Heima er bezt - 01.02.1961, Síða 28
í stofu. Þeir neyta hans þar ásamt frú Helgu, en Elsa
mætir þar ekki til kvöldverðar. Pálmi hefur ekki séð
hana í dag, enda setið lengst af inni í skrifstofu. En nú
er kvöld, tími hvíldar og ævintýra, og hann ætlar sér
að njóta þess.
Pálmi lýkur kvöldverði og hraðar sér síðan út úr
húsinu. Hann gengur um stund umhverfis sýslumanns-
setrið og nýtur heillandi veðurblíðunnar. En í kvöld
ætlar hann í bílferð, og hann er ákveðinn í því að fá
Elsu með sér. Hann gengur aftur inn í húsið. I forstof-
unni mætir hann Elsu. Hann býður henni brosandi gott
kvöld.
„Gott kvöld.“
Þau nema bæði staðar. „Fagurt ferðaveður,“ segir
Pálmi glettnislega.
„Getur ekki betra verið.“
„Má ég bjóða þér í ökuferð með mér, Elsa?“
„Þakka þér fyrir, en hefur þú boðið mömmu og
pabba að vera með? Þau hafa áreiðanlega ekki síður
gaman af því en ég að aka út í veðurblíðunni.“
Glettnisbrosið hverfur úr svip Pálma. Svona kom þá
Elsa málinu fyrir: Hann ætlaði engum að bjóða nema
henni, en kannske er hún feimin í fyrsta skiptið að
fara með honum einum. Hann getur ekki skorazt und-
an því að bjóða sýslumannshjónunum með þeim, fyrst
Elsa stakk upp á því, annað væri ekki samboðið virð-
ingu hans. Hann segir því við Elsu:
„Jú, auðvitað býð ég foreldrum þínum með okkur í
kvöld.“
„Ég þakka þér þá fyrir hönd okkar allra,“ segir Elsa.
Hún gengur síðan inn í herbergi sitt og klæðist ferða-
• ...............................................
fötum. Hún getur gjarnan þegið ökuferð í nýrri bif-
reið, en með Pálma einum ætlar hún ekki að aka, hvorki
nú né síðar.
Pálmi fer á fund sýslumannshjónanna og býður þeim
í bílferð með sér og Elsu. Ferðafólkið er senn allt kom-
ið út að bifreiðinni. Pálmi ætlar sýslumannshjónunum
aftursætið, en Elsu að sitja frammi við hlið sér. En Elsa
skynjar óðar þessa fyrirætlan hans og segir við móður
sína:
„Við sitjum í aftursætinu, mamma, pabbi er bezt til
þess fallinn að skýra fyrir Pálma öll staðarheiti og ör-
nefni og vísa honum veginn um sveitina."
Pálmi lítur til Elsu, og dimmur roði leitar fram í
kinnar hans. Hann hafði sjálfur ætlað að raða farþegum
sínum í bifreiðina, en hér verður hann að sýna fyllstu
'háttvísi og láta undan sýslumannsdótturinni. — En
sumarið er ekki liðið! Hann býður mæðgunum að
setjast inn í aftursætið, en sýslumanni við hlið sér. Svo
ekur hann af stað, allt annað en ánægður að þessu sinni.
IV.
Skemmtun að Stóra-Ási.
Regnið drýpur jafnt og þétt. Helga sýslumannsfrú
situr inni í dagstofu með handavinnu sína og hlustar
þögul á þungt hljóðfall regndropanna á gluggann sinn.
Hún hefur ekki getað notið neinnar útiveru í dag sök-
um rigningarinnar. Endurminningin um hina ánægju-
legu bílferð kvöldið áður fyllir huga hennar gleði.
Pálmi fulltrúi er mjög að hennar skapi. Hún fann
það í öllu á þessari bílferð, að hann er sérstaklega hátt-
vís í framkomu, og líklega stórgáfaður. Skyldi Elsa
vera hálffeimin við hann? Ekkert vildi hún gefa sig að
honum, og þegar hann ávarpaði hana, svaraði hún með
sem fæstum orðum. Þau þyrftu að fara í næstu bílferð
tvö saman.
Frú Helga brosir. Einu sinni var hún sjálf ung og
rík af ævintýraþrá. En frúin hefur ekki næði til að
hugsa frekar um það. Stofuhurðin er opnuð, og Arni
sýslumaður kemur inn til konu sinnar. Hann hefur það
nú frjálsara en áður. Nú segir hann fulltrúa sínum fyrir
verkum, en nýtur hvíldar sjálfur.
Árni sýslumaður tekur sér sæti í djúpurn hæginda-
stól og varpar öndinni léttilega. Svo snvr hann sér að
konu sinni og segir glaðlega:
„Hvernig líður þér eftir bílferðina í gærkvöld, góða
mín?“
„Ágætlega!“
„Fannst þér ekki fulltrúinn skemmtilegur, og fínt
farartækið hans?“
„Jú, það var allt eins og bezt verður á kosið, fulltrú-
inn er reglulega elskulegur maður.“
„Hann er vel eftir mínu skapi, og mér finnst ég vera
svo öruggur að fela honum embættisstörfin.“
„Já, Árni minn, ég vildi óska þess, að hann færi ekki
héðan aftur. — Þú skilur mig.“
Framhald.
64 Heima er bezt