Heima er bezt - 01.05.1961, Síða 21
hug, að þessi skothríð væri árás á höfuðborgina. Ég
leit á klukkuna. Hún var á áttunda tímanum. Síðan
snaraðist ég fram úr og fór út að glugganum. — Úti
fyrir var ekkert ófriðlegt. Sólin skein í heiði og fánar
voru við hún á hverri stórbyggingu. Fólkið streymdi
eftir götunum; sýnilega í hátíðaskapi. Hér var vissu-
lega engin óvina-árás yfirvofandi. Líklega átti þessi
skothríð að tilkynna einhver gleðitíðindi. En hvað gat
það verið? Ég hringdi á þjóninn og hann kom sam-
stundis, kurteis og brosandi. Ég bað hann að færa mér
morgunkaffið, en spurði hann svo — eins kæruleysis-
lega og mér var unnt, hvers konar skothríð þétta hefði
verið í morgun. „Það er fæddur rtkisarfi, konungsefni,
— prins,íl sagði þjónninn. Síðan hneigði hann sig prúð-
mannlega og smeygði sér út.
Ég flýtti mér á fætur og fór í skólaheimsókn í barna-
Karl Gustav prins 10 ára.
skóla og hlustaði þar á kennslu. í fyrstu kennslustund-
inni var ég hjá ungunt kennara í 10 ára bekk. Hann
sleppti þeirri námsgrein, sem á stundaskránni var, en
tíminn fór allur í að ræða um þennan merka atburð, —
fæðingu ríkisarfans. Prinsinn hafði fæðzt kl. 7 um
morguninn í Haga, sem er bústaður konungsfjölskyld-
unnar. Um morguninn hafði verið skotið 21 fallbyssu-
skoti, til að tilkynna borgarbúum, og öllu nágrenni,
fæðingu ríkisarfans. — Sagði kennarinn að þetta væri
föst venja, þegar konungborinn prins, — tilvonandi
krónprins — fæddist. En hvers vegna var þessi nýfæddi
prins, fæddur ríkisarfi? Þetta útskýrði kennarinn mjög
rækilega fyrir börnunum.
Gamli konungurinn, Gustav V., var þá á níræðis-
aldri. Krónprinsinn, sem nú er konungur Svíþjóðar og
nefnist Gustav VI. Adolf, var þá kominn yfir sextugt.
Faðir litla drengsins, Gustav Adolf prins, var þá milli
þrítugs og fertugs. Gamli konungurinn Gustav V. var
því langafi litla, nýfædda drengsins. Enn þá er því þó
ekki fullsvarað, hvers vegna þessi nýfæddi drengur, var
borinn til konungstignar, ef honum entist líf og heilsa.
En það var af því, að hann var elzti sonur — fyrsti
sonur — þessara tignu hjóna — en áður höfðu þau átt
fjórar dætur. Hann var því rétt borinn til konungs-
tignar, þegar þeir væru allir látnir, - langafi hans, afi
og faðir. — Kennarinn sagði börnunum líka það, að
löngu áður en þessi litli drengur fæddist, hefði verið
búið að ákveða honum nafn. Hann átti að heita Karl
Gustav. Þessu máttu foreldrar hans ekki breyta, þótt
Heima er bezt 165-
„Stórkirkjan" i Stockhólmi. Hún var byggð árið 1264.
Hér hafa flestir konungar Svia verið krýndir.