Heima er bezt - 01.05.1961, Side 31

Heima er bezt - 01.05.1961, Side 31
ætlið þið að vera hér alislaus í vetur? Ég hef hugsað talsvert oft urn það.“ „Náttúrlega verðum við hérna hvernig sem okkur gengur að lifa,“ sagði gamla konan döpur. „Það er eina vonin að maður fái eitthvað úr sjónum. Hann er búinn að reyta þó nokkuð, ja reyndar þeir báðir, en nú er fiskurinn að dýpka á sér, þá er það búið. Það verður lítil mjólkin býst ég við. Varð ekki kýrin aldeilis þurr þegar búið var að þvæla henni alla þessa leið í myrkr- inu?“ „Þetta er nú ekki löng leið, góða mín. Hún er orðin þurr núna, enda komin fast að burði. Ég er viss urn að hún hefur þekkt mig.“ „Það hefði verið talsverður munur ef hún hefði orð- ið eftir,“ kveinaði gamla konan. „Mér finnst þetta alveg óþarfa kvart,“ sagði Valborg. „Þar sem kvígan kemst í gagn fyrri jól og þið ætlið að slá af hest, hlýtur þetta að geta orðið þolanlegt líf.“ Það kom vatn í munninn á Asdísi þegar hún heyrði minnzt á hrossakjöt. Þvílíkur ilmandi matur yrði ekki á borðum á Giljum. Valborg fór fram, líklega til að skerpa á katli. Asdís elti hana því það þýddi ekkert að tala við kerlingarkvölina. Hún var alltaf að kvarta og kveina. Það var allur bærinn sópaður hjá henni. „Svo þið hafið þá aldrei komið inn ölium útheys- skapnum,“ sagði hún. „Heyrðist það aldrei á Kristjáni að það sæist að ég væri farin?“ spurði hún. „Nei, það heyrði ég aldrei til hans. Það var heldur að það heyrðist til gamla mannsins. Guðný vildi fá hest og fara alfarin sama daginn og þú fórst, en það varð ekkert af því, og það sldpti áreiðanlega um með hana. Hann var ekki mjög flírulegur við hana það sem eftir var.“ „Það var eins gott að hún varð fyrir olnbogunum á honum. Henni var alltaf skemmt þegar hann var sem ómerkilegastur við mig,“ sagði Asdís. „En ósköp sýnist mér kerlingartetrið armæðuleg á svipinn núna,“ bætti hún við. „Já, hún kvíðir ósköp framtíðinni, stráið, meira en ástæða er til fyrir hana.“ „Það er eðlilegt þar sem manneskjan sér að engin manneskja er á heimilinu, sem hægt er að treysta á. Það var meiri vitleysan í Kristjáni að ætla að fara að selja skepnurnar. Ef hann hefði ekki gert það hefði ég sjálfsagt verið hér enn þá.“ „Ég efast um að það hefði verið til nokkurs betra. Gamla konan var orðin úttauguð að vera með strákang- ann,“ sagði Valborg fálega. Hún tafði fram í myrkur. Hana langaði til að sjá framan í Hartmann karlinn, en hann var hvergi sjáan- legur. Ekki heyrðist það á kerlingunni að hún væri hrædd um hann. Hún sagði bara að Kristján færi sjálf- sagt að koma. Ásdís vissi varla hvort hún ætti að bíða komu hans eða ekki. Það varð því úr að hún kvaddi og fór út í náttmyrkrið. Hvað skyldi verða um þetta heimili ef karlanginn kæmi aldrei að landi, hugsaði hún á heimleiðinni. Skyldi Kristján koma og biðja hana að koma til sín. Hún vissi ekki hvort hún kysi að breyta til. Þetta var ekki orðinn nokkur búskapur hjá honum hjá því sem var á Hofi. I það bú hefði verið ánægjulegt að setjast, en það fór nú eins og allt annað. Náttúrlega var alltaf hægt að fjölga skepnunum, því skuldugur var hann víst ekki, eftir því sem faðir hans sagði. En það var bara ómögulegt að búa með honum eins og hann var til skapsmunanna í sumar. Þá var skárra að vera í rólegheitunum heima. Henni fannst baðstofan á Giljum ákaflega dimm og illa útlítandi þegar hún kom heim. Stóri lampinn úr hjónahúsinu á Hofi hafði lýst baðstofuna á Bakka svo vel upp, að hún var eins og höll hjá þessari. Hún dreif sig í að gera hreina baðstofuna daginn eftir. Það hafði víst ekki verið gert í mörg ár, enda tók hún miklum stakkaskiptum. Þar næsta dag reið hún út í kaúpstað og keypti stóran lampa og margt fleira. „Mér finnst ég nú tæplega þekkja baðstofugreyið þegar búið er að hressa svona upp á hana,“ sagði Steinn gamli. „Hún hefur nú aldrei komizt í kynni við annað en lýsislampa og svo þetta grey með kolsvartan skerm- inn af ósreyk.“ Veturinn heilsaði með stórhríð og frosti. Hann yrði áreiðanlega gjafafrekur, sögðu bændurnir. Ásdís hjálp- aði föður sínum við gegningarnar. Hann talaði oft um það að hún skyldi bara taka við búinu. Sjálfur sagðist hann vera orðinn garmur til heilsunnar, en hún væri svoddan dugnaðarstúlka, að hcnni vrði ekki mikið fvr- ir því að heyja handa skepnunum. Þar sem hún ætti nú bæði kúna og 4 hrosshöfuð mætti heita að hún væri búfær. En Ásdís var alltaf með hugann á Grýtubakka, en fékk engar fréttir þaðan fyrr en Ásgeir, bróðir hennar, kom heim, rétt fyrir 'jólin. Hann sagði að það- an væri lítið gott að frétta. Kristján yrði fyrir hverju óhappinu af öðru. Hann hafði misst 4 ær í sjóinn. Þær höfðu verið komnar fram í skerið og verið farið að „falla að“ þegar eftir þeim var tekið. Þeir höfðu getað bjargað 5 ám, en Kristján hefði orðið innkulsa og legið í rúminu í hálfan mánuð á eftir. „Mér þykir þú segja fréttir,“ sagði Ásdís. „Ef ég hefði vitað þetta hefði ég farið vestur yfir hvað sem hver hefði sagt.“ Þá þyngdist svipurinn á Steini gamla. „Þú skalt bara íhuga það, að þú ert ekki laus og liðug lengur, stúlka mín,“ sagði hann. „Ég flutti þig ekki hingað til þess að móðir þín þyrfti að hugsa um barnið, heldur fannst mér nær að þú yrmir fyrir skepnunum þínum hér en þú þrælaðir fyrir mat hjá vandalausum. Karlinn getur víst alveg eins hirt sínar skepnur eins og ég án þinnar hjálpar.“ „Það sjá nú líklega allir, að ég hef unnið fyrir meiru en matnum mínum,“ sagði Ásdís og rauk fram heldur svipmikil. „Ég segi nú bara að það sé til skammar hvernig þú talar til Ásdísar, þessarar myndar stúlku,“ sagði móðir hennar. Heima er bezt 175

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.