Heima er bezt - 01.05.1961, Blaðsíða 22
þau.hefðu viljað nefna hann öðru nafni.
Um leið og þau giftust gengust þau undir
þá skyldu að fyrsti sonur þeirra skyldi
heita þessu nafni. — Nú höfðu þessi kon-
ungbornu hjón eignazt fjórar dætur. áð-
ur en þeim fæddist sonur og var því þess-
um nýfædda prinsi hjartanlega fagnað af
sænsku þjóðinni.
Síðan þessi atburður skeði, eru liðin
fimmtán ár. A þessum 15 árum hefur
mikil breyting orðið í þessari konunglegu
fjölskyldu. Gamli kóngurinn, Gustav V.,
sem þá var hátt á níræðisaldri, er nú lát-
inn, en við konungdómi hefur tekið afi
Iitla drengsins, Gustaf VI., sem nú er 78
ára, en faðir hins unga ríkisarfa fórst í
flugslysi 26. janúar 1947. — Þessi ungi rík-
isarfi, sem nú er 15 ára að ald-ri er réttbor-
inn krónprins Svíþjóðar og tekur við kon-
ungdómi að afa'sínum látnum.
Þessi ungi, konungborni sveinn er nú í
gagnfræðaskóla. Ekki er mér neitt kunn-
ugt um það, hvort hann er góður náms-
maður eða ekki, en eftir myndum af hon-
um að dæma, virðist hann vera skýrleiks-
barn og giftusamlegur. — Skólalöggjöf
Svía er mjög svipuð þeirri skólalöggjöf,
sem við íslendingar búum við. Krónprins-
inn mun því nú um það bil að Ijúka sinni
skólaskyldu, en væntanlega heldur hann
áfram námi til stúdentsprófs. Fram að
þessum tíma hefur hann orðið að glíma
við sömu verkefni í flestum greinum og
skólaskyldir unglingar á Islandi hafa þurft
að glíma við, hvort sem hann hefur sótt
einkaskóla eða skóla rekna af ríkinu. Mörg
börn fæðast til auðs og metorða, ef svo
mætti að orði komast, — en öll verða þau
að afla sér þekkingar með eigin ástundun
og erfiði. Það fæðist enginn með fullkom-
Til vinstri: Prinsessurnar Margaretha og
C.hristina d hestbaki.
Að neðan: Mynd frá Stockhólmi.