum sveitabæj- um. En viðinn þraut loks með öllu. Það var ekki einu sinni unnt að hita baðstofuna. Þar sat fólkð og hafði ylinn hvert af öðru. Vandkvæði reyndust einnig að fá eldsneyti til þess að sjóða matinn. Þá fann einhver upp á því snjallræði að þurrka sauðatað til eldsneytis. Síðan heitir það og annað, sem brennt er, eldiviður. Út úr þessum tveimur orðum las hinn vitri maður, Guðmund- ur Björnsson, þátt úr harmsögu íslenzku þjóðarinnar. Á síðastliðnu ári átti Skógræktarfélag íslands 30 ára afmæli. Mig hafði langað til, að láta „Heima er bezt“ leggja fram einhvern skerf, til að minna á þau tíma- mót, og það viðfangsefni, sem félagsskapur sá hefur með höndum, Því að ég tel skógræktarmálið eitt af mikilvægustu viðfangsefnum vorum nú í dag. í nokkr- um þáttum vil ég stikla á stóru um sögu íslenzkra skóga og skógræktar, og drepa á samhengi þeirrar sögu við sögu þjóðarinnar sjálfrar. Viða verður farið hratt yfir, en þó er von mín, að einhver megi fá ljósari skilning á þessu máli eftir en áður. I. HARMSAGA SKÓGANNA. 1. Landið allt viði vaxið. Sú hefð hefur komizt á fyrir löngu, að nefna fyrsta hluta þjóðveldistímans „gullöld íslendinga“. Enda þótt sú nafngift sé sprottin af fornaldardýrkun hinnar róm- antísku stefnu, og hafi verið notuð sem vígorð í vakn- ingarbaráttu íslendinga, þá er nokkur sannleikur í henni fólginn. Fyrsta öld Islands byggðar var á marga lund gullöld hjá því sem síðar varð, enda þótt oss hefði þótt margt vanta, sem vér teljum nú til lífsins gæða. Ung og framgjörn þjóð bjó þá í nýnumdu landi og undi þar meira frelsi en annars var títt. Landkostir voru miklir af hendi náttúrunnar, svo að fólkið gat raunverulega lifað í allsnægtum, meðan þeim var eigi spillt. Friðun landsins um þúsundir ára, allt frá því það losnaði úr dróma ísaldarjökulsins, hafði valdið því, að gnótt var fanga til lands og sjávar. Vötn og sjór var fullt af fiski. Eggver voru hvarvetna við strendur landsins, selalátur í hverjum firði að kalla mátti, og hvalir syntu upp í landsteina og strönduðu í fjörunum á ári hverju. Og síðast en ekki sízt, landið var „skógi vaxið milh fjalls og fjöru“. Og í skjóli skóganna dafnaði hvers kyns góð- gresi, svo að fénaður gekk þar að mestu sjálfala, þar sem bæði var gnótt haglendis og skjól gott fyrir næð- ingum og harðviðrum vetrarins. Hinir framgjömu höfðingjar landsins hýstu bæi sína stórmannlega. Að vísu þurftu þeir að sækja stórviði til útlanda, þar sem ekki náðist til rekaviðar, en mikill styrkur var að inn- lendum skógviði til allrar smærri húsagerðar, og enginn þurfti að kvíða kuldanum, þótt vetur gengi í garð. Gnótt eldiviðar var til að kynda langeldana, og við yl þeirra og bjarmann af skini þeirra voru sögur sagðar og drápur kveðnar í íslenzkum bæjum, þar sem höfðingjar héldu uppi sömu reisn og þeir bezta vissu erlendis. Það má leiða að því gild rök, að dýrasta eign hinnar ungu bændaþjóðar í nýnumdu landi var skóglendið. Það er meira að segja vafasamt, hvort forfeður vorir hefðu hætt á það ævintýri að nema þetta afskekkta út- hafsland, ef þeir hefðu komið að því skóglausu að kalla, og melar og sandar hefðu blasað við augum líkt og nú er. Skógurinn veitti þeim eldsneyti, nokkum við til húsagerðar, efni til viðarkola, sem hagnýtt voru til járnvinnslu, og skjól og fóður handa búfénaði, sem í fyrstu mun hafa verið látinn umhirðulítill. Þetta eru ómótmælanlegar staðreyndir. Sumir hafa dregið í efa þá staðhæfingu, að megin- hluti landsins hafi verið skógi vaxinn á landnámsöld og framan af þjóðveldistímanum. En hægt er að færa fram fjöldamörg rök fyrir því, að rétt muni vera frá hermt, og að meginhluti alls láglendis, og upp eftir hlíðum líkt og grös ná, hafi landið þá verið skógi klætt. Fyrst má þar nefna heimildir fornrita vorra. Skóga er þar Heima er bezt 47

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.