Heima er bezt - 01.05.1961, Blaðsíða 25
' _....
FJORÐI HLUTI
IX.
Æskan einráð á Grund.
Sprettfráir gæðingar sýslurnannshjónanna renna úr
hlaði. Þau eru að leggja af stað í hið fyrirhugaða ferða-
lag. Og nú er æskan einráð á Grund.
Pálmi fulltrúi hefur fvlgt hjónunum út úr húsinu og
horfir nú á eftir þeim, er þau ríða úr hlaði. í dag hefur
honum verið falið á hendur heilt sýslumanns-embætti í
fjarveru Arna sýslumanns. Svo hátt er hann þegar haf-
inn að mannvirðingu í þessari ókunnu sveit! En hugur
hans er ekki eingöngu bundinn störfum og embættis-
heiðri. Hann dreymir einnig um ástir og ævintýri.
Pálmi gengur að bifreið sinni, senr stendur við hús-
ið, og lýkur upp framhurðinni. Það er orðið langt síð-
an hann hefur farið í ökuferð. Og nú ákveður hann að
bæta sér það upp strax að starfi loknu næstkomandi
laugardagskvöld og bjóða Elsu að vera með. Hún hlvt-
ur að kunna þá háttvísi að taka boði hans, þar sem
hann er líka nýkominn í sveitina og þarf því á kunnug-
um ferðafélaga að halda. Og fái hann hana eina með
sér einu sinni út í töfraheim sumarkviildsins, er hann
fullviss um sigurinn. Honum hefur ekki hingað til
brugðizt bogalistin.
Pálmi lítur brosandi yfir bifreið sína. Hún er í alla
staði hin fullkomnasta, og hann getur óhikað boðið
hverri sem er far í henni. En nú kallar embættið og
skyldustarfið hann. Pálmi lokar bifreið sinni aftur og
gengur inn í sýslumannsskrifstofuna til starfa. En ævin-
týraþráin svellur heit og knýjandi í huga hans.
Elsa er ein í eldhúsinu og undirbýr kvöldverðinn. í
dag hefur hún ekkert getað farið út á túnið til starfa
sökum annríkis innanhúss, og hún saknar þess. En
seinna skal hún bæta sér það upp, þó þörfin sé orðin
lítil fyrir vinnu hennar við heyskapinn, þar sem allt er
að verða vélrænt.
Stína hefur lokið starfi dagsins á túninu og gengur
heim. Hún kemur inn í eldhúsið til Elsu og segir undir
eins: „Get ég ekki eitthvað hjálpað þér við eldhússtörf-
in, Elsa? Útivinnunni er lokið í dag.“
„Ég þakka þér fyrir, Stína mín, en ertu ekki orðin
þreytt, viltu ekki bara hvíla þig?“
„Nei, ég er ekkert þreytt. Þefta er ekki svo erfið
vinna á túninu. Get ég eitthvað gert fyrir þig?“
„Já, víst geturðu það, og fyrst þú vilt vera svo góð
að hjálpa mér, þá ætla ég að biðja þig að færa Pálma
fulltrúa kvöldverðinn upp í dagstofu. Mamma hefur
innleitt þá reglu að færa honum matinn upp í stofu, og
ekki ætla ég að fara að breyta því.“
Stína roðnar ósjálfrátt. Blóð hennar evkur jafnan
hraðann, er hún hevrir nafn fulltrúans nefnt, síðan þau
urðu samferða heim af dansleiknum að Stóra-Asi í vor.
Hún hefur sjaldan séð Pálma síðan, og hann hefur ekk-
ert við hana talað. En hún ræður ekki við þessar til-
finningar gagnvart honum, því miður.
Stína raðar kvöldverði fulltrúans á bakka og gengur
svo með hann upp í dagstofuna. Pálmi hefur lokið
störfum sínurn á skrifstofunni og fært sig þaðan. Hann
situr nú inni í dagstofu og les í fréttablaði. Stína kemur
inn í stofuna til hans og býður gott kvöld og fer svo
að raða kvöldverðinum á borðið.
Pálmi lítur snöggt á Stínu og svarar kveðju hennar
þurrlega. Svo Elsa sendir þá vinnukonuna með kvöld-
verðinn handa honurn, en kernur ekki með hann sjálf.
Hún er þó vön að bera á borð, þegar móðir hennar er
heima. En það breytir engu, hver færir honum mat-
inn, hann er ákveðinn í því að ná fundi sýslumanns-
dótturinnar í kvöld. Hann ræðir ekkert við vinnukon-
una og heldur áfram að lesa blaðið.
Stína lýkur við að raða kvöldverðinum á borðið fyr-
ir fulltrúann og býður honum síðan að gera svo veL
Því næst tekur hún bakkann og hraðar sér fram úr
stofunni aftur. Hún er feimin og óstyrk í návist full-
trúans. Pálmi færir sig síðan að borðinu og snæðir
kvöldverðinn einn.
Gunnar kaupamaður losar hestana frá sláttuvélinni
og flytur þá í hagagirðinguna sunnan við túnið. Að
morgni er helgidagur, og þá eiga hinir þörfu þjónar
hvíld og frelsi. Gæðingar Gunnars eru á beit í girð-
ingunni skammt frá honunt. Hann gengur til þeirra og
Heima er bezt I