Heima er bezt - 01.05.1961, Síða 18

Heima er bezt - 01.05.1961, Síða 18
KRISTINN GUÐMUNDSSON: Kalt á fótum ~I( Iin er só stétt manna, hér á landi, sem fyrrum II—={ var allfjölmenn en er nú horfin með öllu, svo j að ungt fólk veit naumast deili á henni nema af afspurn. Þetta eru förumennirnir. Þeir fóru vítt um byggðir landsins, með poka um öxl og göngu- prik í hendi. Komu við á hverjum bæ, þáðu beina eða næturgreiðá, og héldu síðan áfram næsta morgun, á hinu hvíldarlausa ferðalagi, sem fátt hefti annað en gröf og dauði. Eg rifja hér upp frásögn af einum hinna síðustu þess- ara förumanna. Hann hét Guðbrandur Jónsson. Fór hann víða urn land á sumrin, en á vetrum hélt hann að mestu kyrru fyrir í Reykhólasveit í Barðastrandarsýslu, en þar átti hann lögheimili að nafninu til. Sjaldan hélt hann sig þó á heimili sínu, heldur ferðaðist um sveitina og brá sér yfir í næstu sveit, Geiradalinn. Stundum skrapp hann norður yfir heiðar til Steingrímsfjarðar, dvaldist þar um tíma og fór á rnilli bæja eins og hann Iysti. Brandur var um margt frábrugðinn öðrum rnönn- um, er honurn vel lýst og sérkennileika hans í sjálfs- ævisögu Guðmundar G. Hagalíns, „Ilmur liðinna daga“. Brandur var göngumaður góður á yngri árum, og hélzt svo fram á efri ár. Göngulag hans var sérkennilegt. Hann valhoppaði líkt og hestur, sem orðinn er þreytt- ur, og getur ekki stigið fast í nokkurn fótinn. Slíkt göngulag mun vera létt, og er hægt að ná á því ótrú- lega miklum hraða, þegar maðurinn er vanur því. En á fárra manna færi mun það vera, eða réttara sagt, fáa mun hafa fýst að iðka það, því að flestum þykir göngu- lag þetta Ijótt, þrátt fyrir þann mikla kost, að það ber mann hratt yfir án þess að þreyta hann að marki. Þessa kosti kunni Brandur vel að meta, fór hann aldrei á öðrum gangi, og var leikni hans og hraði undraverður. Til dæmis um fráleik hans, sagði hann mér, að hann hefði einu sinni farið yfir Laxárdalsheiði að vetrarlagi. Rifahjarn var, svo að hvergi markaði spor. Kvaðst hann hafa farið eins hratt og hann framast komst, og verið aðeins tvo klukkutíma yfir heiðina, en hún er 6—8 stunda lestagangur að sumarlagi. Oft fór Brandur yfir þessa heiði og aðra fjallvegi í grennd einkum milli Þorskafjarðar að vestan og austur til Gilsfjarðarbotns. Fór hann þessar leiðir jafnt vetur og surnar, og gáði sjaldan til veðurs áður en hann legði úr byggð. Var því spáð löngum, að hann ætti eftir að bera beinin á einhverjum þessara fjallvega. Lét hann allt slíkt hjal sem vind um eyrun þjóta og hélt upp- Guðbrandur Jónsson. teknum hætti uin ferðalög sín. En nærri honum var þó stundum höggvið, og skal hér sagt frá því, er hann var hættast kominn á þessum slóðum. Það var á útmánuðum 1943, að Brandur var staddur á Ivinnarstöðum í Reykhólasveit. Hafði hann þar nátt- stað, en ætlaði næsta dag fjallasýn frá Kinnarstöðum að Þiðriksvöllum í Steingrímsfirði. Sú leið er aldrei farin, og þvi er við ekkert að styðjast, hvorki vegar- slóða né vörðubrot. Stefnan frá Kinnarstöðum mun vera sem næst norð-norðaustur. Ekki þótti fólki ráð- legt af Brandi að velja þessa leið um hávetur, því að hún er bæði löng og snjóasæl, og sízt af öllu heppileg manni, sem kominn er af léttasta skeiði, en Brandur var sextugur að aldri, er þetta gerðist, og þrek hans 162 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.