Heima er bezt - 01.05.1961, Page 28

Heima er bezt - 01.05.1961, Page 28
fyrir tvo og kemur því smekklega fyrir á eldhúsborð- inu. I fyrsta sinni drekka þau nú tvö saman kvöldkaff- ið á Grund, Gunnar og hún, og þetta kaffiborð verður að bera þess merki á einhvern hátt. Hún veit þegar, hvað bezt á við. Hún gengur í flýti út í blómagarðinn og safnar saman ilmandi rósum í dálítinn vönd og kem- ur honum svo fallega fyrir á miðju eldhúsborðinu. Þau tvö, Gunnar og hún, eiga ilminn af þessum rósum, og hún hefur sjálf gróðursett þær. Gunnar hefur lokið því að flytja hestana í haga og gengur nú aftur heim. Heitur og djúpur fögnuður bær- ist í sál hans, og að þessu sinni hlakkar hann til að koma inn í kvöldkaffið. Og er hann kemur inn í eldhúsið, bíður rjúkandi kaffið á borðinu, og ljúfan blómailm leggur að vitum hans. Hann lítur fyrst yfir blóm- skreytta kaffiborðið og síðan á Elsu. „Er einhver hátíð hér í kvöld?“ spyr hann brosandi. „Já, Gunnar, hátíð sem við eigum tvö. Gerðu svo vel og seztu.“ Þau setjast saman við borðið og drekka kvöldkaffið. Stundin er unaðsrík. Að kaffidrykkjunni lokinni, rís Gunnar á fætur og segir: „Ég þakka þér fyrir kaffið, Elsa, og ilminn af rósun- um þínum.“ „Eg þakka þér sömuleiðis, Gunnar.“ Hún tekur rós- irnar af borðinu og réttir honum þær. „Hafðu þessar rósir með þér upp í herbergi þitt til minningar um þessa kvöldstund, og njóttu anganar þeirra, meðan þær lifa.“ Gunnar tekur við rósunum og lítur heitum, blíðum augum á gefandann, og hjartað þýtur í barmi hans. En kaupamaðurinn á Grund verður að stjórna tilfinning- um sínum, þegar sýslumannsdóttirin er annars vegar. „Ég þakka þér fyrir rósirnar — og kvöldið, Elsa,“ segir hann lágum, djúpum rómi, „góða nótt“. Svo geng- ur hann upp í herbergi sitt með rósirnar frá henni, sem hann veit að upp frá þessu kvöldi muni aldrei blikna í hjarta hans. Pálmi fulltrúi stöðvar bifreið sína heima á hlaðinu á Grund. Hann hefur nú átt sitt fyrsta ævintýri með vinnukonunni úti í faðmi sumarkvöldsins. Þau stíga þegar út úr bifreiðinni og ganga saman inn í húsið. Elsa er nýfarin upp í herbergi sitt, en hún hefur fram- reitt kaffi handa tveimur á eldhúsborðinu, og að þessu sinni ætlar hún fulltrúanum að drekka kvöldkaffið í eldhúsinu með vinnukonunni. Stína opnar eldhúsið og segir við Pálma: „Hér bíð- ur okkar kvöldkaffi á borðinu. En á ég ekki að bera þitt kaffi upp í stofu?“ Pálmi fulltrúi glottir kalt. „Nei, húsfreyjan hefur auðsjáanlega ætlazt til, að ég drykki það hér, og mér er sama, þó ég geri það í þetta sinn.“ Hann sezt við eldhúsborðið, og Stína hellir í bollann handa honum, og svo fær hún sér einnig kaffi. Nú hefur Pálmi þegar breytt um viðmót. Hann er ekki lengur glaður og ástleitinn, heldur þögull og kald- ur, og unga vinnukonan er feimin og vansæl.í návist hans. Þau ljúka við að drekka kaffið, og Stína fer að þvo bollapörin, en Pálmi reykir einn vindling og rís síðan upp frá borðum. Hann hefur tæmt bikar kvölds- ins í botn, býður Stínu góða nótt án þess að þakka samfylgd hennar, og gengur út úr eldhúsinu. Unga vinnukonan lýkur við uppþvottinn og sezt svo við eldhúsborðið, hjartað þýtur heitt og órótt í barmi hennar. Fulltrúinn hefur rænt hana því. En hvað ætlar hann að gefa henni í staðinn? Ekki neitt? Stína lætur fallast fram á borðið og grætur hljóð- lega um stund. En æska hennar og sakleysi speglast í þeim tárum og svala sál hennar. Loks rís hún á fætur og heldur til herbergis síns. Og hljóð sumarnóttin um- vefur allt. — Sunnudagsmorguninn er bjartur og fagur. Elsa fær- ir Pálma fulltrúa morgunkaffið upp í dagstofu. Er hún kemur þar inn, situr fulltrúinn þar í hægindastól og reykir. Hún býður honum góðan dag og setur kaffi- bakkann á borðið. „Gerðu svo vel, hér er morgun- kaffið,“ segir hún og ætlar svo þegar að snúa á brott. En Pálmi lítur á hana og brosir ertnislega. „Hvernig skemmtir þú þér í gærkvöld, Elsa?“ spyr hann formálalaust. „Ég skemmti mér vel.“ „Garnan að ríða út með kaupamanninum?“ „Já, reglulega gaman.“ „Hvernig heldur þú, að foreldrum þínum hefði lík- að ferðafélaginn?“ „Areiðanlega vel.“ „Þú heldur það. Gaman væri að komast eftir því.“ „Þá skaltu bara veita þér þá ánægju.“ Hann horfir stríðnislega á hana. „Ég ætla að segja foreldrum þínum frá ferðalagi þínu og kaupamannsins.“ „Það máttu mín vegna, gerðu svo vel. En ég hélt að maður í þinni stöðu léti sig ekki í það að flytja svo smátt mál.“ Pálmi roðnar örlítið, og stríðnisbrosið hverfur af andliti hans. „Ég vil gera samning við þig, Elsa, og ljósta engu upp um þig, en þú kemur með mér í bif- reiðartúr í kvöld.“ „Nei, þakka þér fyrir, Pálmi fulltrúi, ég hafna þeim samningi. — En hvernig skemmtir þú þér í gærkveldi?" „Ég?“ „Já, fórstu ekki út að aka með Stínu?“ „Jú, þú skildir hana hér eina eftir, svo ég bauð henni út með mér, stelpu-greyinu.“ „Þú gazt heldur ekki valið betri ferðafélaga. Stína er bæði saklaus og góð.“ Svo gefur Elsa honum ekki færi á frekari samræðum og gengur hvatlega út úr stofunni. Pálmi horfir svipþungur á eftir henni. Enn einu sinni hefur hann beðið ósigur fyrir sýslumannsdótturinni. En það aðeins stælir skap hans og fastan ásetning. Hann skal finna nýjar leiðir til þess að koma fram vilja sínum! 172 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.