Heima er bezt - 01.05.1961, Blaðsíða 5
Hér verður nu með fáum orðum sagt frá einum smið
í Grímsnesinu, Gísla Guðmundssyni frá Björk, sem alla
ævi hefur lifað og starfað í sinni fæðingarsveit, fyrst
sem uppvaxandi maður á heimili foreldra sinna, þá sem
góður og gegn bóndi og nú um alllangt skeið sem aðal-
smiður við allar stærri byggingarframkvæmdir þar í
sveit.
Gísli er fæddur 3. október árið 1896 að Hólabrekku
í Laugardal. Voru foreldrar hans hjónin, Guðmundur
Þorleifsson frá Ketilvöllum þar í sveit og Ástríður
Stefánsdóttir frá Gýgjarhólskoti í Biskupstungum.
Höfðu forfeður Gísla fjórir í beinan karllegg búið í
Laugardalnum, en fyrstur þeirra var Þorleifur Guð-
mundsson, fæddur á Breiðabólsstað á Síðu 1762 og dá-
inn á Bermóðsstöðum 21. okt. 1833. Um tvítugsaldur
flýði hann austan úr Skaftáreldum og komst út í Laug-
ardal. Þar k\-æntist hann konu þeirri, er Katrín hét,
Eyjólfsdóttir, bónda á Bermóðsstöðum. Þorleifur efn-
aðist vel, enda mótaður af hörmungum iVfóðuharðind-
anna í vinnusemi og sparsemi. Hann var stundum
nefndur hinn „ríki“, enda var hann ávallt birgur vei
að mat, bókstaflega safnaði matarbirgðum. Geymdi
harðfisk í hevjum og smjör í líknarbelgjum og var svo
kappsfullur til verka, að hann unni sjálfum sér næst-
um ...urei hvíldar.
Gísli Guðmundsson fluttist hálfs annars árs að aldri
með foreldrum sínum frá Hóiabrekku suður að Hóla-
koti í Grímsnesi. Þar ólst hann upp ásamt Friðsemd,
systur sinni, en þau voru tvö systkinin, sem náðu þroska-
aldri, eitt dó í bernsku. í Hólakoti bjuggu foreldrar
þeirra til vorsins 1921, er þau fluttust búferlum að
Björk í sömu sveit. Þá jörð fengu þau á Ieigu til næstu
tíu ára. Guðmundur Þorleifsson var bóndi á Björk til
vorsins 1931, en þá keypti Gísli jörðina og tók sjálfur
við búi, en Guðmundur, faðir hans, dvaldist þar til
dauðadags 31. maí 1936. Guðmundur bjó jafnan litlu
en failegu búi, fór sérlega vel með allan búpening og
hafði góð not af honum, og var sjálfur kappsfullur til
allra starfa. Ástríður, kona hans, andaðist á Björk 18.
nóvember 1941, 92 ára að aldri. Var hún merkiskona
fyrir margra hluta sakir, greind í bezta lagi, minnug
vel og fróð og geðprýðiskona mikil. Það, sem m. a.
var þeim hjónum sameiginlegt, var frábær gestrisni og
greiðasemi við alla, sem að garði bar, en þeir voru
margir, einkum fyrr á árum.
Átján ára að aldri fór Gísli fyrst til sjávar og réri
þá í Garði suður. Alls var hann ellefu vertíðir til sjós,
ýmist á opnum skipum eða skútum, og síðast réri hann
tvær vertíðir í Herdísarvík. Að öðru leyti vann hann
að mestu leyti á heimili foreldra sinna á þessum árum.
Fjárhúsin að Efri-Brú.